Fróði - 17.01.1884, Side 2
121. bl.
I E ó Ð 1.
1884
4
einir menn: petta skapar ekki nýtt líf í
▼orn hrörlega kirkjulíkama. Jeg kalla |
þjóðkirkju, en ekki ríkiskirkju. "Yjer
þurfum enga revólútíón að gera til þess j
að losa af kirkju vorri ríkisböndin, þau
falla smásaman af sjálfu sjer. En vjer
þurfum annars við, vjer þurfum að læra
að styðja hana og styrkja. lífga hana,
treysta henni, heiðra hana og elska.
þegar gárungar heimsins nú á dögum
eru að hafa þessa helgu stofnun í fífl-
skaparmálum, vita þeir ekki hvað þeir
gera. þeim fer þá líkt, nema miður sje,
og ungum manni, sem lastar hjúskapinn
og kveðst aldrei skuli verða við konur
kenndur, hann endar annaðhvort sem
einmana ýlustrá, ellegar hann sættir sig
við að fylgja flestra dæmi.
(Niðurlag í næsta bl.).
Akureyri 2. janúar
Árið 1882 var eitthvert hið harð-
asta, er verið hefir á íslandi á þessari
öld; en árið 1883 aptur eitthvert hið
bezta. Yeturinn í fyrra var mildur og
frostalítill, en vorið var aptur fremur
kalt og stormasamt fram að fardögum.
I apríl og maí var óhagstæðust veðr-
átta á árinu, og fórust þá tvö af þilju-
skipum Eyfirðinga í hafi út. Með júní*
mánuði byrjaði hin æskilegasta veðurátta,
og hjelzt hún fram á vetur. Seinustu
tvo mánuði ársins hefir veðuráttan verið
mjög óstöðug, og óvanalega miklar rign-
ingar og votviðratíð hjer norðanlands.
Skepnuhöld voru góð í öllum sveitum
næstliðið vor, og fjenaður í háu verði, eink-
um sauðfje í haust. Fiskiafli var góður
á Faxaflóa vetrarvertíðina í fyrra. Á
Austfjörðum aflaðist vel fyrra hluta sum-
ars. en lítið í haust. Hákarlsafli Ey-
firðinga var með mesta móti en fiskiafli
í minna lagi. Síldarfli brást mjög á
Austfjörðum, en varð allmikill á Eyja-
firði. Á þessu ári fóru margir hjeðan
af landi til Ameríku, þar á meðal nokkr-
ir dugandis bændur með fólk sitt. Gezk-
5
að er á að nokkuð á annað þúsund
manna hafi flutt þangað. Atvinnu-
skortur var í Ameríku í sumar, og var
I því útlitið fyrir hið innflutta fólk
allískyggilegt fyrst í stað, og frem-*
ur illa aðbúð þóttist það hafa átt á
leiðinni vestur. Efnahagur margra mun
þetta ár hafa verið heldur þröngur vegna
undanfarinna harðinda, en margir hafa
þó fengið að góðum mun af gjafakorni
því er hingað hefir verið sent. Sem við
var að búast hafa ekki allir verið vel á-
nægðir með hvernig gjafafje þessu hefir
verið skipt af sýslunefndum og hrepps-
nefndum; og er oss minnistæðast að
Akureyrarmenn margir voru sáróánægðir
með, að þeim var ekki skipt neinu af
þeim 1000 hálftunnu kornpokum, er hing-
að voru fluttir í sumar, og skipt var af
sýslunefnd milli hinna smærri sveitar-
fjelaga í Yaðlaþingi, svo að öll fengu
nokkuð nema Akureyrarhær og Grímsey.
Akureyrarmenn þóttust ekki hafa haft
fleiri sólskinsdaga í fyrra sumar, enn
nágrannar þeirra í hreppunum, og vera
eins þurfandi fyrir gjafir góðvina vorra í
Danmörku. Oánægjan varð svo mikil,
er allir kornpokarnir voru á brott flutt-
ir, að bæjarstjórnin varð að útvega 150
kr. úr legatssjóði og varð sjálf að leggja
út aðrar 150 krónur handa þeim efna-
minni hjer í bænum núna fyrir nýárið.
Verður nú send bænarskrá til lands-
höfðingja um að Akureyri fá af dönsku
gjöfunum ekki síður enn aðrir, enda mæl-
ir mikið með, að þetta sveitarfjelag verði
ekki haft að olbogabarni. En þó nú
mikið sje talað um bágindi og bjargar-
skort, munu margir vera vongóðir um, að
efnahagur bænda yfir höfuð verði fljótlega
jafngóðurj og hann var fyrir harðærin
síðustu, og eins og afleiðingar ársins í
fyrra hafa verið tilfinnanlegar árið eptir,
eins munu hinar [góðu afleiðingar næst-
liðins árs bezt koma fram á þessu ári.
BRÚ ÐK AUPS-VÍSUR,
kveðnar 1881.
