Skuld - 29.06.1882, Síða 1
Arg., 32 nr., lcostar 3kr.;
borgist i sumar - kauptíB til
Einarsprentara pórðarsonar.
Eftir aö 7« árgangs eru út
komnir, gildir eigi uppsögn
á næsta árgangi.
I U L Dl
1882.
Afgreiðslustofa í prent-
smiðju Einars pórðarsonar.
Kit stjórnar-skrifstofa:
Aðalstræti Xr. 9, opin kl.
4—5 e.m. hvern virkan dag.
V. árg.
Reykjavík, Fimmtndaginn 29. júní.
Nr. 155.
bókmentir.
i'VerðantU. — Útgefendur: Rertel E. Ö. Þorleifs-
son. Einnr Hjörleifsson. Gestur
Pálsson. Hannes Ilafsteinn. —
1882". — Kaupmannahöfn 1882.
I>að er vandi nokkur á fyrir oss, að segja
álit vort um þessa nýju -Verðandi". — Annars
vegar er það altnent viðurkend kurteisis-skylda,
að maður á eigi að «kritísjera■> gesti sína ; og
allir útgefendurnir liafa verið gestir vorir í
«Skuld»; sumir þeirra munu enda hafa svo að
segja látið bana •>leiða sig í körinn» (þ. e. birt
hjer um bil það fyrsta eptir sig á prenti í
henni). Við þetta bætist nú, að «Verðandi»,
eins og alkunnugt er, er skilgetin tvíburasystir
«Skuldar». — Hins vegar hefir «Skuld» skuld
bundið sig til, að láta álit í ljósi um bækur og
rit, sem henni eru send í þeim tilgangi. En
einmitt það, að höfundarnir hafa dskað álits
«Skuldar», leysir oss úr vandanum að nokkru
leyti.
Á hverju eigum vjer að byrja og á hverju
enda? Oss dettur ósjálfiátt í hug aldur höfund-
anna. Gestur er fæddur 1852 ogþvínú þrítugur
maður, maður á bezta aldri; hann tók snemma
að yrkja og rita, og má nú ætla, að hann hafi
náð fullum þroska sem maður og ef til vill
sem skáld. — fíertel er fæddur 8. desember
1857 og ’nefir eigi annað sjezt eftir bann á
prenti áður, það oss er kunnugt, en nokkur dá-
snotur kvæði, sum þýdd og sum frumkveðin
«Nönnu» (3. hefti) 1881 og «Skukl» s. á. -
Einar er fæddur 6. desbr. 1859, og mun eitt
það fyrsta eftir hann, sem prentað er, vera sag-
an «Hvorn eiðinn á jeg að rjúfa?», sem kom
út 1880 með «Skuld» það ár, svo og kvæði
«|>jóðólfi» sama ár, og síðar saga ein «Orgelið •>
í «l>jóðólli». Ina síðast nefndu sögu verðum
vjer að játa að vjer höfum enn ekki lesið. Sag-
an «Hvorn eiðinn á jeg að rjúfa ?» hafði ýmsa
þá kosti til að bera, er virtust votta að höf.
hefði glöggt auga fyrir sálarlífinu, og vjer
þóttumst þess fullvissir að höf. væri gott sagna-
skálds-efni. — Hannes er eigi fæddur fyrri en
4. desenber 1862. Hann er þannig að eins 19
ára. l>að, sem fyrst mun hafa birzt eftir hann
á prenti, ætlum vjer sje kvæði í «|>jóðólíi» vor
ið 1880, og minnir oss að oss þætti ekki neitt
sjerstaklega til þess koma. Síðan komu út
nokkur kvæði eftir hann í «Skuld» 1881 og
«Nönnu» (3. hefti) og svo í «Skuld» 1882, öll
snotur, sum ljómandi falleg. Vjer viljum þannig
að eins minna á «Til íslands» í «Nönnu
fegursta kvæði og mjög einkennilegt, «Engilinn
í sömu bók, og svo kvæðin í «Skuld» í vetur,
sem leið, hvert öðru fallegra.
f>egar vjer nú minnumst á «Verð
andi»1 þá ætlum vjer ekki að minnast á innihald
hennar í þeirri röð, sem það er flokkað, heldur
minnast á það fyrir sig, sem er eftir hvern
höfund, og taka höfundana eftir aldri. Vjer
förum og þar að eins og sælkeri, sem geymir
sjer gómsætasta rjettinn þar til síðast, er hann
borðar, svo að hann hafi Ijúffengasta bragðið í
munninum, er hann hættir. Eins ætlum vjer
að enda á Hannesi Hafstein.
Gestur Pálsson hefir ekki birt neitt af
jóðmælum sínum í bókinni, og er þó enginn
efi á, að hann mun ýmislegt þess kyns eiga
hjá sjer, sem vert væri að birta og boðlegt. En
bann hefir «lagt í sumblið» eina sögu, er hann
nefnir «Kærleiksheimilið». ]j>að er nútíðar-
mynd úr sveitalífi á íslandi, er höf. hefir mál
að fyrir oss, og það er trútt teiknað, skarplega
sjeð og skáldlega lýst. Húsfreyjunni á kærleiks-
heimilinu er vel lýst, Önnu eins er mætavel lýst
Presturinn er þó, ef til vill, sú persóna í sög-
unni, sem skáldinu hefir tekizt allra-bezt með.
