Suðri - 01.12.1883, Qupperneq 3
87
liún lítil hjá bændum). Fislcur var í
háu Terði. Útlend vara: 100 pd. af
rúgi 9 kr., 100 pd. af baunum 12 kr.,
100 pd. af bankabyggi 13 kr., kaffi
55 a. pd., sykur 45—50 a.
|>ess má geta, að verzlanir L. Popps
og S. Jakobsens og Friðrikssen borgari
keyptu talsvert af hrossum næst-
liðið sumar. Verð á hestum mun
liafa verið 65—70 kr., á hryssum 45
til 50 kr. í>ó að verzlun pessi væri
laus við að liafa pann kost, að nokk-
uð væri borgað í peningum, kom hún
sér pó vel í pessu ári, pví að fyrir
hrossasöluna höfðu seljendur meira til
að borga 1 verzlanir.
Haustverzlun var sem hér greinir:
Kjöt, kroppar, sem vega 40 pd. og par
yfir, 25 aur. pd„ 30—40 pd. kroppar
22 a„ pd„ 25—50 pd. kroppar 19 a.
Mör 35 a. pd. Gærur af 1. flokki 3
kr„ af 2. flokki 2 kr. 66 a„ af 3. fiokki
2 kr„ af 4. flokki 1 kr. 75 a. Hrossa-
kaupmaður Coghill keypti á sauða-
sauðamarkaði að Yíðimýri í haust 1100
sauði. Verðið var 17—20 kr. Borg-
un öll í gulli og silfri. fetta haust
liefur skurðarfé reynzt mjög vel. Sauð-
ir hafa lagt sig á 22—25 kr. og sum-
ir betur.
Húnavatnssýslu 10. nóv. 1883.
Haustveðráttan hefir verið in ágætasta;
að eins austan kafald 12. f. m„ og
norðanhríð 4. p. m. með talsverðri
snjókomu; að öðru leyti optast nær
gott veður, og frost eigi mikil. Inn
28. f. m. brann liey í Steinnesi, er
mælt að 150 hestar af heyi bafi brunn-
ið til ösku. í heyi pessu (sem kvikn-
aði í) voru um 400 hestar; af pessu
voru um 70 hestar í öðrum enda tópt-
tarinnar, sem eldurinn komst aldrei 1,
en hinu varð bjargað með mikilli mann-
hjálp og dugnaði. f>að gjörði mestu
erfiðleikana við björgunina, að stór-
viðri var á af suðaustri lagði pví log-
ann á fjárhús 2, er stóðu, hjá heyinu,
og varð að rífa tir peim viðu alla, til
að forða peim frá bruna, og var pað
mannhætta allmikil, par eð eldhríðina
lagði langan veg frá heyinu. Mælt er
að bóndi (sem heyið átti) hafi orðið
vel við skaða sínum, og vilji helzt enga
lijálp pyggja, ætla menn lika, að liann
muni hafa nokkurnveginn nægilegt
fóður fyrir skepnur sínar, prátt fyrir
petta ið mikla tjón er hann varð fyrir.
Verzlun hefir verið með daufara móti
á Blönduósi í haust og fjártaka lítil;
enda hefir verð á kjöti og mör verið
par töluvert lægra 'en á Sauðárkrók.
Á Blönduósi hefir bezta kjöt verið 22
a. en mör 34. Á Sauðárkróki hefir
mest af kjöti verið 25. a. en mör 40.
TTm og eptir miðjan f. m. keyptu
Borðeyrarkaupmenn fé á fæti í vest-
urhluta sýslunnar, og gáfu 25 kr. fyr-
ir tvævetra sauði (meira fyrir eldri
sauði) og fyrir geldar og vænar mylk-
ar ær 20 kr. Fé hefir reynst með
vænna móti í haust, en skurðui' er
sárlítill nálega allstaðar, óttast menn
pví mjög fyrir bjargarskorti pegar á
vetur líður. Kornvara mun nokkur
til hjá Höepfners verzlunum bæði á
Blonduósi og Skagaströnd, en mjög
er líklegt, að pað reynist eigi nóg í
margra parfir pegar fram á vetur kemur.
