Skuld - 31.01.1882, Blaðsíða 1

Skuld - 31.01.1882, Blaðsíða 1
Árg., 32 nr., kostar 3 kr.; borgist í sumar - kauptíð til Einarsprentara pórðarsonar. Eftir að 3/4 árgangs eru út komnir, gildir eigi uppsögn á næsta árgangi. V. árg. B á r 11« ð u r. Heyri jeg í húmi nætur, hversu báran sáran grætur, þar sem Ijósa laugar fætur lá við aldinn fjörustein; ekkert vinnur böli bætur, báru enginn þekkir mein. Sama er um sorgir mínar, sunnu þegar ljóminn dvínar hjartað rekur raunir sínar, rökkva slær á fölva brá; hjartað stunur þekkir þtnar, þrautum sollin alda blá. Komum þá og kveðum bæði, kveðum langa stund í næði, þú mig vefur þaraklæði, þegar gríma kólnar meir; þó að okkur báðum blæði bezta hvort hjá öðru þreyr. Dimm er nótt og löng unz líður, læðing sviptir dagur fríður, þá er horfinn harmur stríður; hver mun þekkja sollin mein, eða það, sem okkur svíður út við gráan fjörustein? Árni .Tónsson. Nokkur orð um útflutningsgjaldsgreinina í síðsta blaði »Skuldar». Fyrst og fremst álít jeg, að lands- mál vor íslendinga sjeu ekki svo umfangsmikil eða flókin, að alþingi geti ekki ráðið þeim til 'yKta annaðhvort ár á 2 mánuðum; það er auðvitað,efað mörg mál berast þinginu, þáverð- urþingið nákvæmlega, að yfirvega hvað afþeim helzt skuli ganga fyrir, því aldrei eru máliu jafn nauðsynleg. Jeg vil enn fremur leiða athygli al- mennings aö því, að jeg álít að óheppilega hafi tiltekizt í þessum lögum, að leggja útflutn- ingsgjald á jiorskalýsi og eins á sundmaga, þar s em áður var búið að leggja nægilegt gjald á fisk og lirogn. Mjer fínnst líka ójöfnuður í því, að leggja jafnt útflutningsgjald á saltfisk og harðfisk, jmr sem pundið í harðfiski er vanalega miklu dvrara en í sallfiski; það verður því ó- jöfnuður í því, að hafa jafnt gjald á báðum þess- um fiskitegundum. Jeg álít að munurinn á gjaldi af harðíiski ogsaltfiski mætti ekki vera minni en 3 aurar á hverjum hundrað pundum; nú til- taka lögin, að það skuli vora jafnt af saltfiski og harðfiski, 10 aurar af 100 pundum, þetta 18 82. Afgreiðslustofa í prent- smiöju Einars þórðarsonar. Kitstjórnar-skrifstofa: Aðalstræti Xr. 9, opin kl. 4—5 e.ni. hvern virkan dag. Reykjavík, þriðjudaginn 81. janúar. Nr. 142. álít jeg að ætti að jafna þannig: að útflutn- ingsgjaldið á saitfiski af hverjum 100 pundum ekki væri hærra sett en 7 aurar. Menn munu nú segja að þetta gjöri nú ekki mikið til, þótt lögin í þessu tilliti sjeu ekki svo nákvæm, því það jafnist á svo marga. Jeg get ekki verið á þeirri skoðun, því þetta gjald verður full tilfinnanlegt þeim sem það legst á, enda hafa þeirfleiri gjöld að bera; sjá- varútvegsmenn bera þetta gjald, og þeir eru margir fátækir eins og nú stendur, enda hefir ið opinbera enn þá lítið gjört í þá átt, er efla megi atvinnuveg þeirra. Jeg segi að sjáv- arútvegsmenn beri þetta gjald, og það stend jeg við; verzlunarmenn munu segja við sjálfa sig: þeim mun minna verðum vjer að borga fiskinn, sem þessu útflutningsgjaldi nemur og líka þurfum vjer að ná rentum af peningum, er vjer borgum fyrirfram; þarað auki munu þeir bæta þeim kostnaði ofan á, sem leiðir af því fyrir skipstjóra verzlunarmanna, að þeir þurfa að gefa skýrslu um ina útfluttu vöru, er útflutn- ingsgjaldið leggst á. fetta gjald verður því naumast minna á hvert skpund en 60 aur. og ef til vill meira. |>essum lögum verðurþví þörf að breyta, sem fyrst; og skora jeg á Gullbringusýslubúa að yfirvega þetta málefni, og senda um það bænar- skrá til næsta þings. E. Pórðarson. Um síldarveiðina á íslandi. (Þýtt