Fróði - 04.12.1880, Síða 1

Fróði - 04.12.1880, Síða 1
& / F R 0 I. ÁR. 27. blað. Akureyri, laugardaginn 4. desember 1880. 313 N o k k u r alþingismál. Eitt af liinum lielztu umhugsunar- efnum pjóðar vorrar á pessum vetri og á komanda vori verður pað. hver atriði í löggjöf og stjórn landsins einkum purfi að toka til athugunar, umræðu og að- gerða á alpingi hinu næsta, er væntan- lega kemur saman i Reykjavík fyrsta dag júlímáuaðar í sumar. fJað eru nú raunar 7 mánuðir pangað til hinir ný- kosnu alpingismenn ganga á rökstóla, svo mörgum kann að pykja, sem allur dagur sje enn til stefnu að hugsa um alpingismálin, ræða um pau á fundum og rita um pau í blöðiun; en „ekki er ráð nema í tíma sje tekið11, og pegar pess er gætt, hvað landið er stórt og strjálbyggt, og hversu seiut allar milli- ferðir ganga úr einum fjórðungi lands í annan, sjer í lagi að vetrinum til, pá , er auðsætt, að eigi veitir af tímanum til að undir búa pingmáhn. En „pað er svo margt ef að er gáð, sem um er pörf að ræða“, að pað er eigi vinnandi vegur fyrir næsta ping að taka fyrir öll pau mál, sem pó má með sanni segja, að nauðsyn beri til að ræða um á pingi og gera ákvarðanir um. Menn verða að reyna til að vinsa úr pau allra nauðsynlegustu og leitast svo við að koma sem beztu lagi á pau, en láta hin bíða, sem fremur poia bið. Á fyrirfarandi pingum hafa verið tekin { iyrir allt of mörg mál, ileiri heldur enn pingið hefir komizt yfir að rannsaka og ræða til lilítar; hetii- petta tatið mjög fyrir pinginu og valdið pví, að færri mál hafa orðið fullrædd enn ella mundi orðið haía, og pau, sem útrædd haiá orðið að nafninu, hafa sumhver eigi ver- ið svo vandlega og vel rannsökuð, sem æskilegt hefði verið. jpingið má ekki hugsa um að smíða sem tíest lög í einu og sem mest að vöxtunum til, lieldur verður pað einkum að reyna að semja í hvert skípti góð og hagkvæm lög um nokkur pau atriði, sem pá er brýnust; pörtin að koma betra skipulagi á. Eyrsta 1 lóggjaíarpingið 1875 koin betri skipun . á heilbrigðismálin; skipun lækna og yfir-1 setukvenna var komið í polanlegt horf,' eptir pví sem ætkzt verður til að svo { koin»u. J>ingið 1877 lagaði hin gömlu og ósanngjörnu skattalög, ogpingiðl87h gaí sig einkum við að koma betra lagi á prestaskipuniaa og yms kirkjumál. J>ótt nú ekki pessara mála pyki ef til vill komið í sem allra ákjósanlegast 314 ! horf, pá mun pó ölium koma saman j um, að mikil bót hafi verið ráðin á helztu göUunum, er á voru, og pví sýnist rjett- ast, að láta pessi mál nú í bráðina sitja með pá umbót, er pau hafa fengið. það eru svo mörg önnur málefni fyrir hendi, sem eigi mega bíða lengur bóta- laus, svo sem pau er miða beinlínis til pess að efia almenna fræðslu og menntun í landinu, bæta búnaðinn og aðra at- vinnuvegi, gera viðskipti manna og verzl- un hægri og greiðari, koma á betri dómaskipun og embættaskipun og að laga sveitastjórnarlögin og stjórnarskrána. þó pessi upptalning sje eigi löng, pá innibindur hún i sjer meira enn svo, að næsta ping fái tekið yfir að ráða fullkomna bót á öllum peim brestum, er á pessum málum eru. En pótt eigi sje hugsanda til pess á næsta pingi, pá er nauðsynlegt að pjóðin og pingmenn hennar hafi vakanda auga á málunum, reyni að gera sjer ljóst, hvernig hezt verði að peim hlynnt með lögum, og að menn greiði sem mest fyrir pví með ritum og ræðum, sem málunum eru til veru- legrar skýringar, að peim verði sem fljótast og hyggilegast skipað með lögum. Menntun alþýðu álítuin vjer vera pað mál, sem fyrst og fremst allra mála parf öflugra aðgerða frá pingsins hálfu. |>að er hvorttveggja