1. Erelsi — það er fagurt orð
frelsið elska lýðir,
frelsi! hljómar hátt um storð,
hetjur frelsi prýðir;
en þó virðast ymsir menn
ei til frelsis bornir,
halda þeim í hlekkjum enn
hleypidómar fornir.
2. Andi frjáls — þess óskum vjer
íslands bændúr leiði,
fram tii dáðar drengur hver,
Drottinn veginn greiði;
land vort blómgist, lifi þjóð
leyst úr vanans dróma,
verði menntuð, frjáls og fróð(
forðist hleypidóma.
3. Brúðhjónanna bíður skál,
bergjum nú á henni;
lifi trygðin, laus við tál,
loginn ástar brenni.
Allir tökum eins til máls,
óskir flytjum góðar;
lifi bœnda-fiohhur frjáls
r
fœtur Islands-þjóðar.
Jón Jónsson
í Bjarnanesi.
Hitt oíí þetta.
Khaninn eða konungurinn f Beiuds-
chistan hefir nýlega gefið út tilskipun,
er býður, að hver sú gipt kona f ríki
hans, sem reynist ótrú bónda sínum,
skuli verða seld við opinbert uppboð.
Verðið sem fæst fvrir hana rennur í
ríkissjóð, eður, sem er hið sama, í vasa
kongs. Kunnugir rnenn álíta, að
kongur muni íá stórmiklar tekjur af
þessum gjaldstofni. Annars hefir kong-
ur áskilið sjer rjett til að eignast
sjálfur uppboðs laust hverja slíka ó-
trúa konu er honum þóknaðist, annað
hvort til að gefa einhverjum sfnum
trúum þjóni, eða til eigin þarfa heima
hjá sjer í kvennabúri sínu.
Bellman sá og heyrði á veitingahúsum
og öðrum skemmtistöðum, því lýsti hann
fyrir vinum sínum með ljóðum og tónum.
Stundum sat hann þá alllengi þegjandi
og næstum blundandi, unz „andinn kom
yfir hann“; en þá söng hann hálfar
nætur, ymist það. er honum þá datt í
hug, eða það, er hann hafði áður hugsað
og kastað upp í einrúmi. Hvort það,
sem hann söng, gleymdist eða geymd-
ist, það lá honum í Ijettu rúmi; hann
söng af því hann hafði löngun til þess.
En vinum hans heppnaðist að rita upp
ymislegt af því, sem þeir heyrðu hann
optast syngja, og bráðum fóru að breið-
ast út á lausum blöðum „bellmanskar
vísur“ með nöfnunum „Epistlar af Ered-
man''', „Sángar af Fredmann11. J>að er
jafnvel sagt, að út hafi komið ofurlítið
safn af kvæðum eptir Bellman í hol-
e :skri þýðingu, löngu áður enn honum
sjálfum datt í hug að safna þeim. —
Orðstír Bellmans jók allt af tölu til-
heyrenda hans, og, svo ógeðfelt sem
honum var það, hlaut hann opt að syngja
eptir beiðni fyrir ókunnuga; en væri
þeir of nærgöngulir, þá var hann vís til
að taka þá sjálfa til yrkisefnis. Gúst-
av III. kunni manna bezt að meta
Bellman; enda lýsa margar tækifæris-
vísur Bellmans jafnt konunghylli sem
ættjarðarást. Allopt var Belman kall-
aður til hirðarinnar til að yrkja og
syngja, og átti hann þá stundum að
taka yrkisefnið meðal hirðmanna; þann-
ig vísaði Gústav konungur honum einu
sinni á tvo greifa mjög ólíka að eðli,
sem hann málaði þegar með söng og
hljóðfæraleik; varð að því hin bezta
skemmtun.
Árið 1775 fjekk Bellman embætti
með góSum launum, en þjónaði því aldrei,
heldur keipti það af öðrum fyrir helm-
ing launanna. Tveim árum siðar giptist
hann og hafði eptir það að sjá fyrir
konu og börnum. ítit hans urðu hon-
um aldrei mikil fjeþúfa, enda gaf hann
ekki mikið út, en hann vandaði mjög
útgáfur sínar og gerði gjarna breytingar
í nýjum útgáfum. það var einkum ept-
ir 1780, að Bellman fór að gefa út rit
sín, svo sem: „Zionz höytid“, „Bacchi
tempel“, F’redmans epistlar (1790), Fred-
mans sángar (1791) o. fl. Sum rit Bell-
mans voru ekki gefin út, fyr en eptir að
hann var dáinn.
Bellman dó 11. febrúar 1795 af
brjóstveiki, 55 ára gamall. Hin síðustu
ár þjáðist hann af vaxandi lasleika ; vin-
ir hans fækkuðu; Gústav III, dó og olli
það honum mikillar hryggðar. Hann orti
sjaldan, nema við sjerstök tækifæri. Hið
síðasta, sem hann gaf út, var þýðing af