Fréttablaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ SACA PACSINS 25. MAI Arið 1958 lést Steinn Stein- arr, 49 ára gam- all. Þekktasta verk Steins er án efa ljóðaflokkur- inn Tíminn og vatn ið. ingmenn íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins stofn- uðu Sjálfstæðisflokkinn þennan dag árið 1929. Fyrsti formaður flokksins var Jón Þorláksson. ennan dag árið 1977 afléttu stjórnvöld í Kína banni á verkum Williams Shakespeare. Jafnframt skýrðu þau frá því að verk Shakespeares yrðu brátt fá- anleg í kínverskri þýðingu. Fá- einum mánuðum fyrr höfðu þau lýst því yfir að menningarbylt- ingu Maós væri formlega lokið. tÍmamot IARÐARFARIR________________________ 14.00 Óskar Sigurðsson, frá Laufási, verður jarðsunginn frá Fáskrúðs- fjarðarkirkju. AFMÆLI____________________________ Árni Friðleifssoner 34 ára. Guðný Guðbjörnsdóttir er 53 ára. Guðmundur Ingi Kristjánsson er 52 ára. Hugo Þórísson er 53 ára. Jóhannes Karl Guðjónsson er 22 ára. Kristbjörg H. Ingadóttir er 27 ára. Ólafur M. Schram er 52 ára. ANPLÁT_____________________________ Axel Ingólfsson, Bláhömrum 2, Reykja- vík, lést 15. maí. Útföin hefur farið fram. Anna Guðmundsdóttir, Höfðabraut 16, Akranesi, lést 21. maí. Magdalena Valdís Meyvantsdóttir, lést 23. maí. Kristín Snorradóttir, Bergþórugötu 19, Reykjavík, lést 22. maí. | FÓLK í FRÉTTUM [ I^síðustu könnun sem Gallup gerði fyrir sveitastjómarkosningarnar í Hafnarfirði mældist B-listi Fram- sóknar með 4,0% og U-listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs með 3,5%. Það vakti mikla kátínu hjá aðstandendum Tónlistans. Fram- boðið fékk 4,9% í síðustu kosningum og vilja Tónlistamenn meina að he- fðu þeir boðið fram nú væru þeir þriðja stærsta aflið í Hafnarfirði og stutt í að ná manni inn. 22 25. mai 2002 LAUGARDAGUR Spenntari fyrir barnabarninu Eiríkur Tómasson, prófessor í lögfræði, er oddviti yfirkjör- stjórnar í Reykjavík í kosning- unum í dag. „Ég mæti í hátíðar- skapi um klukkan sjö og þá verða send út kjörgögn á kjör- staðina sem opna klukkan níu. Síðan þarf að leysa alls kyns mál sem skjóta upp kollinum yfir daginn og ekkert er vitað um fyrirfram. Um klukkan sex skiptum við um kjörkassa og þeir sem flokka atkvæðin hefja þá sína vinnu. Við ættum að geta birt fyrstu tölur um klukkan 22.10.“ Eiríkur segist telja það borg- aralega skyldu sína að sinna þessu starfi, það sé skemmtilegt en líka þreytandi. „En ég verð þó að upplýsa það leyndarmál að ég er spenntari fyrir fyrsta barnabarninu sem er væntan- legt í heiminn þessa dagana. Það er mjög skemmtilegt segja allir sem hafa reynt það,“ segir Ei- ríkur, sem á þrjá syni. „Sá elsti er lögfræðingur, sá næsti er langt kominn í laganámi svo er óráðið með þann þriðja sem enn er í framhaldsskóla. Þetta smit- ast auðvitað út“ segir Eiríkur og hlær, því kona hans er lögfræð- ingur líka, Þórhildur Líndal um- boðsmaður barna. Eiríkur kennir í Háskóla ís- lands og segir það skemmtilegt að umgangast ungt fólk. Hluti starfsins er þó fólginn í rann- sóknarvinnu og greinaskrifum. _____________Persónan Eirikur Tómasson er oddviti yfirkjör- stjórnar i Reykjavík „Ég þreytist stundum á að vinna svona mikið við tölvu. Þess vegna reyni ég allt til að gera eitthvað annað í frístundum og þá helst að leika golf, sem er fjölskylduíþrótt hjá okkur. Golf- ið passar líka ágætlega við kennsluna þar sem rólegra er á sumrin," segir Eiríkur. ■ EIRÍKUR TÓMASSON Það verður í mörg horn að líta hjá Eiríki í dag eins og undanfarna daga. AFMÆLI „Gott að standa utan við kosningabaráttuna“ Guðný Guðbjörnsdóttir fyrrum þingkona er 53 ára í dag og verður vægast sagt önnum kafin. Guðný Guðbjörnsdóttir pró- fessor í uppeldis og mennt- unarfræði við Háskóla íslands er 53 ára í dag og hefur í nógu að snúast á afmælisdaginn. „Fyrst verður maður auðvitað að kjósa. Mér er boðið í tvær stúdentsveislur hjá börnum vinkvenna minna og er önnur þeirra í Keflavík. Um kvöldið, áður en við gefum okkur að kosningavökunni, hittumst við tvenn vinahjón og borðum ítalskan mat og skiptumst á hugmyndum um hvað væri skemmtilegt að gera í fríinu sem við förum í til Toscana í næstu viku,“ segir Guðný. Hún kveðst hafa sérstakt dálæti á Ítalíu og í gegnum tíðina hefur hún verið töluvert í rannsókn- arsamstarfi við þarlendan fræðimann. ^ýftalskur matur finnst mér spennandi, sérstak- lega þar, þýgar maður hefur að- gang að þessu ferska hráefni og kryddi sem er svo mikil- vægt. En Suður-Frakkland er líka í miklu uppáhaldi hjá mér þar hef ég einnig verið í sumar- leyfi meðal annars í tengslum við rannsóknarvinnu mannsins míns.