að öll börn í landinu eiga jafnt tilkall til pess að pjóijelagið styrki til að pau læri allt hið nauðsynlegasta, er pau læra purfa til pess að geta sæmilega staðið í stöðu sinni síðar meir, pegar pau eru komin af barnsaldrinuin og orðið uppbyggilegir menn í landinu; enda eru pað á hinn bóginn hreiu og bein stjórnarhyggindi, að gera allt, sem í valdi pings og stjórnar stendur, til pess, að hver og einn iands- manna verði pví vaxinn að gegna sem bezt köllun sinni. Að undanförnu hafa allir peir, sem gengið hafa í latínuskóla, prestaskóla og læknaskóla fengið að öllu leyti ókeypis tilsögn og meiri íjestyrkað auki af landsjóði. Hati pað nú verið skylda eða nauðsyn fyrir pjóðijelagið að leggja út pennan kostnað, pá mun pað, ef rjett er álitið, engu síður skylda eða nauðsyn að kosta kennslu annara ung- linga í landinu af hinum sama sjóði. Embættismannaefni gátu sannarlega ekki átt meiri heimting á kennslustyrk erm bændaefni af peirri ástæðu, að embættis- mannastjettin gildi meira til landsjóðs enn bændastjettin, pví öllum er kunnugt, að embættismenn liafa verið undan pegn- ir sköttuin til alji’a síðustu ára; oghvað 315 nauðsyninni við víkur, pá liefir hún aldrei verið og verður aldrei minni. að hafa góða bændur í landinu heldur enn góða embættismenn. þá er búnaðurinn næsta mál a dagskrá vorri. Búnaðarlög lianda land- inu hafa nú verið undir búin í nefnd. er samið hefir frumvörp til allmikils laga- bálks, og málið síðan lagt fyrir efri deild alpingis í fyrra, sem yfir fór og ræddi til fullnustu fyrir sitt leyti nokkurn kafla pessa umfangsmikla máls, en í neðri deild pingsins varð hann eigi rannsakaður og ræddur til hlítar fyrir tímaleysi. |>essi búnaðarlagapáttur, sem einkum er um skyldur landsdrottna og leiguliða hvorra við aðra, ætti að geta orðið fullsaminn á næsta pingi, og svo lög um landa- merki, sem neðri deildin undir bjó í fyrra, en efri deildina vantaði tíma til að út- kljá. Ta>kist nú pinginu í suinar að semja hentug og sanngjörn lagaboð um pessi efni, pá er pað góð lagabót. Að áhti voru á pingið einnig að róa að pví öllum árum, að sem flestir bændur geti orðið eigendur ábýlisjarða sinna, pvi pað er hinn líklegasti vegur til pess að jarðrækt og búnaði yfir höi- uð, sem er helzta máttarstoð veliuegun- ar landsins, fari verulega fram. J>að er ónýt ástæða, sem menn opt hafa heyrt móti pví að fjölga óðalsbændum, að leiguhðar sitji jarðirnar engu siður að jafnaði enn eigendur. þó dæmi finnist til pessa, og p® pað jafnvel kynui að vera almennt meðan allur porri bænda fyrir skort á menntun og manndáð gengur fram í hugsunarleysi og „flýtur sofandi að feigðar ósi“, pá verður allt annað upp á teningnum, pegar frelsi og menntun hafa fært fjör og líf í bænda- stjettina og hún vaknar af pessu dauða- dái, sem öfug og eyðileggjandi alra*ðis- stjórn um langa tíma hetir valdið. það er algild regla og afbrigðalaus að hag- kvæmast og hollast er að hver bóndi geti sjálfur átt, en purfi ekki að fá að láni hjá öðrum, helztu lífsnauðsynjar handa sjer og sínum, fæðið til saðning- ar, föt utan á kroppinn, hús yfir liöi- uðið og svo efni og verkfæri til atvinnu. |>ví fleiri sem pannig eru sjálfbjarga í landiuu, pess betra er pað fyrir laudið og pjóðljelagið, en pví verra sem fleiri eru ósjálfbjarga í pessu tilliti, eiga eng- an jarðarblett til að framfærast af, eng- an kofa til að leita sjer skjóls í, enga spjör til að hylja sig með, engan matar- bita til að seðja hungur sitt. Allt petta eru fyxstu og helztu hfsnauðsynjar, sem

x

Fróði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.