Skuld - 05.09.1882, Qupperneq 1

Skuld - 05.09.1882, Qupperneq 1
Arg., 32 nr., kostar 3kr.; borgist í sumar - kauptíÖ til Einars prentara pórðarsonar. Eftir að 3/4 árgangs eru út komnir, gildir eigi uppsögn á næsta árgangi. K U L D SJ 18 82. Afgreiðslustofa í prent- smiðju Einars pórðarsonar. Kitstjórnar-skrifstofa: Aðalstræti Nr. 9, opin kl. 4—5 e.m. hvern virkan dag. V. árg. Reykjavík, |>riðjmlagiim 5. september. Nr. 161. Uin óskilabrjef. Það er í öllum löndum talsvert af brjefum, sem send eru með pdstum, en komast, aldrei til skila til viðtakanda. petta ber við hjer sem annarsstaðar. pegar brjef keinst ekki til skila, er það ýmist af því, að viðtakandi finst eigi eftir utanáskriftinni — annað hvort, af því hún er svo óglögg, að t. d. strætis-nafn og hústölu vantar á brjefið, ef viðtakandi býr í borg, póststöð eigi er til greind, ef í sveit er, eða viðtakandi er fluttur í burtu, þá er brjefið kemur fram — ýmist aftur af því, að brjefið er ekki frímerkt, en viðtakandi neitar að greiða burðargjald. En hver sem orsökin er, þá er hitt regla bæði hjer og annarsstaðar, að póst stjórnin lýsir óskilabrjefunum; gangi þau þá eigi út, eru þau eftir ákveðinn tíma opnuð af þar til kvöddum mönnum, og gætt að nafni og heimili brjefritarans, og svo er honum endur- sent brjefið, ef hann finst. Nú er það siður erlendis, að utanáskrift brjcfanna er fýst, eigi á pósthúsinu að eins, heldur í þeim blöðum, er flytja almennar aug- lýsingar; sumstaðar er lýst einu sinni í mán uði, sumstaðar 4 sinnum á ári óskilabrjefum á þennan hátt. Ganga þá oft mörg út við það en hin eru þá opnuð og endursend. Hjer er þetta ekki svo haft, heldur er íslenzkum óskila- brjefum að eins lýst með auglýsing, sem hengc er upp á pósthúsinu í Reykjavík. En slíkar auglýsingar lesa menn ekki; af því kemur það að brjef til manna, sem eru hjer í bænum og í grend við hann, komast stundum ekki til skila, auk heldur þá brjef til ýmsra út um land Vjer höfum með eigin augum sjeð brjef, sem senda hefur orðið til höfundanna aftur, þótt, undir þau hafi verið fullborgað, og vjer höfum þekt mennina, sem þau voru til, og enginn efi gæti leikið á, að þeir mundu hirða þau, ef þeir vissu af þeim. En þcir hafa ekki lesið auglýs- ing þá, sem límd hefir verið á vegginn á póst- húsinu, enda eru margir, sem sjaldan eða al- drei koma á pósthúsið, nema þegar póstar eru að koma, og þá er ösin oft svo mikil þar að eigi er til að hugsa að menn gái að aug lýsingum þar. pað er ekkert efamál, að fleiri brjofgengju út, eða kæmu til skila, ef auglýst væru í blöð unum, að minnsta kosti í «J>jóðólfi», t. d. 4 sinnum á ári óútgengin brjef. petta er regla sem fylgt mun vera í öllum siðuðum löndum nema íslandi, og vonumst vjer svo góðs til landsstjórnar vorrar, að hún taki þessa bending til greina og láti auglýsa brjef þau, or eigi komast til skila. Vjer vildum líka gefa almenningi dálitla bend- ing i þessu efni. Engum mun það kært, að óviðkomandi En það var ekki eingöngu til landsstjórn- innar, að vjer ætluðnm að beina þessu máli menn þurfi að opna brjef þeirra, hversu vand- aðir menn og þagmælskir, sem til þess eru kvaddir. pað fer margt í brjefum, sem engurn er ætlað að sjá, nema þeim, sem brjefið er til. En hjá því má komast, að opna þurfi brjef, sem eigi kemst til skila, til að sjá hver sent hefir það. Einfallt ráð til þess er, að brjefrit- nn setji nafn sitt og heimili (og póstslöð) utan á hrjefið, annað hvort í hornið eða þvers um á endann utanáskriftar-megin eða þá hins vegar. J>annig fara og margir að í Ameríku; menn eru «praktískir» þar í þessu sem öðru. >ar fást hvervetna keypt umslög, sem prentað er þvers um endann á: «1. n. d., return to . . .» eða: «1. n. d. within . . days, return to............» «1. n. d,» er skamm- stafað fyrir: «If not delivered»; og þýðir þetta: «Ef eigi skilað, endursendist...........» eða: «Ef eigi skilað innan . . daga, endursendist ............» í stóru eyðuna getur þá sá, sem sendir brjefið, sett nafn sitt og heimili; í litlu eyðuna (þegar hún er