Fróði - 06.03.1880, Blaðsíða 4
6. bl.
F R Ó Ð I.
1880
70
71
72
ÍJtlendar frjettir.
(Frá tíöinduntara vorum í Kmh )
(Framliald.)
Á Frakklandi var sem kunnugt er
Grevy kosinn til iorseta 30. jan. í fyrra.
Skömmu sfðar varð Waddington forseti í
ráðaneytinu,.er liafði staðið áður fyrir utan-
ríkisstjórn, þegar Dúfaure var ráðaneytis
forseti. Fyrir kirkju- og kennslumálum
hjá Waddington stóð Jules Ferry. flann
lagði ný kennslulög fyrir þingið, sem
voru einkar frjálsleg, en mættu þó ákalri
mótstöðu jafnvel hjá sumum þjóðveldis-
mönuum, einkum út af einni (1.) grein
þeirra, sem fór fram á að banna Jesúít-
um að halda skóla til uppfræðingar ung-
mennum Flestum af glæpamönuunum
lir Parísaruppreistinni var geOð heimfarar-
leyfi og mörgum einvaldssinnum vikið
úr embættum. En svæsnustu vinstri flokk-
unum þótti þetta sumpart ekki nóg og
sumpart nokkurs konar hálfvelgja i öllu,
sern Waddington gerði, svo að endirinn
varð, að hann sagði af sjer og nokkrir
aðrir af ráðaneytinu, sem honum stóðu
iváuast. 29. des. var myndað nýtt ráða-
neyti, og heitir sá Freycinet, sem fyrir
því er. Hann var áður í ráðaneytj
Waddingtons fyrir vega- og vinnumálum,
og er aldavinur Gambetta. lláðaneyti það,
sem hann nú stendur fyrir, er að mestu
leyti tekið úr þeim tlokki, sem Gambetta,
er nú er forseti þingsins, hefir að fylgdar-
mönnum í öllu. Sá atburður ætti og lik-
lega að teljast hjer með, að Napóleon,
son Napoleons keisara þriðja, fjell suður
í Alríku fyrir Zúlúum, ungur að aldri,
er haun vildi vinna sjer til fjár og frama
með Englendingum. Keisarasinnar á
Frakklandi ákváðu þá Napóleon »keisara-
frænda«, sem koin til Islands um árið,
næstan til rikiserfða, en hann hafði áður
verið svæsnasti þjóðveldismaður og eink-
anlega andstæður kaþólskum, svo að
margir af keisarasinnum vildu ekkert hala
með hann að sýsla. Nú hefir hann snú-
izt og lofað bót og betrun, ef þeir vildi
halda lionum fram, en sagt er að stjórn-
in frauska vilji svara með því að gera
hann útlægan, sem aðra þá er steypa
vilja stjórn og lögum, t. a. m. greifann
af Chambord og fl. — Annars hafa Frakk-
ar lítinn þátt tekið í málum annara þjóða,
þó liafa þeir lagzt á eitt með Englend-
ingum að koma lagi á fjárhagsstjóm
Egypla. og komið þó fyrir lítið. Ismail
jarl var sóari hinn mesti og svaliari, og
rak því burtu þá Blignieres og Wilson,
sem reyna áttu að koma lagi á fjárhag-
inn af hendi Frakka og Engleudinga.
Eudirinn varð sá, að hvorirtveggju lögð-
ust á eitt, og fengu soldán til að setja
ismail af, er hann vildi ekki fara með góðu
og setja 'J'evvik son hans í stað hans.
Ismail steig þá á skip með konur sínar
og ærna fjármuni í gulli og silfri, og fór
til Neapel á Ifalíu og lifir þar nú hinu
mesta býlífi.
England liefir haft mörgu að sinna
arið sem leið. Fyrst í byrjun ársins áttu
þeir í ófriði við Schir Ali I Afghauistan,
en Afganar Diðu hvern ósigurinn á fætur
öðrum, og Ali andaðist 21. febr , og varð
þá engin mótstaða lengur. Siðan var
friður gjör i Gandamak (25. mai), og
Jakub khan, varð Emir eptir föður sinn
látinn. Hlnglendingar skyldu mega hafa
erindsreka sinn í Kabul, höfuðstað Afgana,
og var til þess nefndur Cavagnari hers-
höfðingi og fengin sveit manna til fylgd-
ar. Allt gekk vel í fyrstu; Cavagnari var
tekið með mestu virktum í Kabul, en
bráðum fór þó að brydda á úlfbúð með
Afgönum, og 3. sept rjeð fjöldi inanna á
húsíð, sem Cavagnari bjó í með sveit
sína, og drap hann og alla sveit hans
eptir ágæta vörn. Einn af þjónmn Ca-
vagriari komst þó nndan og sagði Eng-
lendingum tiðindin. Jakub khan var þá
í Kabul og annaðbvort gat ekki við raðið,
eða hirti ekki. Englendingar sendu þeg-
ar Boberts hershöfðingja með her manns
á hendur Afgönum. [>eir gerðu rnótstöðu
mikla, en Roberts vann ávallt sigur og
náði að lokum Kabul. Cppreistarmenn
voru margir drepnir og Jakub khansett-
ur af og fluttur til Indlands, því það
reyndist, að hann var sekur að miklu
leyti. I byrjun desember risu Afganar
upp að nýju undir forustu þess manns,
er .Mohamed Jan hjet. Bann rjeð á Kabul
með sveit sína, og Iloberts hafði ekki
liðsafla við, einkum þar sem bæjarmenn
voru mjög ótrúir, og Ijet því undan siga
til rammgirtra víggirðinga í hjeraðinu
Sherpur. Afganar skáru sundur alla raf-
segulþræði, og Engleudingar ætluðu nú,
að úti væri um Iloberts og her hans
þeir sendu þá þann hershöfðingja, er
Gough heitir, inn i landið, og rjett fyrir
jól lagði Ruberts til orustu við Afgana og
vann algerðan sigur. Síðan sameinuðu
þeir Gough herflokka sína, og hefir síðan
ekkert brytt á Afgönum. I Zúlúlandinu
áttu og Englendingar í ólriði við konung
þann, er Cetewayo hjet. Yfirherforingi
Englendinga þar hjet Chelmsford lávarð-
ur. Hann fór framan af halloka fyrir
Zúlúum, en loks vann haun fullkomiun
sigur á þeim við Dlundi, og litlu síðar
var Cetewayo tekinn höndum af Wolseley
hershöfðingja, sem settur var i stað
Clielmsfords, og fiuttur til Caplandsins.
