Austri - 26.07.1886, Qupperneq 1

Austri - 26.07.1886, Qupperneq 1
1 8 8 6. 3. árg. Seyðisfirði, uvánudag 26. júlí. Nr. 19. Reglugjörð landslbankans (í ágripi éptir Fjallkonunni). Um stjórn landsbankans segir svo meðal annars, að framkvæmdarstjóri annist dagleg störf bankans og stýri þeim; skal hann ávalt vera viðstadd- ur á meðan á vinnutímanum stendur. „Annar gæzlustjórinn skal og alla jafna vera viðstaddur“. itísi ágrein- ingur milli bankastjóranna um eitt- hvert málefni, ræður atkvæðafjöldi. |>ó má framkvæmdarstjóri, ef hann álítur að einhver ákvörðun gæzlustjóranna sé þanuig löguð, að bankinn getibeð- ið tjón af, láta farast fyrir að fram- kvæma hana, en hann má ekki fram- kvæma neitt það, er báðir gæzlustjór- arnir hafa neitað að leggja samþykki sitt á“. „Á aðalpeningahirzlu bankans skal læsingin vera þannig gjörð, að ekki verði henni iokið upp nema með 2 lyklum, sem ekki eru eins. Hefur framkvæmdarstjóri annan lykilinn, enn féhirðir liinn, og verða þeir því ávalt báðir að vera við, þegar liún er opn- uð. pegar eitthvað er tekið úr sjóði eða í hann látið, skal það ritað i bók, sem til þess er ætluð. Skal féhirðir rita nafn sitt undir, ef úr sjóði er tekið, enn framkvæmdarstjóri, efíhann er látið“. „Féhirði skal fengin önnur fjár- hirzla, er hann skal geyma í það fé, sem honum er fengið til daglegra þarfa, og hefur hann einn lykilinn eða lyklana að henni“. Um störf landsbankans eru þetta hin helztu fyrirmæli: 11. gr. Bankinn veitir lán gegn tryggingu í fasteign, þó ekki gegn tryggingu í húsum, nema íReykjavík, og ávalt gegn 1. veðrétti. 12. gr. Til þess að menn geti feng- ið lán úr landsbankanum gegn fast- eignarveði, verða menn að fullnægja þeim skilmálum, er nú skal greina: a. láta virða eignina til peninga af 2 óvilhöllum, kunnugum dómkvöddum mönnum. Skal eigninni nákvæm- lega lýst í virðingargjörðinni, og þess getið, hver hús séu á eigninni, sé það jörð, og hvað þau séu virt út af fyrir sig; einnig skal íhenni tekið fram, hvert afgjald sé af jörð- iuni, og hafi jörðin nýlega gengið að kaupum og sölum, hvað gefið hafi verið fyrir hana. b. Útvega vottorð hlutaðeigandi em- bættismanns samkvæmt afsals- og veðbréfabókunum um hvort nokkur veðskuld eða önnur eignarbönd liggi á eigninni og hver þau séu. c. Útvega 'vottorð hlutaðeigandi em- bættismanns samkvæmt embættis- bókum hans um, að hlutaðeigandi hafi þinglesna heimild að fasteign- inni, eða, sé það ekki unt, þá vott- orð hans um, að eignin sé vitan- leg eign hans. 13. gr. Landsbankinn lánar fé gegn sjálfsskuldar-ábyrgð, þó því að eins, að ábyrgðarmennirnir séu búsettir í Reykjavík eða í nágrenni við hana. 14. gr. Landsbaíikinn lánar fé gegn handveði. Enn meðan bankinn ekki hefur húsnæði, sem með öllu er óhætt fyrir eldsvoða, tekur hann ekki til sín annað handveð en arðberandi verðbréf. 15. gr, Um önnur störf, er bank- inn getur haft á hendi, vísast til 6. gr. laga um stofnun landsbanka. Að því snertir viðtöku peninga sem inn- lán eða með sparisjóðskjörum, munu settar sérstakar auka-ákvarðanir við reglugjörð þessa, þegar bankastjórnin sér sér fært að fást við það starf. 