Fróði - 22.08.1882, Side 4

Fróði - 22.08.1882, Side 4
81. bl. F E Ó Ð 1. 1882. 250 251 252 Vopnafirði 27. maí. Ekki hefir batnað tíðarfarið þenn- an mánað, sem liðinn er síðan jeg skrifaði næst. Fimm síðustu daga apríl- mánaðar var grimmasta kafaldshríð og birti eigi npp fyrri eim 2. þ. m.; var hjer þá ailt komið í kaf. 7. þ m. varð fyrst hleypt út á litla hnjóta. 14.— 22. var góðar bati og tók upp mest allan snjó, en hafísinn rak frá í bráð. Þá gekk aptur í snjóhríð er hjelzt þangað til í fyrra dag, og keyrði hjer niður inikinn snjó. Utlitið er nú mjög voðalegt. Geldfje, sein orðið var dregið eptir harðindin í apríl og fyrri hluta þ m., var komið víðs veg- ar í batanum, og er hætt við að það tíni tölunni, einnig ær hjá sumum, sem strálausir voru orðnir áður enn í þetta illviðri gekk. Hafísinn kom nú apt- ur fljótlega og fyflti allt inn í fjarð- arbotn. Akureyri, 21. ágúst. Alltaf heldur áfram sömu ótíðinni og verið hefir i sumar; ,og leyfum vjer oss að vísa til brjefs úr þúngeyjarsýslu hjer að framan er sýnir ljóslega hið bága ástand og útlít almennings. Síðan það brjef var skrifað hafa verið stöðugir norð- ankuldar og votviðri og enginn þurkur á heyjum eðaeldivið; þann 18. var dimm- viður með krapahríð svo hvítnaði ofan í sjó. XJtlitið með heyaila á þessu sumri er hið hryggilegasta. _ Quf'uskipin „Camoens“ og annað strandferðaskipið, komu inn að Hrísey 17. þ. m. lengra inu fjörðinn var eigi fært fyrir ísnum. í Hrísey var fluttur á land varningur sá er skipin höfðu meðferðis hingað á Akureyri, sem mun hafa verið æðimikið, og hjeldu þau svo leiðar sinnar. Camoens ætlaði að taka hjer vesturíara, en af því gat ekki orðið, gert var ráð fyrir að það taki þá í haust, ef það kemst hingað síðast í september. í nótt kom inn að Hrísey mörgnorsk síldarveiðaskip., og þessi kaupskip : „Manna“ til Möllers og Laxdals, með ymiskonar vörur ; „ftóta“ með ymis- konar vörur, „Emanuel“ með timbur, „Naiaden“ með kol, öll þessi til Gránu- fjelags. Við Hrísey liggur og saltskip til fjelagsins nýlega komið. Uiaa s/niupr, I aprílmánuði næstliðnum var sýn- ing í Edinborg á Skotlandi yfir allt það, er laut að sjávarútveg, ásamt ýmsu sem í sjó lifir. Nokkrir hiutir voru þar frá íslandi en allt offáir, því undirbúnings- tíminn var of stuttur. þ>essir fáu hlut- ir fengu þó hrós, og er von um að verðlaun verði veitt fyrir suma þeirra Kaupmaður Hjálmar Jónsson frá Onundarfirði var Islands vegna á sýn- ingunni. Hann keypti þar lítil sýnis- horn af þilskipi, þremur opnum bátum og nokkrum smáhlutum öðrum fyrir fje, sem landstjórnin veitti til þess af landsfje. Sýnishorn þessi hafa verið sýnd á Ak- ureyri, og xerða síðan sýnd í ítvik og geymd þar. Víða hjer á landi er báta- lagi mjög ábóta vant og full þörf' á að það breytist til batnaðar. Oskandi væri að bátasmiðir tækju þessi sýnishorn til fyrirmyndar; og að landshöfðinginn sendi þau næstkomanda sumar með gufuskip- unum til ýmsra staða í landinu þar sem sjávarútvegur er í meiralagi, eða báta- lagið er mest óf'ullkomið, svo sem flestir gætu lagað báta sína eptir þeim. Jeg veit, að það er fiestum fu.ll- komlega ljóst, hve gagnlegt það er fyr- ir menn í hverju landi, að gera land sitt og vörur sínar kunnar í öðrum lönd- um, einnig að sjá verkfæri og notkun þeirra, frá þeim löndum, sem eru kom- in langt um lengra i öllum framförum. Hver þjóð kostar kapps um, að sýna sem mest frá sjer og að sjá sem mest frá öðrum, einkum þegar einhver af stórþjóðunum hefir sýning hjá sjer. Næsta vor verður haldin stór sýn- ing í Lundúnaborg á Englandi yfii' allt, sem í sjó er og við sjó ernotað. |>essa sýningu ættum vjer íslendingar að nota, bæði til þess að sýna þar ymislegt frá oss og til að sjá þaðan ymislegt, sem til gagns gæti orðíð fyrir landið. — |>að sem sent verður þarf að líta hreinlega út, svo landsmönnum verði það eigi til minnkunar, en hversu lítilfjörlegt sem það verður af hverri tegund, þá verður það meðtekið með þakklæti. Menn geta ekki ímyndað sjer hjer, hve sumt, sem oss þykir lítilsvert getur orð- iá mikils metið af ymsum þeim er á sýninguna koma, margt það sem er al- mennt hjer getur verið sjaldgæft og fá- sjeð þar. J>ar koma saman allskonar menn frá mörgum löndum iðnaðarmenn, verzlunarmenn og fræðimenn o s. frv. |>eim getur þótt það mikilsvert að sjá hjeðan frá norðurlöndum