Suðri - 19.05.1883, Side 4
39
og Ásmundur Sveinssou umboðsmaður.
Ekki er gott að segja hver hlutskarp-
astur verður, þó er mér næst að halda
að annaðhvort hljóti Hjálmur eða Indr-
iði kosningu.
Aflabrögð á suðurlandi á vetrar-
vertíðinni hafa verið ákaíiega misjöfn ;
í veiðistöðunum frá þjórsá út fyrir
Heikjanes að Garðsskaga (áEyrarbakka, í
J>orlákshöfn, Selvogi, Grindavík, Höfn-
um, Rosmhvalanesi) eru hlutir frá 3-8
hundruð tólfræð (9 hundruð á einum
stað, í Sandgerði, og ytir höfuð bezt-
ur aflinn í J>orlákshöfn og Grindavík).
í veðistöðunum við Faxaflóa sunnan-
verðan frá Garðsskaga að Reykjavík (í
Garði, Leiru, Keflavík, Njarðvíkum,
Vogum, Vatnsleysuströnd, Hafnarfirði,
Álptanesi, Seltjarnarnesi og Reykja-
vík) eru hlutir frá 2— 6 bundruð tíræð';
í suðurveiðistöðunum eru hlutir öllu
hærri en hér á Innnesjum. Alstaðar
er fiskurinn fremur rýr.
Síldveiðafélagið syðra. ínn 16. þ. m.
árdegis lagði gufuskipið «Alf», sem síld-
veiðafélögin hér syðra og eystra hafa á
leigu, inn að Geldínganesi; þar eru síld-
stöðvar og hús reist. Með því kom herra
Otto Wathne, sem er yfirumsjónarmaður
og meðeigandi í félaginu hér syðra, og
verður hann hér eptir við tíunda mann
við síldveiði. Hafði hann komið til
Austfjarða 18 f. m. og síðan fiskað þar
2500 tunnur af síld, og fermt gufuskip
þetta, sem fer héðan jafnharðan aptur
með farminn á markað í útlöndum.
Er þetta mjög beppileg byrjun, og allt
útlit fyrir að hér muni einnig fiskast,
því síld hefur verið hér mikil, en nokkuð
dreif, og enn mun hún ílengjast að
síldfróðra manna áliti. — Vér munum
færa lesendum «Suðra» frekari fréttir
af þessu fytirtæki smátt og smátt.
Hæstaréttardómur í Elliðáamálinu.
í bréfi frá einum farþegja á strand-
ferðaskipinn, er barst hingað með síld-
veiðaskipinu frá Seyðisfirði, stendur:
"Elliðáamálið er unnið við hæstarétt
8. þ. m. Thomsen hefur tapað og á
að borga málskostnað.»
Hjálp til inna bágstöddu á Suður-
landi. Landshöfðinginn hefur góðfús-
lega leyft 03S. að skýra frá því, að
í gær barst honum bréf samskota-
nefndarinnar 1 Kaupmannahöfn, dagsett
25. apríl. I því er skýrt frá, að sam-
skotanefndin hafi sent um 200 tunnur
af gjafakorni með skipinu «Anna», og
80 tunnur með skipinu «Immanuel»
til Papaóss, og 150tunnur með skipinu
«Olivia» til Eyrarbakka. Enn fremur
ætlar nefndin sér að senda 150 tunnur
enn til Eyrarbakka og að líkindum
100—200 tunnur til Vestmannaeyja.
f>essi styrkur mun koma að miklu
haldi þeir eystra, enda mun hans og
vera full þörf, því að fréttirnar að
‘) Fyrir sunnan Garðsskaga telja sjómenn
að fornum sið tólfræð hundruð, en hérna
megin Skagans er fiskur talinn f tíræð-
um hundruðum.
austan um ástandið telja hagi manna
fjaska bágborna. í bréfinu frá Vest-
mannaeyjum er hér er prentað að
framan, er þess getið. að farið sé að
fikast vel, en með seglskipi, er fyrir
skömmu kom hingað ftá Vestmanna-
eyjum, fréttist, að þar væri nú orðið
alveg fisklaust aptur.
Frakkneska herskipið meira, Du-
pleix, kom 10. þ. m. Foringinn heitir
Bouchéron de Boissoudy. Skipverjar eru
um 220 að tölu.
Prestar og prestaköll.
Prestvígsla. Á annan dag hvíta-
sunnu vígði biskup dr. Pétur Péturs-
son prestaskólakandidat Magnús Helga-
son (bónda Magnússonará Birtingaholti
í Árnessýslu) prest að Broiðabólsstað á
Skógarströnd.