Fiskaíli var allgóður framan af haust-
inu á Skagaströnd og Vatnssnesi; en
ógæftir hafa bannað íispileitir nú um
langa hríð. Aflalítið mjög á Miðfirði
til pessa.
Isafjarðarsýslu, 8. nóv. 1883. Sum-
arið óvenjulega gott að hagstæðri
veðráttu og blíðviðri, pó gjörði tals-
verða rigningu í sept., en var pó óvíða
til skaða fyrir atvinnu manna. En
síðan um veturnætur hefnr tíðin breytzt
til umhleypinga og stórviðra og hafa
ýmist frostviðri eða slagviðri af land-
norðri gengið síðan með vetrinum.
Nær pví fiskilaæst pegar róið er, get-
ur verið vegna beituleysis, pví síldar
eða smokks hefur ekki orðið vart.
Heilsufar almennt ekki gott, ýmsir
kvillar á ferðum, bæði [taugaveiki, kvef-
sótt og fleira, en pó enginn mann-
dauði, svo teljandi sé. Fé eða kjöt
hefur verið svo dýrt í haust, að eng-
in dæmi eru slíks hér um sveitir, pd.
frá 30—35 aur.; par af leiðir að marg-
ir meðal inna fátækari verða að lifa
eingöngu upp á sjávaraflan og pað sem
fæst úr kaupstöðunum. Bátur týnd-
ist í f. m. á heimleið frá Æðey með
tveim mönnum. Einu skólar sýsl-
unnar, barnaskóliun hér og í Hnífs-
dal byrjuðu á venjulegum tíma, inn
fyrri 1. sept. og eru rúm 40 börn á
honum, inn síðarnefndi var settur
síðasta sumardag með rúmum 20
börnum
Gufubátsmálefninu miðar hægt á-
fr m, pví pótt einstakir menn t. d. inn
alkunni atorkumaður, alpingismaður
|>orst. Thorsteinson, séra Sigurður
Stefánsson og fleiri góðir menn gjöri
allt sitt til að efla og hvetja til pessa
brýna nauðsynjamáls, pá vantar pó
enn sameiginlegan vilja sýslubúa til
að koma fyrirtæki pessu áleiðis, og
svo lengi sem menn óttast kostnað og
geta ekki séð hvílíka nauðsyn ber til
að fá máli pessu framgengt, par sem
pessi sýsla fremur öllum öðrum á land-
inu er af náttúrinni til svo að segja
útilokuð frá öllum samgöngum á landi,
pá er ekki við pví að búast, að mál-
efnið fái fullan framgang; mönnum
hættir hér við, að líta fyrst á sinn
eigin hag, og án pess að gæta hins,
að hagur og velferð héraðsfélagsins er
líka hagur og velferð hvers einstaks.
Dalasýslv, 10. nóv. 1S83: Tíð
hefur verið hrakviðrasöm og storma-
töm. Frost engin. Snjór lítill. Næg
jörð. Fé í afarháu verði; sauðir 20—
30 kr.; mylkar ær hafa verið seldar,
allar vænnri, 20 kr.; verturgamalt 14
—20 kr. Skurðarfé hefur reynzt í
betra meðalagi, eðajafnvel betur; sök-
um fjárfæðar hefði yerið fyrirsjáanleg
hungursneyð, ef ekki hefði gjafakornið
komið eins mikið og komið hefur. Allir
hafa heyjað í meðalagi; sumir hetur.
Sveitarpyngsli hafa töluvert aukist t.
d. 1 Saurbæjarhreppi um '/s eða par
yfir. Engir nafnkendir hafa dáið.
Heilsufar gott.
Sunnudagaskóli. Stúdentafélagið
hér í bænum heldur áfram sunnudaga-
skólakennslu sinni sem pað hóf í vor.