og norðurhöf- um margt það er vjer álítum einkisvirði. J>að sem vjer ættum helztað senda eru vörutegundir þær, er úr sjó fást hjer við land, en þær þurfa að vera góðar og velverkaðar, t. d. alls konar íiskur saltaður, hertur þorskur og rikl- ingur, lýsi, sundmagar, hrogn, æðardúnn og fuíglafiður m. fl. Ymisleg veiðar- færi, finustokkar, haukalóð, hákarlavað- ir með sókn, hlekkjum og steini eða lóði, silunganet og fleira er við veiðar er notað, allt með því lagiog útliti sem hjer á landi er álitið bezt. Allan fatn- að sjómannsins ætti að sýna: skinnfót öll, ullarsokka óg vethnga, hið síðast- nefnda ætti að vera eins og það sem bezt er almennt brúkað hjer, en þó ekki öðruvísi en svo, að menn geti almennt unnið það hjer og selt samkynja vörur til verzlananna, ef svo heppilega tækist til, að þetta fengi álit á sýningunni, svo beðið væri um talsvert af líkri vöru til útlanda fyrir framtiðina. Einnig ætti að senda hami afmargs- konar sjófuglum og flest annað af þvi er við sjó íinnst, þurkuð fjörugrös.* Kuðunga, skeljar, krabba, krossfiska, óskabirni og yms önnur smádýr, sem í sjó lifa, m. m. Eptir því sem hlutirnir verða fleiri, því fjölskrúðugri verður sýningin fyrir ísland, og því meiri eptirtekt verður henni veitt af þeim, er á sýninguna koma. |>að er bæði óskandi og líklegt, að landsstjórnin hlutist til um, að maður verði sendnr á sýninguna Islands vegna, og að hún fái honum fje í hendur, til þess að kaupa þar ýmislegt, sem lands- mönnum gæti orðið til gagns eða fyrir- myndar. ísland er eitt af beztu fiskistöðvum í heími, ef kunnátta, áhöld og fje, væri til þess að nota sjer þá auðsuppsprettu. |>að væri því sorglegt, ef menn ekki gerðu sitt til að bæta þann útveg og sleptu tækifærinu þegar þab býðst. uAlit er að varast nema orð og gjörðir» sagði kellingin. það er ef til vill varlegra fyrir mig — þegar jeg lít til þess, sem sunnan blöðin segja — að lýsa því yfir, að jeg vek ekki máls á þessu, mjer til gagns eða ágætis. þann ’) Smáplöntur verður að leggja milli pappírs, breiða þær vandlega svo blöðin ekki kriplist, og hafa svo farg á, þar sem þurkur nær til. tíma, sem sýningin verður haldin, þarf jeg að kaupa vörur og hlaða skip Gránu- fjelagsins, svo jeg kemst ekki til að fara á sýninguna, en jeg er fús til, að taka við hlutum þeim, sem sendir verða til sýningarinnar, koma þeim þangað, og yfir höfuð styðja þetta mál það sem jeg get. Ritað 19. ágúst 1882 Tr. Gunnarsson. Anglýsingar. Jeg býðst til, að taka á rnóti hlut- um þeim, sem menn vilja senda til sýningar þeirrar, er haldin verður næst- komanda vor í Lundúnaborg og senda þá þangað, án borgunar fyrir ómök mfn. Allir verzlunarstjórar Gránufje- lagsins veita hlutunum móttöku mía vegna, hjer norðan- og austanlands, og sjá um seuding þeirra til Kpmh. Hlutir þeir, er verða seudir frá Norð- ur- og Austurlandi, verða að vera komnir, áður haustskip fara, því of- dýrt er aö senda nema sera minnst með póstum yfir land. Listi þarf að fylgja frá hverjum, sem sendir eitthvað, yfir hiutina, og hvað þeir, sem á að selja, eiga að kosta. Verðið ætti ekki að vera svo hátt, að frágangssök verði að kaupa þá. það sem ekki selzt verð- ur sent aptur næsta sumar til eiganda, Akurevri 19. ágúst 1882. Tryggvi Gunnarsson. Sökrnn hinnar geysandi mislinga- sýki og fyrir margar örðugar kiingum- stæður, er af henui leiða, og með sam- þykki aintsins verður drátturiun í lukkuspilinu til hagsmuna fyrir Lundarbre kkukirkj u frestað. Og er nú ákveðið að drættirnir skuli fara iram að Stóruvöiluin f Bárðardai laugarilagiiiii 30. sept« ember f>. á. Stóruvollum tí. ágúst 1882. Forstöðuucfndin. Jeg undirskrifaður, sem samfleytt í fjölda ára hefi slept mjer langt um of við drykkjuskap og með því ollað mörgum óþægða og jafuvel spillt vel- ferð minni, hefi nú fastráðið aö hætta uú þegar alveg við nautn áfengra drykkja til æíiloka. — Þessu lýsi jeg hjer með yfir, um leið og jeg bið alla mjer velviljaða, aö gera sitt til, að styrkja mig í þessu fyrirtæki. Staddur á Húsavfk 12. júlí 1882 Jón Pálsson frá Breiðumýri (handsalað) Tilkvaddir vottar: t*. Guðjohnsen, Kjartan Einarsson. Fjármark Jóhanns V. Þórarins- sonar á Steinkirkju í Fnjóskadal: gagn- bitað hægra, hvatt biti aptan vinstra. Útgefandi og prentari: Björn Jónsson.

x

Fróði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.