Suðri - 13.10.1883, Page 4
7G
ísafjarðarsýslu, 17. sept. 1883:
Tíðin hér í sumar hefur verið með
bezta móti og heyskapur góður hjá
allflestum. Yerð á fiski hefur verið
hér með hæsta móti, málfiskur á 75
kr. spd., smáfiskur 55 kr„ langa 60
kr. og ísa 45 kr. Hákallsafli hefur
verið hér góður í sumar; 417 tunnar
lifrar mun vera hæstur afli á skip.
Aptur hefur porskafli á pilskipum
gengið erfitt; einum tveimur hefur
heppnast hann í betra lagi; fekk ann-
ar 30 púsund af porski, en porskurinn
smár. Mikið er talað hér um að
koma á gufubátsferðum, en óvíst er
hvað um pað fyrirtæki verður.
Dalasýslu, 1. okt. 1883: Sumarið
hefur verið eitthvert ið bezta, gras-
vbxtur í betra meðallagi og nýting
ákjósanleg, svo heyskapur er alstaðar
í sýslunni góður. J>ar af leiðir að
bændur freistast til að setja á vetur
nálega allan pann fénað, sem til er,
sem víða er æði fár og hafa pví hvorki
til að skera til vetrar eða farga í kaup-
stað f'yri.i nauðsynjar sínar.
Próf í heimspeki á presta-
skólanum
tóku í byrjun pessa mán.:
Jón Thorsteinsen fekk vel.
Jón Jónsson frá Hlíðarhúsum varð
apturreka frá prófi, par sem hann
náði einungis vitnisburðinum: lak-
lega.
I vetur eru 9 stúdentar á presta-
skólanum, 7 í eldri deild og 2 í yngri
deild.
A lœknas/cólanum eru 6 stúdentar,
tveir af peim nýir, bættust við í haust.
Latínuskólinn.
I latínuskólanum eru nú 118
lærisveinar, 16 1 6. bekk (eiga að út-
skrifast að vori), 22 í 5. bekk, 20 í 4.
bekk, 21 í 3. bekk, 20 í 2. bekk og
19. í 1. bekk. Nýsveinar eru 26 af
pessum.
í byrjun pessa mánaðar útskrifað-
ist porsteinn nokkur Erlingsson og
hlaut 1. einkum, 84 stig, og mun
fæstum peim, er piltinn pekkja, hafa
komið til hugar, að sá piltur hefði pá
pekkingu til að bera, að hann gæti
hlotið 1. einkunn.
Jón Olafsson, ritstjóri pjóðólfs og
alpingismaður, var nú að fullu og öllu
leystur frá allri tímakennslu við skól-
ann og mun ffestum, er til pekktu,
hafa pótt pað bæði nauðsynlegt og
heppilegt. pó mun sú breyting vera
að pakka stiptsyíirvöldunum en ekki
rektor, sem sjaldan mun hafa sýnt af
sér meiri stjórnsemisrögg en í pví, að
hafa sig allan frammi, að halda Jóni
við skólann.
Tveir nýir tímakennarar eru nú
komnir að skólanum, cand. philol. Oeir
Zoega og cand. theol. pórhallur
Bjarnarson, báðir efnilegustu menn.
Síðan vorprófi sleit hafa 10 læri-
sveinar sagt sig úr skóla og mun slíkt
eins dæmi á jafnstuttum tíma.
Mannslát.
porvaldur Jónsson, lærisveinn í
4. bekk latínuskólans, einkabarn Jóns
Arnasonar bókavarðar og frúarhans
Katrínar J>or valdsdóttur dó eptir
sumarlangan sjúkleik 25. f. m. J>or-
valdur sál. var efnilegur piltur og
hvers manns hugljúfi. Jarðarför hans
var einhver in fjölmennasta, er hér
hefur farið fram í mörg ár.
Heiðursgjöf.