Zúlúlandi var skipt í 13 smáríki, og
skyldi innfæddur höfðingi stýra hverju
þeirra; enskan erindsreka skyldi og hver
höfðingi verða að hafa hjá sjer. — Nú
sein stendur eru hollenzku bændnrnir
(Boers) mjög óánægðir með yfirráb Eng-
lendinga i Natal og Transwaal, og er
buizt við uppreist af þeim á hverri stund-
inni. — Nú er og mikið uppþot á Ir-
landi gegn jarðeigendum. Sá heitir
Parnell, sem fremstur er í uppþoti þessu.
Allur þorri Ira, einkum hinna fátækari
manna, er með í þessu, og gengur
stjórninni ensku illa að bæla uppþotið
niður. — Nú í byrjun þessa árs varð
hræðilegt óhapp á Skotlandi. Brúin yfir
Thay-flóann, sein var einhver lengsta brú
í heiini og mesta meistaraverk, brast i
miðjiinui, þar sem hún var úr járni,
einmitt þegar járnbrautarvagnar fóru yfir
'hana; þetta var í ofsa-óveðri og týndist
þar, menn og vagnar. Um 80 manns
Ijezt þar.
Á Spáni hefir lítið borið til tíðinda,
nema helzt það, að Alfons konungur hefir
kvænzt að nýju. Drottning hans heitir
nú María Iíristín af keísaraættinni úr
Austurríki. Brúðkaup þeirra fór fram í
Madríd 29 nóv. — 30 des. voru þau hjón-
in að aka í vagni um stræti borgarinnar,
og var þá allt í einu hleypt á þau úr
skammbissu hvað eptir annað, en hitti
ekki. Sá heitir Otero Gonzales, og er
bakarasveinn, sem þetta gerði.
Á Italíu hafa einlæg ráðgjafaskipti
orðið. Nú er þó líklegt að þeim fari að
linna, þvt báðir foringjarnir fyrir vinatri-
fiokkunum, Cairoli og Depretis, hafa sæzt
og myndað ráðaneyti í sameiningn.
Af Rússlandi hefir lítið verið aon-
að frjetta en brennur og morð «Nihilista»
og ofsóknir gegn þeim. Menn eru hrönn-
um saman drepnir, eða reknir í þrældóm
til Síberíu. En þó er ekki að sjá að Nihil-
istar bili að heldur. 2 des. kom Rússa-
keisari með fylgd sína til Moskau með
járnbrautarvögnnm. Rjett í því að fyrstu
vagriarnir vorn að nema staðar, vorti öpt-
ustu vagnarnir sprengdir i lopt upp. Með
þessum vögnum var keisari og fvlgd hans
vön að aka, en nú í þetta skipti hafði
verið breytt um og fluttur farangur í þess-
um vögnum, svo að tílræðið skaðaði eng-
an. Ekki er enn uppvíst, hverjir þetta
liafi gert.
í Danmörk hefir lítið til tiðinda orð-
ið, nema helzt deilnr vinstriflokkanna á
þingi og utanþings, en þar er fijótt yfir
sögu að fara, því al|t stendur við sama
enn. Veturinn hefir verið mjög harður
framan af ineð megnuin frostum. Um
jólin kom loks bloti nokkur, og liefir síð-
an verið milt veður. — Um jólin og ný-
arið byrjaði rimma mikil í blöðunum í
bundnum og óbiindnum stýl milli eldri
og yngri skálda og vísindamanna hjer í
Danmörku. Af hinum eldri er Ploug rit-
stjóri einna fremstur, en af hinum skáld-
in dr Schandorph og Holger Drachmann,
og eru hvorirtveggju næsta harðorðir.
Khö/n, 16 janúar 1880.
— Seldar óskila kindur í Öngulstaða-
hrepp haustið 1879 :
flvítur lamhrútur, mark: heilrifað vinstra.
—-----------miðhlutað eða heilrif-
að, bragð apt. hægra, sneitt apt. vinstra.
Ilvít lambgimbur: háift af fr. hægra, sýlt
biti apt. v.
Hvit lambgimbur: stýft h., hvatt v.
(soramarkað).
2 hvítir lambgeldingar: sneiðrifað fr. h.,
geirstýft v.
Hvítur lambgeldingur: blaðstýft eða vagl-
skorið fr. h., sama mark apt. v
Svört ær tvævetur: hangfjöður apt. h.,
biti fr. v.
Laugalandi 5 febr. 1880.
Jóu Ólafssou.
Misprentab í sdbasta bl. „FRÓÐA* 58. dáiki
Helga Giibmuudsdóttir á afc vera Helga Gunnlögs-
dúitir
— Næsta blað 16. þ. m.
Ótgefaudi og prentari: Björn Júosson.