Máni - 23.07.1880, Síða 1

Máni - 23.07.1880, Síða 1
1390. M Á N L 13» Reykjavík, 23. júlí. Piskveiðar Færeyinga. í 15. tölubl. «Fröða» stendur grein um fiskveiðamál Fœreyinga Og bréf lögþingsins á eyjunum til danska dómsmálaráðgjafans, dag- sett 15. sept. 1879; hefir lögþingið í bréfi þessu beðið dómsmálaráðgjafann að sjá svo til, að amtmenn á íslandi staðfestu eigi fiskveiðasamþykktir sýslunefnda, er verið gætu Færeyingum eða öðrum dönskum þegn- um til tálmunar. J>eir kvarta undan sam- þykktum þeim, er gjörðar bafa verið í ísa- fjarðarsýslu og amtmaðurinn í Vesturamtinu hefir staðfest, nefnil. að banna, að hafa síld til beitu frá 1. apríl til 15. maí, að fiskur sé afhöfðaður og slægður ísjóinnfrál. okt. til 1. apr. og skelfiski sé beitt frá 1. des. til 1. maí. fettaskaðar reyndar eigi fiskveiðat'Færeyinga hér, þar eð þeir eru eigi hér við land um þann tíma, og hafa enn aldrei verið fyrir Vestur- landinu, en þeim þykja þó lög þessi benda í ískyggilega stefnu. Einnig hafa þeir á móti því að staðfestar séu samþykktir um að banna að leggja lóðir vissa tíma, er nú munu þó flestir vermenn sjá, að öll þörf er á. «Fróði» telur það víst, að dómsmálaráðgjafi Dana, herra Nellemann hafi skrifað lslandsráðgjafanumt herra Nellemann um þetta efni, en hann apt- ur borið það mál undir álit landhöfðingja og landshöfðingi undir álit amtmanna, en óvíst sé enn hvað þessir embættismenn hugsi eða riti um málið. Vér hljótum að ímynda oss, að þessir háu embættismenn vorir vísi þessu máli frá sér til næsta alþingis, því hverju á alþingi fremur að skera úr, en slíku máli og þessu? þ>að eru nú liðin 8 ár síðan, að Færey- ingar fóru að stunda fiskveiðar hér fyrir austurlandi; aðalstöðvar þeirra hafa verið á Seyðisfirði; hafa þeir sent skip sín á stað í 89 júlímánuði og látið þau vera hér við land fram í septembermánaðar lok og fengið opt- ast góðan afla og kynnt sig vel við lands- menn þangað til nú, að þeir hafa vakið upp þ>ránd í Götu, lögþingið, til að blanda sér inn í löggjafarmál vor, er vér og hver sann- ur íslendingur hlýtur þó að álíta öldungis ótilhlýðilegt, því Færeyingar þótt þeir séu voldug þjóð, munu eigi síður en aðrir verða óþokkasælir, ef þeir eigi hlýðnast lög- um og landsrjettindum, og sannarlega mætti þá kalla horfið hið forna skap íslendinga, ef þeir sætta sig við það, að Færeyingar vaði yfir höfuð þeim og gjöri þá að duggara- frændum sínum. Vér íslendingar höfum á- litið Færeyinga sem frændur vora, og sem þegna sama konungs, fyrst Norðmanna og síðan Dana, skoðað þá sem bræður vora, niðja hinna göfugu feðra vorra, Norðmanna, og samhliða oss í sögunni, en nú á seinni tímum höfum vér þó haft lítil skipti við þá, eða þeir við oss, enda hafa þeir um langan aldur, eigi síður en vér legið í dvala, hlekkj- aðir fjrrir utan dyr hins menntaða heims. Nú fyrst eru þeir að rakna við aptur, og í ýmsu hefir hagur þeirra batnað á síðari ár- um, en nú ætla þeir að láta til sín taka hér, og rífa niður það sem vér byggjum með því að blanda sér inn í lög og samþykktir vor- ar, eins og áður er greint. Hvert mundu íslendingar voga sér slíkt á Færeyjum? Gagníræðiskóli á að verða byggður í sumar á Eyrarbakka, og hefir sýslan lagt þar til 1000 krónur; hann á að standa á Skúmstöðum (rétt við verslunarhúsin) þar sem barnaskólinn hefir verið áður, og mun jafnframt eiga að verða barnaskóli og al- þýðuskóli. Tvö undan farin ár hafa verið 90

x

Máni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Máni
https://timarit.is/publication/111

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.