höfð) setja menn þá dagatal, t. d. «20», og sje brjefið þá eigi komið til skila innan 20 daga frá því, er það kom á síðustu póststöð, verður það endursent þegar brjefritanum aftur. Alenn geta haft þann frest lengri eða skemri eftir vild, eða alveg slept honum. Hann er helzt notaður, er manni liggur á að vita, ef brjefið kesnst eigi brátt til skila, og getur oft staðið svo á, að manni sje ekkert gagn að því, að brjefið komi til skila nema það komi fljótt. — Sá, sem þú skrifar brjef, getur verið dáinn, áður brjefið nær til hans; þjer er ekki um að aðrir lesi það; þá er vissast að setja utan á nafnið þitt, svo að þú fáir brjefið óuppbrotið aftur. Plf nú t. a. m Pjetur Pálsson í Möðrudal á Fjöllum vill senda unnustu sinni Guðrúnu Jónsdóttur, sem er t. d. á kvennaskólanum á Laugalandi í Eyjafirði brjef, en vill vera viss um, að það gangi óuppbrotið beint til sín aftur, ef hún skyldi vera dáin, eða farin etthvað burtu, og hann fylgdi ráði voru, þá setti hann nafn sitt og heimili og næstu póststöð (Grímstaði) þvers á enda umslagsins, og gætti þoss líka að setja næstu póststöð við Laugaland (Akureyri) á brjefið, og liti það þá svona út: Vjer viljum ráða mönnum til að fara að tíðka þessa aðferð. fað væri enda nóg, að setja hornið eða á endann «Frá N. N.1 á N. [N.]», )ví að þá er óþarft að láta opna brjefið, til að sjá, frá hverjum það sje. J>að er gott að byrja og enda á góðu. Vjer byrjuðum á landsstjórninni. Megum vjer ekki enda á henni líka? í reglugjörð þeirri, er landshöfðingi befir samið fyrir skattanefndir (15. maí 1878) og prentuð er bæði sjerstök og í Stj.tíð., stendur «við 11. gr.» meðal annars: «Eigi sá, sera á tasteign í hreppnum . . . heima utan lirepps, sltal skýra skattanefndinni þar, sem hann á heima, tajarlaust frá pví, í síðasta lagi með nœstu póstferð eptir að búið er aðsemja skrána«, o. s. fr. — En hjer er sá haki við, að skatta- nefndir eru eigi nefndar meðal þeirra, er nota megi þjónustu-frímerki og eigi má heldur flytja til þeirra brjef með pósti ófrímerkt, þannig að utan á sje ritað «fyíirskipað erindi» eða «heimtuð skýrsla». Skattanefndarmenn vilja, sem vonlegt er, ekki borga úr sínum vasa burðargjald undir skattaskýrslur; afleiðingin er, að ö 11 slík brjef frá einni skattanefnd til annarar eru send ófrí- merkt; skattanefnd sú, sem skýrslan er til, neitar að borga burðargjaldið og fær svo eigi skýrslur þær, sem hún á að fá. Öll brjef frá einni s/fattanefnd til annarar, sem innihalda fyrirskipaðar skýrslur, verða pannig að óskila- brjefum. Bókstafur reglugjörðarinnar er upp fylltur, því skýrslurnar eru sendar með fyrsta pósti. En þær eru sendar ófrímerktar og koma því aldrei (og geta aldrei komið) til skila. Ilvað verður svo af anda fyrirmælanna? Ilonum lofar landstjórnin að eiga sig. — Bókstajurinn er upp fyltur — og þá er nóg! Einnig hjer þarf lagfæringar við,'ogvonum vjer að landsstjórnin kippi þess nú í liðinn, þá er vjer höfum vakið athygli hennar á þessu. Að koma því til leiðar, sem betur má fara, bæði hjá landsstjórn og almenningi, er eini til- gangur þessara lína. H '5 -§'*§ S-E Vngismær (iuðrún Jónsdóttir Laugalandi [Akureyri]. CÉ'fT All'atnaður (jakki, vesti og buxui) á 25, 30, 35 og 40 kr. Jakkar á 15 kr. Úr ensku efni, selst eftir teknu máli, ogafgreiddáfáum dögum. Rvík. ®/9—82. w * t Ain? F. A. LOVE. Eyjai'irði, 14. júlí. — Hjer er alla tíð frá páskum allur sjór þakinn hafís, dæmafár kuldi í veðrinu og grasleysi á jörðinni. Húsavik (J>ingeyjars.) 19. júlí. — Sama kalsa- og úrkomutíðin, sem verið hefir í alt vor, helzt enn, sem von er, þar sem ísinn nú á ný er orðinn landfastur austur fyrir Flatey og skipa- ferðir bannaðar af ísalögum fyrir Langanes, þá seinast frjettist fyrir skemstu. — Mesta bág- l)N'áttúrIega á að setja fult nafn manns og bæjar fyrir „N. N.“ o. s. fr. „E. e. k. t. sk.“ pýðir: „Ef eigi kemst til skila“. 81

x

Skuld

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skuld
https://timarit.is/publication/109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.