Fréttablaðið - 25.05.2002, Side 8

Fréttablaðið - 25.05.2002, Side 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 25. maí 2002 LAUGARDACUR FRETTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Rítstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavlk Aðalsimi: 515 75 00 Sfmbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er drerft ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið é pdf-formi á vfeir.is. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt f'l að birta allt efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ÓLAFUR F. MAGNÚSSON „Við mælumst með of lítið í könnunum." Ólafur F. Magnússon Munum ná innmanni stjórnmál „Ég hef sterka tilfinn- ingu fyrir því, og hef lengi haft, að við mælumst með of lítið í könnunum. Ég hvet fólk eindregið til þess að nýta þetta tækifæri til að koma nýju afli að í borginni sem mun veita valdþreyttum meirihluta aðhald. Ég hvet borgarbúa einnig til þess að láta ekki hræðsluáróður stóru fylkinganna valda því að menn hviki frá sannfæringu sinni. Ég bendi á að við mælumst með 5,3% í DV könnun sem er tekin á sama tíma og þessi sem bendir til þess að okkur vanti aðeins herslumuninn til að ná inn manni. Ég er fullviss um það að sú könn- un sem fer fram í dag mun skila okkur inn borgarfulltrúa á næsta kjörtímabili." ■ UMMÆLI FÓLKS í KÖNNUNINNI Kjósendur láta ýmislegt flakka um leið og þeir gefa upp afstöðu í skoðanakönnun. „Við höfum hana Ingibjörgu okkar, annað væri skandall," sagði karlmaður. „Ég vil að Gísli Mart- einn nái inn,“ sagði kona. Sumir horfa lengra fram í tím- ann en aðrir. „Ég vil sjá Björn Bjarnason næstu kjörtímabil.“ Vaninn er líka máttugur herra. „Maður veit ekki hvað maður fær ef maður breytir um,“ sagði karl- maður á miðjum aldri. Eins og oft vill verða eru þeir fúsari að tjá sig sem eru óánægðir með eitthvað. Sumum er erfitt að gera til hæfis. „R-listinn stendur illa við bakið á ófrískum konum og öðrum sem illa standa fjár- hagslega, en D-listinn stundar njósnastarfsemi í kjörklefanum. Svo ég skila auðu.“ Leiðtogarnir fá líka sinn skammt af neikvæðum glósum. „Ég er orðinn hundleiður á kerling- aruglunni. Ég vil fá Björn,“ sagði eldri karl. „Hann er svo leiðinlegur, greyið hann Björn,“ sagði kona sem ætlaði nú samt að kjósa hann. „Það er sami rassinn undir undir Ingibjörgu og Birni, ekkert nema pota og pota í stöður. Ég myndi vilja sjá Ólaf F. sem bor- garstjóra. Þetta er bara ekkert fylgi sem hann er að fá, sagði kona sem ekki ætlar að kjósa.“ „Ætli ég vildi ekki bara taka þetta að mér sjálfur," sagði einn sem treysti engum öðrum. ■ Björn Bjamason: Úrslitin rád- ast á kjördag stjórnmál „Úrslitin ráðast í dag og endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir fyrr en búið er að telja upp úr kjörkössunum," segir Björn Bjarnason, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins. „Kjósendur taka endanlega af- stöðu á kjördag og miðað við síð- ustu kannanir eru rúmlega 20% kjósenda óákveðnir, sem er hátt hlutfall síðustu daga fyrir kosn- ingar.“ Björn segir kannanir að undan- förnu hafa sýnt miklar sveiflur innbyrðis: „Það er ómögulegt að segja um BJÖRN BJARNASON „Rúmlega 20% kjósenda óákveðnir, sem er hátt hlutfall síðustu daga fyrir kosningar." hver endanleg niðurstaða verður," segir Björn Bjarnason. ■ Ingibjörg Sólrún: Menn haldi vöku sinni STJÓrnmál „Ég hef tamið mér að taka skoðanakönnunum með fyr- irvara. Kannanir sem nú eru að birtast eru dálítið misvísandi. Það er ekki nema vika síðan að kann- anir sýndu að það væri mjótt á mununum milli fylkinganna. Þannig að ég tel að við verðum að halda mjög vel á spöðunum á kjör- dag til að tryggja meirihluta Rey- kjavíkurlistans," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóra- efni R-listans. „Menn verða að halda vöku sinni. Það er sótt að Reykjavíkur- listanum úr tveimur