Fréttablaðið - 25.05.2002, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
25. maí 2002 LAUGARDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
ERLENDIR RÍKISBORGARAR
KJÓSA LÍKA f DAG
Kjósendur á kjörskrá fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í dag eru alls 204.923. Þar af
eru 1.611 manns með lögheimili annars
staðar á Norðurlöndunum og 2.461 er-
lendur ríkisborgari. Þessi rikisfangslönd eru
algengust:
Danmörk 536
Bandaríkin 246
Pólland 230
Noregur 183
Bretland 174
Þýskaland i 162
Svíþjóð 142
Taíland 100
Filippseyjar 70
Holland 51
Finnland 46
Frakkland 46
Spánn 37
Portúgai 33 Heimild: Hagstofa íslands
BLÁA LÓNIÐ
I grein sinni mælir Collis með því að fólk
staldri við á fslandi i einn sólahring og nýti
sér tilboð sem feli í sér skoðunarferðir,
gistingu og ferðir. Gefist m.a. tfmi til að
heimsækja Bláa lónið.
Herald Tribune um Flue-
leiðir:
Flugleiðir
besti kost-
urinn
samgöngur Flugleiðir eru eitt best
varðveitta leyndarmál Atlants-
hafsflugsins, er skoðun Roger
Collis, greinarhöfundar banda-
ríska dagblaðsins Herald Tbibune.
Gerir hann samanburð á verðlagi
á því að fljúga frá Norður-Banda-
ríkjunum til Vestur Evrópu. Hann
finnur út að ef flogið er á Saga-
Class Flugleiða munar helmingi á
verði miðað við flugfélög á borð
við British Airways, KLM og Luft-
hansa.
Collis lýsir viðskiptafarrými
Flugleiða í smáatriðum og segir
þau minna á rýmin á árunum í
kringum 1960. Mun þrengra sé á
milli sæta en annars staðar, en
enginn ætti að finna fyrir óþæg-
indum. Collis segir Leifsstöð í
fullu samræmi við hina ánægju-
legu og persónulegu upplifun
sem fáist um borð í Flugleiðavél-
unum. ■
Þrjár morðsárásir í Tel Aviv á rúmlega sólarhring:
Vítahringur hefnda heldur áfram
tel aviv. ap A rúmlega sólarhring
hafa Palestínumenn þrisvar sinn-
um gert árásir á ísraelsmenn í Tel
Avív og nágrenni. Síðasta árásin í
þessari lotu var gerð í fyrrinótt
þegar Palestínumaður ók bifreið
með sprengjum á fullri ferð í átt-
ina að skemmtistað þar sem tvö
hundruð manns voru að skemmta
sér. ísraelskum öryggisverði tókst
þó að skjóta árásarmanninn áður
en hann náði að setja sprengibún-
aðinn í bifreiðinni af stað.
Tvær árásanna voru sjálfs-
morðsárásir, sú fyrsta og sú þrið-
ja, og voru þær gerðar í hefndars-
kyni vegna þriggja Palestínu-
manna, sem ísraelsher tók af lífi
fyrr í vikunni án dóms og laga.
Bæði árásarmennirnir tveir sem
og hinir myrtu Palestínumenn
voru liðsmenn A1 Aksa herdeild-
anna, sem tengjast Fatah, stjórn-
málahreyfingu Jassers Arafats.
Ekki er vitað hver stóð að baki
árás á eldsneytisgeyma í nágrenni
Tel Avív á fimmtudaginn.
Árásirnar hafa slegið töluvert á
vonir ísraelsmanna um að með
sex vikna hernaðaraðgerðum ný-
verið hafi tekist að koma í veg fyr-
ir hryðjuverk.
DANSAÐ GEGN HERNÁMI
Rúmlega þúsund ísraelsk ungmenni komu
saman á torgi í miðborg Tel Aviv á fimmtu-
daginn. Þar dansaði mannfjöldinn af miklu
kappi til þess að mótmæla hernámi jsraels
á Vesturbakkanum og Gazaströnd.
Leitað að myndum
úr Þjóðleikhúsinu
Verjanda Árna
óaði við til-
hugsuninni
um að
Norðmenn-
irnir bæru
vitni gegnum
Verjandi Árna Johnsen segir ljósmyndir úr Þjóðleikhúsinu sýni að eig-
andi bílskúrs hafi í raun unnið fyrir byggingarnefnd leikhússins. Þrátt
fyrir mótmæli vararíkissaksóknara, sem telur myndirnar engu breyta í
málinu, fyrirskipaði dómari honum að hafa upp á myndunum.
dómsmál Dómari í máli Árna
Johnsen fyrirskipaði Braga Stein-
arssyni vararíkissaksóknara í
gær að grennslast fyrir um tilvist
og útvega ljósmyndir sem Jakb
—4-— Möller, verjandi
Árna, segir Ijós-
myndara hafa tek-
ið í Þjóðleikhúsinu.