16. gr. Bankinn lánar ekki minni upphæð en 50 kr. 17. gr. Bankinn getur heimtað 1 árs vexti fyrir fram af lánum þeim, sem hann veitir. 18. gr. |>að er á valdi bankastjórn- arinnar, hversu mikið hún vill lána að tiltölu við virðingarverð veðsins, enn hún lánar þó að öllum jafnaði ekki nema helming virðingarverðs, og engu sinni meir enn 2/3 þess. 19. gr. J>eir, sem vilja fá lán úr bankanum, skulu beiðast þess bréf- lega, og geta þeir fengið prentuð eyðublöð undir slík bréf ókeypis í bankanum. 20. gr. Svar bankastjórnarinnar upp á slíka beiðni verður að eins gefið munnlega, og getur enginn, sem synj- að er um lán, heimtað, að honum sé gerð grein fyrir, hverjar ástæður séu til synjunarinnar. 21. gr. Ekki eiga menn heimtingu á, að fé það, sem bankastjórnin hef- ur ákveðið að veita einhverjum að láni, sé greitt fyrr enn næsta virkan dag bankans eptir að láninu var heitið. 22. gr. Sérhver skuldunautur bank- ans má greiða lán það, er hann hef- ur fengið, allt eður nokkurn hluta þess, áður gjalddagi sá, sem ákveðinn er í skuldabréfinu, er kominn; enn ekki getur hann heimtað neitt endur- goldið af þeim vöxtum, er hann kann að hafa greitt fyrir fram. 23. gr. Engum veitist lán úr bank- anum lengri tíma enn 10 ár; sérhvert lán veitist mót afborgun og vöxtum, eptir því sem nánara um semst við bankastjórnina. Hvernig seðlar bankans skuli vera gerðir, hefur verið skipað fyrir um með konungsúrskurði 20. f. m., á þessa leið: Bókstafirnir I. L. eru vatnsnierkt- ir í pappírinn, er seðlarnir eru prent- aðir á. Á báðum minhi hliðumhvers seðils er pappírsröndin óskorin og brúnin því ójöfn. Eraman á hverj- um seðli vinstra megin er brjóstmynd hans hátignar konungsins; þar er og prentað með svörtu letri á íslenzku gildi seðlanna, og er talan tilfærð með bókstöfum. Eyrir neðan standa með svörtu letri orðin: „Gefinn út samkvæmt lögum 18. septbr. 1885. Eyrir landsjóð íslands“, og hér ritar landshöfðinginn ytír Is- landi nafn sitt undir. Einn af em- bættismönnum bankans ritar og nafn sitt á hvern seðil. Talan sem sýnir gildi hvers seðils, er prentuð efst á honum og í horninu hægra megin. Liturinn á þessum tölum og á ýmsu skrauti er á seðlunuin finnst, svo og grunnlitur seðlanna er brúnn á 50 króna seðlunum, blár á 10 króna seðl- unum og grár á 5 króna seðlunum. Aptan á 10 og 5 króna seðlana er ekkert prentað; enn aptan á 50 króna seðlunum er kvennmannsmynd og tal- an 50 prentuð til beggja hliða innan í skrautgjörð. Á hverjum seðli er loks sett raðartala hans á tveirn stöðum. Uin brúagerð á J>júrsá og- Ölvesá. (Framhald). 2. Ber landssjóði að kosta brýrnar? í aðalefninu er öll greinin tilraun til að neita þessu spursmáli, eða, hún gengur út frá neitun þess sem sjálf- sagðri, svo hún kallar það sem lands- sjóður kynni að leggja til brúnna, blátt áfram „gjöf“. þessari skoðun til stuðnings bendir greinin á: að

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.