“ Eiginmaður Guðnýjar er Gísli Pálsson prófessor í mannfræði og eiga þau tvö börn, Rósu Signýju sem er 19 ára og Pál Óskar sem er 26 ára. Guðný segir afmælisdaginn ekki skera sig úr hvað annríki varðar þessa dagana, en eins og flestir kennarar á þessum árstíma er Guðný á kafi í að fara yfir verkefni og próf. „Svo er það Listahátíðin, það er margt sem ég hef áhuga á þar. Það er reyndar svo mikið að gera í menningarlífinu almennt þessa dagana að við urðum að slá saman ítalska kvöldinu og kosningakvöldinu í stað þess að njóta þeirra á sitt hvoru kvöldi. Það er nánast hvert einasta kvöld sem við förum á ein- hvern viðburð. Sem dæmi get ég nefnt að í vikunni voru það Kryddlegin hjörtu, Hollending- urinn fljúgandi og Sigurrós“ segir Guðný. Guðný er fyrrverandi alþ- ingiskona svo það hljóta að vera viðbrigði fyrir hana að standa utan við kosningabar- áttuna að þessu sinni. „Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma að ég fylgist með úr fjarlægð. Það tók mig eitt til tvö ár að losa mig alveg út úr hringiðunni og losna við þá tilfinningu að mega ekki missa af neinu en nú finnst mér þetta mjög gott,“ segir Guðný að lokum. bryndis@frettabladid.is GUÐNY GUÐBJORNSDÓTTIR Guðný segir það venju hjá fjölskyldunni að allir hittist i afmæliskaffi. Ekki vill hún svíkj- ast undan merkjum þó að hún eigi annríkt í dag og ætlar að bjóða upp á kaffi á morg- un. Viiui.'n mböndin vinsæln frá 2: (V) i > 1 * 1 u-i 1 I Innnaðu þílt eigið armluiiui og m Firði Miöhcc Hdfnarfjaröar Sími: ftbö Hugmyndin að Móu hejlsu- og shyrtivörunum er byggð á aldagamalli þekkingu á íslenskum jurtum og áhrifamœtti þeirra. Móa framleiðir eingöngu úr lífrœnt rœktuðum íslenskum jurtum. gV 'ÍV> ■ LÍF " Allar plöntur sem Móa notar eru vottaðar a (Vistfræöistotunni í Reykjavik, sem LÍFRÆN ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Útsölustaöir: Heilsuhúslð Skólavöröustig, Kringlunni og Smáratorgi. Árnsesapótek Selfossi. Islenskur Markaöur Leifsstðð. Dagkrem Nœturkrem Augnkrem Jurtasmyrsl Varasalvi ÍSLENSK FEGURÐ Heilsuollur Sérpantanir FÓLK í FRÉTTUM Dráttur á því að ráðist verður í framkvæmdir á Íandi Jóns Ólafssonar í Garðabæ hefur valdið grunsemdir meðal sumra um að Sjálfstæðis- flokkurinn, sem hef- ur verið þar við völd svo lengi sem elstu menn muna, sé að nota tækifærið til að grafa undan veldi Jóns. Þykjast ýmsir sjá staðfestingu á þessu í fréttum Ríkisútvarpsins í gær þess efnis að bæjaryfir- völd geri mun meiri kröfur um tryggingar og lóðaframlag til byggingarfélagsins sem hyggst fara í framkvæmdir þar en dæmi eru til í lögum. Slíkar fréttir eru auðvitað ekki heppilegar fyrir meirihlutann daginn fyrir kosningar. Heyrst hefur að Ásdís Halla Bragadótt- ir, bæjarstjóri og efsti maður á lista S j álf stæðismanna, geti þó sjálfri sér um kennt. Þannig hafi hún lagst á fréttastofu útvarps í aðdraganda þess að umræðuþáttur um málefni Garðabæjar var sendur út á Rás 2. Á hún að hafa krafist þess að Sjálfstæðis- flokkur fengi helming ræðutím- ans þrátt fyrir að þrír flokkar væru í framboði og varið drjúg- um tíma í að reyna að ná því fram, starfsmönnum fréttastofu til lítillar ánægju. Að því er kemur fram í Eyja- fréttum er búið að ráða hljómsveitir fyrir Þjóðhátíðina sem að venju verður um Versl- unarmannahelgina. Ekkert er getið um væntanlegan eða hugsanlegan þátt Árna Johnsen, sak- bornings og fyrr- verandi Alþing- ismanans í hátíðar- höldunum. Hitt liggur ljóst fyrir að það verða hljómsveitirnar Hljó- mar úr Keflavík, Land og synir af Suðurlandsundirlendinu, Á móti sól og í svörtum fötum sem verða aðalnúmerin. Hljóm- sveit Birgis Gunnlaugssonar heldur upp dampinum á litla pallinum. Hljómsveitin Buttercup var mikið í fréttum fyrir níu mánuðum eða svo þegar slitnaði upp úr sambandi söngvaranna Vals Heiðars Sævarsson og ír- isar Kristinsdóttur. Sem kunn- ugt er tók íris saman við Egil Örn Rafnsson, trommara sveit- arinnar, og stofnuðu þau nýtt band sem ber nafnið Ber. Butt- ercup er að fara gefa út nýtt lag sem f jallar víst um söngkonuna fyrrverandi og sambandsslitin. Þar er írisi líkt við farandbikar sem gengur á milli sigurvegara. Valur virðist því vera búinn að játa sig sigraðan enda tekinn saman við Halldóru Einarsdótt- ur, einn af þáttastjórnendum Mótors á Skjá 1.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.