að er bvortveggja, að Jón er mannskræfa
mikil, eftir því sem hann kemur fram í sög-
unni, enda virðist oss höf. hafa sízt tekizt
raeð hann. Auðvitað er skiljanlegt, hver áhrif
kúgandi uppeldi heíir haft, til að uppræta alla
mannslund og drepa alt þrek hjá honum; en
hinsvegar þyrfti þó mótsögn sú, sem er í þvi
að hann elskar Önnn, og að sú ást er svo
sterk, að hún getur gefið honum þrek til, að
mótsegja móður sinni og skilja reiður við
hana, («hann rjeð sjer ekki fyrir reiði« bls
96.), og svo hins vegar þess, að hann er svo
hræddur við móður sína, og ást hans til Önnu
suo veik, að hann þorir ekki einu sinni að
stelast til á laun að vitja hennar áður en hann
fer til K.víkur, og ekki að skrifa henni þaðan
sú mótsögn þyrfti að minnsta kosti að
mildast á einhvern hátt til að verða skiljan-
leg og náttúrleg. Eins og nú er, sjest ekki
einu sinni að það hafi kostað hann neitt innra
stríð að rjúfa trygð við stúlku, sem hann elsh
ar pó. Að síðustu er að sjá sem ástin til
Önnu sje alveg horfin úr brjósti hans, og það
eins og við kraftaverk, því ekkert kemur fram
er sýni, hverjar eðlilegar orsakir valdið .hafi sv
mikilli breytingu. Vjer getum mikið vel skilið
að í lífinu hefði Jón farið svo að, sem skáldið
lœfcur hann (ara, að hann hefði látið móður
sína ráðríka með aðstoð prestsins kúga
sig til að rjúfa heitorð við Önnu og eiga aðra
stúlku ; vjer getum skilið þetta ; en þá hefðu
kunnugir menn, sem þektu skaplyndi hans og
ástæður allar, vafalaust hlotið að geta gjört sjer
grein fyrir, hvað það var í sálu hans, sem at
1) pótt ótrúlegt ætti að vera, þá hafa eyru vor dag-
lega kent oss, síðan „Ver5andi“ kom út, að það
ekki óþarft að minna fólk á, að ,,Verðandi“ er kvenn
kyns-orð og því óbeygjanlegt.
57
burðirnir einkum verkuðu á þennan hátt á.
>að, sem oss þykir skorta á meðferð skálds-
ins á Jóni, er það, að hann yfirlætur lesaran-
um alveg að fylla út í eyðurnar, án þess að
benda honum nægilega á, hversu hann hefir
hugsað sjer Jón sjálfur. Við það verður
lesarinn að verða liöfundur talsverðs hluta úr
sögunni, ef hún á að verða nokkurnvegin full-
sögð saga. Alt um þetta er sagan, eins og
hún nú einu sinni er orðin, góð saga, skáld-
lega hugsuð og vel sögð yfir höfuð. J>essi
frumsmíð höfundarins er því lofandi vottur um»
að vænta megi fleira fagurs og vandaðs sögu-
smíðis frá hans hendi, ef hann vill lialda lengra
þessa stefnu, sem oss sýnist óefað að hann
ætti að gjöra, því að sagnaskáldskapurinn
irðist liggja vel fyrir gáfu hans. — Málið á
sögunni er látlaust og náttúrlegt. J>að er engan
veginn til að lýta höfundinn, þó að vjer bend-
um honum á eina óhappalega setningu í sög-
unni, heldur gjörum vjer það að eins til að
vokja árvekni hans. Á 88. bls. stendur:
Anna undi sjer vel á Borg; pað var auðvitað
f pví, að henni hafði tvisvar sinnum boðizt
vist og betra kaup, en hún hafnaði öllum
líkum boðum». Eins og orðin nú liggja, þýða
)au, að orsökin til þess, að Anna undi sjer vel
á Borg, var sú, að henni hafði tvisvar boðizt
ibnnur) vist og betra kaup, en hún hafnaði
boðinu. Höf. hefir þó auðsjáanlega ætlað að
egja allt annað, nl. að Anna undi sjer vel á
Borg; og af því (o: að hún undi sjer vel)
kom það [ekki að henni hafði boðist vist, sem
íún hafnaði, heldur] að hún hafði tvívegis hafn-
að betri vist, sem henni hafði boðizt. £>etta er
auðvitað ekki nema ógát; en það óprýddi þó,
ef mikið væri af slíkum formgöllum; en það er
ekki svo sem það sje, og því bendum vjer að
eins á þetta sem einstætt sjer.
Bertel Porleifsson hefir orkt allmörg kvæði í
«Verðandi». fað má finna mörg skáldleg og
velkveðin vísuorð í kvæðum þessum, sumstaðar
dásnotrar hugsanir, enda jafnvel heil erindi vel
kveðin; en flest er það smámunir, og ekkert
aí kvæðunum er heilsteypt listaverk; ekkert af
jeim það afbragð, er með vissu votti, hvort
)öf. muni vera sannlegt skáld eða ekki. Um
formið er honum mjög örðugt; og aflagar það
stundum hugsunina eða gjörir hana þvingaða
og óljósa, hve örðugt höf. hefir veitt að búa
hugsun sína sýnilegri eða rjettara sagt heyran-
Legri mynd. Hvort þetta komi af því, að höf.
sje eiginlega ekki Ijóðskáldsefni, eða af því að
hann sje ungur og óvanurj enn og standi til
bóta, verður varla um dæmt af því, sem hjer
liggur fyrir eflir hann. feim, sem þekkja nokk-
uð sjálfan höfundinn, mun næst að ætla ið
síðara. Að minnsta kosti þykir oss ekki vafi
á, að Bertel hafi nokkra *venam poeticam«
(skáld-æð); hitt þykir oss vafasamara, hvort