Jakob Möller
telur ljósmyndirn-
ar munu sanna að
ljósmyndarinn
hafi í raun unnið
sima. verk fyrir bygg-
—— ingarnefnd Þjó-
leikhússins. Árni er ákærður fyrir
að hafa látið nefndina innrétta bíl-
skúr ljósmyndarans. Saksóknar-
inn taldi myndirnir ekki varða
ákæruna.
Sakborningarnir mættu ekki
fyrir dóminn í gær. Aðalmeðferð
málsins á að fara fram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur dagana 5. og 6.
júní.
Jakob sagði ljósmyndarann
ekki hafa myndirnar lengur í
sinni vörslu. Þær væru líklega í
umsjón fyrrum verkefnisstjóra
endurbóta Þjóðleikhússins.
Bragi Steinarsson vararíkis-
saksóknari sagðist mundu leiða
fram um 30 vitni.
Jakob Möller krafðist þess að
tvö vitni sem búsett eru í Noregi
yrðu kölluð fyrir dóminn en ekki
yfirheyrð símleiðis. Jakob sagðist
hafa afar slæma reynslu af dóm-
túlkum úr norsku. Auk þess væru
vitnin frá Norður-Noregi sem
ekki einu sinni aðrir Norðmenn
VERJENDUR I ÁRNAMÁLINU
Jakob Möller, verjandi Áma Johnsen, telur að Ijósmyndir sem eigandi bílskúrs í Kópavogi
tók í Þjóðleikhúsinu sanni að bílskúrseigandinn hafi unnið verk fyrir byggingarnefnd leik-
hússins. Árni er m.a. ákærður fyrir að hafa látið byggingarnefndina greiða um 300 þúsund
krónur fyrir innréttingu bílskúrsins. Jakob situr lengst til vinstri.
skilji vandkvæðalaust. Hann óaði
því við tilhugsuninni um að Norð-
mennirnir bæru vitni gegnum
síma. Dómari sagði engu að síður
stefnt að því að yfirheyra menn-
ina símleiðis.
Kona, sem búsett er á Hofsósi
og starfar við framleiðslu þjóð-
fána, fær hins vegar ekki að bera
vitni í síma heldur á að koma fyr-
ir dóminn í eigin persónu.
Nokkuð brösulega gekk að
finna tíma fyrir aðalmeðferðina.
Verjandi eins mannsins, sem
ákærður er ásamt Árna, er til
dæmis upptekinn við aðalmeðferð
annarra mála á sama tíma og með-
ferðin í Árnamálinu á að fara
fram. Verjandinn mun ætla að fá
þeim dagsetningum breytt. Eins
vísaði dómari á bug ábendingu
verjanda annars meðákærða Árna
um að skjólstæðingur hans yrði
erlendis umrædda daga. Sakborn-
ingurinn skal mæta fyrir dóminn,
sagði Guðjón St. Marteinsson
dómari.
gar@frettabladid.ís
Brúðkaupsmyndatökur
Ljósmyndastofan
Mynd
Sími 565 4207
Bæjarhrauni 26,
Hafnarfirði.
Kaupir Planet Pump af Jónínu Benediktsdóttur:
Linda P. færir út kvíarnar
viðskipti Linda Pétursdóttir og
fjölskylda hennar hafa keypt
Planet Pump við Frostaskjól af
Jónínu Benediktsdóttur. Eftir
þessa sölu á Jónína aðeins tvær
stöðvar, Planet Pulse á Hótel Esju
og stöð með sama nafni í
Austurstræti. Hún vildi
ekki tjá sig um hver
ástæða sölunnar væri en
sagðist myndi senda frá
sér fréttatilkynningu. Ekki
hefur verið ákveðið nafn á
þessa nýju stöð Baðhúss-
ins en að sögn Sævars Pét-
urssonar framkvæmda-
stjóra Baðhússins og
bróður Lindu Pétursdótt-
LINDA PÉTURS-
DÓTTIR
LINDA BUIN AÐ KAUPA
ÞESSA STÖÐ ÁSAMT FJÖL-
SKYLDU SINNI
Eitt sin hét þessi stöð Þokkabót
síðan Planet Pump en óvíst er
hvað hún mun heita nú.
ur verður efnt til samkeppni um
það á næstunni. Hann sagði að ætl-
unin væri að taka húsnæðið í gegn
og endurnýja það sem þyrfti en að
öðru leyti yrði stöðin rekin á svip-
aðan hátt og áður.