Bæjarstjórnin leggur til kennslustofur
1 barnaskólanum, hita, ljós, pvott, allt
ókeypis. Skólinn byrjaði fyrra sunnu-
dag 18. nóvember. J>á voru komnir
110; fleirum er eigi hægt að taka við
í bráð. Vegna rúmleysis var stúlkum
eigi veitt viðtaka og höfðu pó ýsmar
farið pess á leit. Af pessum 110 eru
ekki fullir 20 utanbæjarmenn, 55 eru
sjómenn, 33 iðnaðarmenn, hinir vinnu-
menn, eða unglingar í foreldrahúsum.
Enginn tekinn á skólann yngri en 15
ára. Hér um bil 70 læra reikning,
30 skript og jafnmargir réttritun og
fullir 40 hvort málanna um sig, en
pau eru danska og enska. Eitthvað
um 20 stúdentar og kandídatar skipt-
ast á um að kenna. Kennslan veitt
ókeypis. Fyrir skólanum standa peir
Gestur Pálsson, Indriði Einarsson og
J>órhallur Bjarnason.
Mannalát. Séra Guðjón Hálf-
dánson, prestur að Saurbæ í Eyjafirði
lézt 25 okt. p. á. Hann fæddist 1833
var útskrifaður úr Reykjavíkurskóla
1856, af prestskólanum 1858 og vígð-
ist til Flateyjar 1860. Síðar var hann
prestur að Glæsibæ í Eyjafirði, Dverga-
steini 1 Múlasýslum, Krosspingum í
Rangárvallasýslu og seinast að Saurbæ
í Eyjafirði. Séra Guðjón sál. var vand-
aðasti maður, lipur prestur og vellát-
inn af öllum.
— pórður Sigurðurðson, hrepp-
stjóri á Fisklæk í Borgarfirði dó 21.
f. m. Hann hafði verið nær pví 30
ár hreppstjóri i Leirá- og Melasveit og
staðið vel í stöðu sinni.
-— Inn 12. dag ágústmánaðar p. á.
andaðist að Kröggólfsstöðum í ölvesi
merkisbóndinn Sigurður hreppstjóri
G í s 1 a s o n. Hann var fæddur á Krögg-
ólfsstöðum, 5. okt. 1820; ólst par upp
hjá foreldrum sínum, merkishjónunum
Gísla Eyjólfssyui og Solveigu Snorra-
dóttur, og eptir að hann var uppkom-
inn dvaldi hann enn lengi hjá peim
í vinnumanns stétt. En er hann var
kominn hátt á fertugsaldur (árið 1857)
byrjaði hann búskap á nokkrum hluta
Ivröggólfsstaða móti föður sínum, og
kvongaðist sama ár og gekk að eiga
Valgerði ögmundsdóttur, frá Bíldsfelli
í Grafningi, og lifðu pau saman í
hjónabandi hér urn bil 26 ár. jpeirn
varð 11 barna auðið, og lifa af peim
7, 4 synir (einn af peim er Ögmund-
ur, útskrifaður úr Möðruvallaskóla), og
3 dætur og 1 af peim gipt. 16 in
síðustu ár æfi sinnar hafði hann á
hendi lireppstjórastörf í ölveshreppi og
einnig hreppsnefndarstörf, eptir að in
nýja sveitarstjórnarskipun komst á.. 5.
desember 1881 var hann af Frakka-
stjórn sæmdur heiðurspeningi úr silfri.
Sigurður sál. var allvel gáfum búinn,
og vel að sér mörgum fremur í sinni
stétt, hreinskilinn, fjörugur og frjáls-
mannlegur í allri framgöngu, einkar-
gestrisinn og greiðvikinn við hvern
sem í hlut átti, konu og börnum inn
tryggasti og umhyggjusamasti ástvinur.
í inni opinberu stöðu sinni var hann
ötnll, framtakssamui' og ósérhlífinn, og
hugsaði um hag sveitar sinnar engu
síður, en sinn eigin, og hefir félagið
með honum rnisst einn af sínum rnerk-
ari og betri liðsmönnum. Hans er pví
að maklegleikum saknað bæði afpeim
sem nær stóðu honum og fjær og
minning hans geymd í heiðri.
x. -f y.