í byrjun pessa mánaðar færðu
lærisveinar latínuskólans Benidikt
Oröndal mjög fagurt «taffelúr», sem
vott ástríkis pess, er hann hafði
áunnið sér af lærisveinum sínum í
skólanum.
í kvennaskólanum
eru 24 stúlkur, 10 heimastúlkur og
14 bæjarstúlkur.
í karnaskólanum
hér í bænum, sem nú er fluttur í ið
nýja reisulega steinhús, sem vígt var
1. p. m., eru börnin orðin um 100.
Craigforth
kom hingað 11. p. m. Póstskipið
«Laura» hafði farið tveim dögum á
undan Craigforth frá Leith, en var
ókomið hingað laugardagsmorgun, 13.
sept. Craigforth fekk stormamikla og
veður ill á leiðinni hingað.
Hitt og þetta.
Prestur nokkar í Ameríku talaði
mjög um í ræðu sinni eitt sinn, að
menn skyldu reyna að spara, par sem
allt væri svo dýrt og hagur manna
svo bágborinn. J>egar eptir messu
söfnuðust sóknarmenn saman og settu
laun hans úr 1000 niður í 600 doll-
ara.
Prestur nokkur var jafnan vanur
að spyrja börnin að sömu spurning-
unum. Drenginn, sem innst sat,
spurði hann ætíð að, á livern hann
tryði og drengurinn átti að svara:
«Á föðurinn». Svo átti næsti dreng-
ur að taka við og segja að hanntryði
á soninn o. s. frv. Einu sinni kom
prófasturinn að vísitera. J>egar hann
fór að spyrja börnin, var drengurinn,
sem vanur var að sitja innst, ekki kom-
inn. Prófastur spurði nú af hend-
ingu drenginn, sem vanur var að
sitja næst innst, á hvern hann tryði,
«Á soninn» svaraði drengurinn strax.
Prófastur varð hissa og spurði hvort
hann tryði ekki einnig á fóðurinn.
«Hei», sagði drengur og var fijótur
til svars, «sá, sem trúir á fóðurinn
getur ekki komið í dag».
Tveir sýslumannssynir voru að
skattyrðast, en faðir peirra var við-
staddur. »J>ú ert mesti grasasninn,
sem eg pekki» sagði annar peirra við
bróður sinn. «J>ú veizt líklega ekki af
pví, að eg er hérna» sagði faðirinn.
ÆuLglýsiii^ax*.
\ J>riðjudaginn inn 16. þ.
mán. verður í húsinu GLASGOW
hér í hænum selt við opin-
hert upphoð mikið af allskonar
FATNAÐI,
svo sem Smádrengjaklæðnöðum
(huxur, vesti og frakki eða
treyja), Smádrengja-yfirfrökkum,
Unglingaklæðnaði, Unglinga-yfir-
frökknm, KaiTmannaklæðnaði,
Karlmanna-yfirfrökkum, Regn-
kápum og Regnhlífum (Parapluie)
af ýmsum tegundum og stærðum,
Höttum og Hiífura alls konar,
Sjölum, um 8000 af ýinsum teg-
undum, par á meðal in altíðu
dökku sjöl, Handklæðum, o. fl.,
enn fremur:
SKÓFATNADI,
t. d.: stígvélaskóm, vatnsstíg-
vélum, hálf-háum, hnéháum,
o. s. frv.
Gjaldfrest fá kaupendur
Jangað til í miðjum des. mán.
ji. á. — Söluskilinálar fyrir söl-
unni verða hirtir á nppboðs-
staðnum.
Reykjavík, hinn 11. okt. 1883.
_______________TIERNEY.
J>ann 1. oktober tapaðist frá lest
á Eyrarbakka ljósrauðskjótt merfolald;
hver sem petta folald hitta kynni er
beðinn mót póknun að láta mig vita
pað fljótasta.
Höfða í Biskupstungum, pann 6.
oktober 1883. Bjarni Jónsson.
liitstjóri og ábyrgðarmaður:
Gestur Pálsson.
Keykjavík. Prentari: Einar Pórbarson.