áttum. Það má ekki mikið færast til fylgið frá INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR „ Það er sótt að Reykjavíkurlistanum úr tveimur áttum." okkur til frjálslyndra eða sjálf- stæðismanna til þess að áttunda sætið, baráttusætið sem ég er í, sé í hættu,“ segir Ingibjörg Sólrún. ■ KOSNINGAÚRSLIT OG KANNANIR Á ÞESSU ÁRI. Reykjavíkurlistinn var í mikilli sókn fyrstu mánuði ársins en síðan tókst sjálfstæðismönnum að bæta hlut sinn nokkuð. Undanfarna viku og daga virðist hins vegar aftur hafa skilið á milli framboðanna. I súluritinu má sjá kannanir Gallup, Félagsvísindastofnunar (Fél.st.) og Fréttablaðsins (Fbl.) Sveiflukenndri baráttu lýkur í dag Miklar sveiflur hafa verið á fylgi framboðanna í borgarstjórnarkosningunum sem fram fara í dag. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins fær Reykjavíkurlisti 56% atkvæða, Sjálfstæðisflokkur 40% og Frjálslyndir 3%. kosningar Mikið hefur gengið á í kosningabaráttunni í Reykjavík sem tekur endi í dag. Hefur það endurspeglast í skoðanakönnun- um um fylgi flokkanna. Þær hafa sýnt miklar fylgissveiflur sem hafa ýmist dregið úr mönnum kjarkinn eða gefið þeim byr í bar- áttunni. Fyrsta könnun ársins birtist í Þjóðarpúlsi Gallup í byrjun janú- ar. Samkvæmt henni naut Reykja- víkurlistinn stuðnings 51% Reyk- víkinga, Sjálfstæðisflokkur gat treyst á atkvæði 46% kjósenda og Frjálslyndir mældust með 3% fylgi. Um þetta leyti voru Sjálf- stæðismenn að gera upp við sig hver myndi leiða lista þeirra og flokkarnir sem standa að Reykja- víkurlistanum að semja um fram- boð. Bæði mál leystust undir lok mánaðarins. Fyrstu könnun eftir að samið var um Reykjavíkur- listaframboð og Björn Bjarnason valinn borgarstjóraefni Sjálf- stæðismanna gerði Fréttablaðið í lok janúar. Þá mældist mikill munur á fylgi framboðanna tveggja. Fylgi R-lista var komið í rúm 55% en fylgi Sjálfstæðis- manna í 41%. Þessi munur hélst fram í miðjan apríl. Þá mældist munurinn mestur, Reykjavíkur- listi fékk 62% í Gallup-könnun, Sjálfstæðisflokkur 34%. Frjáls- lyndir mældust með rúm tvö pró- sent. Upp úr því fór að draga saman með stóru framboðunum tveimur. í næstu könnunum bætti Sjálf- stæðisflokkur verulega við sig fylgi á sama tíma og dró úr fylgi Reykjavíkurlista. Minnstur mældist munurinn í könnun Fé- lagsvísindastofnunar sem birtist 11. maí. Þar var fylgi Reykjavík- urlista 48,8% en fylgi Sjálfstæðis- flokks 45,6%. Sjálfstæðismenn höfðu á þessum tíma haft allt frumkvæði í kosningabaráttunni og hún snúist um málefni þeirra. Eftir þetta fór hins vegar að draga í sundur með framboðunum á nýj- an leik. Síðustu daga hefur stuðn- ingur við Reykjavíkurlista numið 52 - 53% atkvæða samkvæmt könnunum Gallup og Félagsvís- indastofnunar. Fylgi Sjálfstæðis- flokks hefur mælst 41 - 44%. f skoðanakönnun sem unnin var fyrir Fréttablaðið á fimmtu- dagskvöld lýstu 56,2% kjósenda í Reykjavík stuðningi við Reykja- víkurlista. 39,7% sögðust ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk. 3,3% sögð- ust fylgja Frjálslyndum og óháð- um. Önnur framboð mældust vart. Samkvæmt þessari könnun fær Reykjavíkurlisti níu borgar- fulltrúa gegn sex borgarfulltrú- um Sjálfstæðisflokks. Talsverður munur er á fylgi við flokkana eftir kynferði. 42,6% karla sögðust ætla að kjósa Sjálf- stæðisflokk, 4,3% Frjálslynda og óháða og 52% Reykjavíkurlista. Sjálfstæðisflokkur nýtur stuðn- ings 36,6% kvenna, Frjálslyndir og óháðir fengu atkvæði 2,2% rey- kvískra kvenna. 61% sögðust ætla að kjósa Reykjavíkurlistann. Við síðustu kosningar fékk Reykjavíkurlisti 53,6% atkvæða, 0,6% meira en 1994. Sjálfstæðis- flokkur fékk 45,2% 1998, minnsta fylgi sitt frá upphafi. Glæstasti sigurinn í borginni vann Sjálf- stæðisflokkurinn 1990 þegar 60,4% kjósenda greiddu flokknum atkvæði sitt. brynjolfur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.