Veitt prestaJcöll: 11. þ. m. Háls í
Fnjóskadal séra Pétri Jónssyni í Fjalla-
þingum. Auk hans sóttu séra Magnús
Jósefsson á Kvíabekk og séra Jón Magn-
ússon á Hofi á Skagaströnd.
S. d. Skorrastaður séra Jónasi P.
Með «Arcturus», er fór vestur og
norður um land, sendi og héðan 29/7
f. á. kassa með bókum og karlmanns-
fötum, merktan «G. Á. Akureyri.»
Kassinn hefir aldrei komið til skila, og
óska eg að fá ið fyrsta vísbending um
hvar hann er niðurkominn.
Keykjavík, 12. apríl 1883.
Björn Guðmundsson.
Góð jörð til kaups.
Norður-Gröf á Kjalarnesi, 17,7 cr
að nýju mati, með 2 ásauðar-og 1 kýr-
kúgildi og 40 kr. landskuld, er til kaups.
Jörðin getur verið laus til ábúðar í
næstu fardögum. Hún hefur verið vel
setin og hús ekki gömul og í góðu
standi.
Um kaupin skal semja við undir-
skrifaðan, sem fyrst.
Skrifstofu almennings, Aðalstræti.
Reykjavík 6/« 83.
Egilsson.
Hallgrímssyni, fyrr aðstoðarpresti á
Hólmum. Auk hans sótti séra Stefán
Pétursson á Desjamýri.
Oveitt prestaköll: þykkvabæj-
arklaustur iþykkvabæjar- og Laug-
holtssóknir) í Vestur-Skaptafellspró-
fastsdæmi. Prestsekkja er í brauðinu
er nýtur ’/u af tekjum þess. Metið
923 kr. 70 a. Augl. 23. ágúst 1881.
Gufudalur í Barðastrandarpró-
fastsdæmi. þessu brauði leggjast 200
kr. Metinn 518 kr. 81 a. Augl. 27.
maí 1882.
Dýrafjarðarþing (Mýra, Núps
og Sæbólssóknir) í Vestur-ísafjarðar-
prófastsdæmi. Metin 670 kr. 50 a.
Augl. 18. sept. 1882.
Fjallaþingí Norður-þingeyjar-
prðfastsdæmi (Viðirhóls- og Möðruvalla-
sókir) veitast frá fardögum 1883. Til-
lag úr landssjóði 600 kr. Augl 2. okt.
1883.
Stóruvellir í Rangárvallapró-
fastsdæmi veitast frá fardögum 1883.
Tillag úr landssjóði 300 kr. Metnir
710 kr. 42 a. Augl. 16. jan. 1883.
Presthólarí Norður-þingeyjar-
prófastsdæmi (Presthóla- og Ásmund-
arstaðasóknir). Tillag úr landssjóði
300 kr. Augl. 12. maí 1883.
verði deildar hins íslenzka bókmennta-
félags í Reykjavík þessar bækur, sem fé-
lagið hefir gefið út, með niðursettu verði.
1. Biskupa sögur, 2 bindi; uppruna-
legt verð 16 kr. 40 a., niðursett
verð 8 kr.
2. Safn til sögu íslands og íslenzkra
bókmennta að fornu og nýju, 1.
bindi og 2. bindis 1.—3. hepti;
upprunalegt verð 12 kr. 34 a., nið-
ursett verð 6 kr.
3. Skýrzlur um landshagi á íslandi,
5 bindi; upprunalegt verð 39 kr.
75 a., niðursett verð 15 kr.
4. Tíöindi um stjórnarmálefni ís-
lands, 3. bindi; upprunalegt verð
24 kr. 75 a., niðursett verð 10 kr.
5. Eðlisfrœði, samin af Magnúsi
Grímssyni eptir J. G. Fischer, með
250 myndum; upprunalegt verð 4
kr., niðursett verð 1 kr.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Gestur Pálsson.
Reykjavík. Prentari: Einar Póebaeson.
Aug;lýsiiigai*.
ENSKUNÁMSBÓK
handa byrjöndum.
Eftir JÓN ÓLAFSSON.
Inniheldr framburðarreglur, orðmyndafræði, lestrarkafla, orð-
safn (með framburði).
Framburðr sá, sem í bókinni er kenndr, er réttr menntaðra manna
framburðr á ensku, en engin skozka og því síður Möðruvella!
Bókin kostar i n n b u n d i n 1 kr. 50 au.
5 bækr bundnar fyrir 6 kr. borgað út á hönd.
Jón Ólafsson.
TIL ÁRSLOKA 1883 fást hjá bóka-