eptir Björgvínarblaði 1881). Af íslenzkri síld var sýnishorn fram- lagt á kauphöllinni í dag; síld pessi var tekin úr „lás“ í Seyðisfirði priðjudaginn í vikunni, sem leið, og hafði að eins verið stráð litlu af salti á hana; kom hún hing- að með eimskipi, er heima á lijer í Björg- vin og sem kom með 1500 tunnur af síld, er söltuð var í lögum og veidd á Seyðis- íirði af Mandalsmönnum. Fyrr í sumar hafa menn frá Haugasundi afiað vel síld á Islandi: In íslenzka síld, sem fram var lögð, var mjög stór, pað er að segja: 33 til 35 centímeter á lengd og 7 til 8 centímeter frá bakugga til kviðugga, og pví stærri en almenn vorsíld eða ápekk norðlenzkri stórsíld (norskri). J>að fara ekki nema um 300 síldar í velfylta tunnu. Að pví er ráðið varð af pessum fáu síldum, er pær voru opnaðar, er hvorki lirogn nje mjólk í síldinni; aftur er nokkur „ístra“ (,,lster“) í henni. Oss er sagt að alt sumarið liati verið firnin öll af síld við ísland; en sakir skorts á nýtilegum veiðarfærum geta 5 landsmenn par. ekki hagnýtt sjer pessi auðæfi hafsins; en hins vegar er pað nokkrum vandkvæðum bundið fyrir útlend- inga að fá að veiða síldina með dráttar- nótum að norskum sið. Að veiða síldina úti á rúmsjó fyrir utan firði og ann-nes er naumast unt, með pví að in dönsku sjó- kort yfir hafið umhverfis ísland kváðu vera ljeleg eða mjög ófullkomin (frönsku fiski- mennirnir hafa frakknesk kort), og svo skortir gjörsamlega inn nauðsyníegu sjó- merki og vita fyrir sjófarendur. 1 ár pegar svo lítið aflaðist af síld í Norgi, hefði ísland getað haft stóreflis hag á síldveiði. Síld sú, sem hingað liefir flutt verið til Björgvínar, gefur aflamönnunum 18 til 20 kr. í hreinan ágóða af hverri tunnu og er pað stórfje. Að danska ríkið virðist gjöra svo lítið til að hagnýta ina miku og góðu veiði sína umhverfis ísland, par sem Frakkar hafa alveg alla porskveiðina og síldarveið- in liggur ónotuð, pað er sífelt ráðgáta fyrir oss Norðmönnum Sumir hafa viljað bera fyrir skort á nægum efnum til að gjöra tilraunir til skynsamlegra fiskiveiða; en fjelag pað, sem Hammer lautenant stýrði, hafði pó næg efni úr að moða. Að pað skyldi vera kunnátta og dugnaður, sem skortir, virðist naumast líklegt heldur, pví bæði Danir og íslendingar hafa komið hingað til Noregs, til að kynna sjer veiði- aðferðirnar, og hafa sannarlega haft full not af ferðum sínum. J>að leiðinlegasta af öllu er, að svo miklar tálmanir eru lagðar í veg fyrir pá Norðmenn, sem leita pangað upp, að marg- ir kjósa heldur að sitja heima. ísafoldai'prentsmioja, lðgin og bæjar- fógetinn. Tilsk. 9. maí 1855 kveður svo á í 1. gr., að á hverju riti, sem út kemur hjer á lantli, skuli standa nafn prentarans. Standi það ekki, eða sje rangt. sagt til þess á einhverju riti, þá varðar það 10—200kr. sektum (í hvert sinn).— Hjer í bænum undir handarjaðri bæjatfógeta, amtmanns og landshöfðingja er einhver sú vera til, sem kallar sig nprentsmiðju ísafoldam; kemur út frá henni margt af blöðutn og bók- um; en á hverju einasta kveri, bók eða blaði, sem frá henni hefur út komið nú in síðustu ár, er brotið á móti þeim fyrirmælnm tjeðrar tilsk. af 9. maí 1855, er kveða svo á, að prent- ari skuli nafngreina sig á riti hverju. Á rit- um þeim, er frá henni koma, stendur að eins, að þau sjeu prentuð «í prentsmiðju ísafoldam. En ekki er þetta þinglýst nafn neins hlutafje-

x

Skuld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skuld
https://timarit.is/publication/109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.