Skuld - 12.03.1881, Side 1

Skuld - 12.03.1881, Side 1
Nr. 136. SKULD. 1881. á/Tg-. KAUPMANNAHÖFN, LAUGARDAG, 12. MARZ. 331 r I Dölnnuiu. Eftír A. U. Bcláth. Sem hér á ættjörð þú ekki mátt frá ægisströnd og að fellsbrún hátt minningar heyra málmdjúpt gjalla, og kluknahljóð varla vindur ber of vígðari mold, en einmitt hér, þars Siljan er og elfur falla Vort ættland hlekkjað — sú öx, er gaf þau ötigu högg, er þau bönd skar af, hún dengd var fyrst í Dalafylki, og sinn man Vasa in sænska þjóð svo sem á Móravelli’ hann stóð í Dalakufli, ei konungssilki Og kring um ljómandi lofðung þar er lítill Dalanna flokkur snar, þar er um Vasa hans þekti skari af hetjum röskum frá horfnri tíð, þau hetjunöfnin Saga fríð sveipt hefir leiftrandi ljósafari. En það, sem haft er á lofti lítt, ið langa stríð við túnið grýtt og fátækt göfug, er kann ei kvarta, in mörgu spor fyrir börn og bú, in bernsku-hreina og sterka trú — á einnig sína sögu bjarta. Sú trú, er ríkti í Barbrós barm og bezt nam styrkja Margits arm, er að kjallaradyrum hvolft var sáum, hún oft var treyst á ýmsan hátt, og oft vann sigur, þótt færi látt, um daga þunga í Dölum smáum. í Dalabygðum það dvelur enn það dáðumríka, er kenna’ ei menn, það býr hjá furunnar stofnum sterkum. Og enn í Dölum 'er andi sá, inn öflgi Vasa-dögum frá, þótt ei hann ljómi í annálsverkum. J>ú guð, sem kraftinn og kjark og dug í karlmannshjarta’ og í meyjar hug af þínum anda í þrautum gefur, lát eiga’ í Dölunum ávalt bú þá ætt, er heldur við forna trú og starfa kann þegar stundin krefur. Bertel. 332 Um verzlun. II. [Niðrl.]. Inir eldri þjóðmegunar- fræðingar (Bastiat og allr Manchester- skólinn) voru nidealistar« og eru gagn- stætt þeim yngri kallaðir «abstract« þjóðmegunarfræðingar. Inir yngri eru »réalistar«. »Manchester-mennirnir spekúlera út alt lögmál þjóðmegunar- fræðinnar með því, að ganga út frá nokkrum almennum grundvallarsetn- ingum (»præmissum«) og leiða þar af með ályktunum ýmis almenn og »al- gild« sannindi, og eftir þeim má leysa úr hverju smáatriði (»deduktions«-að- ferð)«1) — Roalistarnir (eða historiski skólinn, sem þeir ýmist eru nefndir í fýzkalandi) vilja hafa andstæða aðferð: þeir vilja grannskoða og kynna sér in einstöku atvik og og ástand bæði nú og fyrri á tímum, þeir ganga út frá inu einstaka, frá fjölda einstakra at- vika og finna þar af almennari lög- mállsetningar, þótt eigi sé »algildar« (»induktious«-aðíerð). Eldri flokkrinn leitar algildra þjóðmegunarfræðislegra náttúrulaga, er um eilífð gildi. Inn yngri flokkr vill kynna sér, hversu til hafi gengið með hitt eðr þetta á þeim og þeim tíma, og vill læra af því, hversu bezt sé að fara að í sömu og spipuð- um tilfellum um næstu framtíð, eins og þá hagar til2.) — Aðalguðspjall og einka-regla Manchester-mannanna er sú, að okki þurfi annað en að létta öllum böndum af atvinnu og viðskift- um og gefa öllum lausan taum („lais- sez-faire, laissez-passer“), þá fari alt fram á réttlátasta og öllum hagkvæm- asta hátt. Dr. Lujo Brentano segir í skopi um þetta: »hver verðr ekki a 'priori hrifinn yfir kenningu, sem að eins með því, að gefa bagsmuna-hvöt- um einstaklingsins (»individuelle Inte- ressen«) lausan tauin, leysir án frekari ómaks eins og með einu töfrabragði öll auðfræðileg vandræði félags-lífsins á þann hátt, er öllum gognir bezt«. John Stuart Mill hefir í sinni ágætu bók „Principles of Political Economy“ (Part Ilnd, Book VR>, Chapt. Xlth, §§ 8—16, bls. 576—606 [7. útg. 1871]) sýnt fram á, að þó afskiptaleysi ríkisins (laisser-faire) só aðalreglan, þá sé margar undantekningar frá henni. I § 12 (bls. 588 íT.)sýnir hann fram á, 1 A(i tield. — 2 Sami. 333 að löggjöfin verði stundum að taka fram í og »takmarka frelsið,« ekki af því, að löggjafarvaldið sjái betr, hvað einstaklingnum hentar, en þeir sjálfir, heldr af því, að þeir fyrir samkeppn- innar sakir fá eigi komið sér við með að koma réttmætum vilja sínum fram; t. d. þar sem fjöldinn getr því að eins komið því fram, sem öllum kemr saman um, að öllum sé fyrir beztu, að allir sé með í samtökunum til til þessa, því þá stendr oft svo á, að einstakir menn hafa stundarhag af, að skerast úr leik og vera ekki með, og drepa með því öll samtökin. — fetta mundi nú ekki geta átt við um fyrir- komulag það, er ég stakk upp á? í § 16 (bls. 606 ff.) sýnir hann fram á, að það tjái ekki að binda stjórn eða löggjafarvald við borð, að taka hvergi þar fram í, sem bezt fœri á í verunni að frjáls samtök vceru viðhöfð. þ>að getr nefnilega verið nauðsynlegt á einum tíma eða hjá einni þjóð, sem óþarft er og ætti ekki við á öðrum tíma eða hjá annari þjóð. Hagr og mentunarstig þjóðanna geta valdið því, að almennar Manchester- reglur, sniðnar eftir »manneskjunum eins og þær vera ættu«, eigi ekki yið hina eða þessa þjóðina, eins og hún ]>á eða þá er. Einkum getr verið nauðsyn á að stjórnin taki þar í taum- ana hjá miðr mentaðri þjóð, sem lengi hefir ófrjáls verið, þar sem ótækt væri að stjórnin tæki fram í hjá vel upplýstri [og auðugri] þjóð, sem fengið hefir langt uppeldi í frelsinu. Skyldi ekki þetta geta átt hér við líka um fyrirkomulag það, er ég hefi fram á farið? Jafnvel þó óg geti ekki sagt eins fortakslaust og séra Arnljótr, að Bastiat og Manchester-mennirnir sé «mínir menn«, þá hefi ég samt ekkert út á frelsis-reglu hans að setja í sjálfu sér eða yfir höfuð. En í þessu efni er ég aðeins hræddr um að hún eigi ekki við, af því ástandið hjá oss sé svo lagað, að það réttlæti fullkomlega und- antekning frá henni í þessu máli. Að ending skal ég geta þess, að það er auðvitaðr hlutr, að ég hefi aldrei hugsað mér, að svo feld lagaskipun, sem ég hefi fram á farið, ætti að vera til langframa. Ég hefi hugsað mér að eftir nokkur ár, segjum 10, 20, mætti

x

Skuld

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skuld
https://timarit.is/publication/109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.