Linda P. og hennar fólk ætla
ekki að láta þar við sitja heldur
verður í haust opnuð ný 6.000 fer-
metra stöð í Kópavogi þar sem
verður hægt að stunda allar
íþróttir innandyra. Báðar nýju
stöðvarnar verða ætlaðar báðum
kynjum en eins og menn vita hef-
ur Baðhúsið þá sérstöðu að þar
æfa eingöngu konur. ■
Sturla Böðvarsson:
Oforsvaran-
legar árásir
stjórnmál Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra segist hafa sætt
árásum vegna eftirmála flugslyss-
ins í Skerjafirði og deilna um heil-
brigðisvottorð flugmanns, „sem
mjög hefur verið blásið upp í fjöl-
miðlum," eins og ráðherrann sagði
á málþingi um flugöryggi. „Spjót-
um hefur verið beint ótæpilega að
Flugmálastjórn, Rannsóknarnefnd
flugslysa og ekki síst ráðherra sem
hefur mátt sæta óforsvaranlegum
árásum vegna beggja þessara
mála. Af því tilefni er rétt að minna
á að ráðuneytið hefur á þessu kjör-
tímabili staðið fyrir miklum um-
bótum á löggjöf og framkvæmd
flugöryggismála," sagði Sturla. ■
COLIN POWELL í BERLÍN
Utanrlkisráðherra Bandaríkjanna hótaði því
fyrir rúmum mánuði að svipta Austur-
Tímor stuðningi Bandaríkjanna.
Austur-Tímor:
Powell hótaði
stjórnvöldum
heimspólitíkin Nokkrum vikum
áður en Austur-Tímor hlaut form-
legt sjálfstæði skrifaði Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, væntanlegum stjórn-
völdum þar bréf. Þar hótaði hann
því, að ef þau gæfu ekki skriflega
yfirlýsingu um að þau muni ekki
kæra bandaríska ríkisborgara til
hins nýja stríðsglæpadómstóls
Sameinuðu þjóðanna, myndu þau
missa aðstoð frá Bandaríkjunum.
Líklegasta ástæðan fyrir þess-
um hótunum er að Bandaríkin
vilji tryggja, að Henry Kissinger,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, verði ekki sóttur
til saka. Hann gaf Suharto
Indónesíuforseta loforð í desemb-
er árið 1975 um að þeir myndu
ekki mótmæla því, þótt Indónesía
hertæki Austur-Tímor. ■
| INNLENT |
Borgarráð hefur samþykkt að
sett verði upp umferðarstýrð
umferðarljós á gatnamótum Vík-
urvegar og Borgarvegar/Fossa-
leynis. Þótti ástæða til þar sem
nýtt íþróttahús hefur verið byggt
og aukin umsvif vegna þess kalli
á aukna umferð.
—♦—
Fyrirhugað er að setja upp
gangbrautarljós í Álfheima
skammt sunnan Sólheima og
gegnt gönguleið að Langholts-
skóla. Börn á leið í skóla fara í
veg fyrir talsvert mikla umferð í
Álfheimum, umferðin er um
8.000 bílar á sólarhring.
—♦—
Samkvæmt milliuppgjöri sem
lagt hefur verið fram fyrir
bæjarráð hafa skuldir bæjarsjóðs
Vestmannaeyja og stofnana hans
lækkað um tæpa 1,3 milljarða frá
því í lok síðasta árs, úr rúmum
4,1 milljarði niður í 2,9 milljarða.
Af því skuldar bæjarsjóður tæpa
tvo milljarða, Hafnarsjóður 360
milljónir og skuldir félagslega
íbúðakerfisins eru tæpar 588
milljónir. Skuldir Bæjarsjóðs ein-
göngu hafa lækkað um 588 millj-
ónir frá 31. desember sl. og eru
nú 359.056 krónur á hvern íbúa
og hafa lækkað um rúm þrettán
þúsund. Eyjafréttir sögðu frá.
—♦—
Opinberri heimsókn Mariu E.
Brizuela De Avila, utanríkis-
ráðherra E1 Salvador, lýkur í dag.
Hún fundaði með utanríkisráðh-
erra, dómsmálaráðherra og for-
manni utanríkismálanefndar Alþ-
ingis auk fulltrúa Þróunarsam-
vinnustofnunar og Útflutnings-
ráðs.