Bindindistíðindi - 06.12.1884, Qupperneq 6
6
gem berjast fyrir sama málefai, en mín skoðun er, að
Goodtemplarnir haö hentugri aðferð til að efla bindindi.
Margir finna það að fjelagi voru, að það heldur ýmsu
leyndu, en í leyndarmálinu er ekkert ilit, það er ekki
annað, enn að fjelagsmenn geta með merkjum sýnt að
þeir eru í fjelaginu, svo þeir geta með hægumóti fundið
fjelagsbræður sína, þetta er einkum gott fyrir sjómenn
er opt fara erlendis og vilja þá koma þar á deildarfundi
og njóta vinsemdar fjelagsbræðranna. það þykir engum
tiitökumál þó heimilisfjelög hafi opt ýmsa siði, sem öðr-
um útí frá er ekki sagt frá, og þetta leyndarmál vort,
er mörgum þykir tortryggilegt, er þá alveg sama kyns.
Vjer erum engir frímúrarar, og hver sem vill getur feng-
ið lög vor. Prestastjettin á Englandi var oss lengi and-
stæð, en hin enska kirkja er nn farin að sjá biudind-
isnauðsvnina, og hinar heillaríku afleiðingar bindindis-
starfans, svo nú eru biskupar og prestar svo hundruð-
um skiptir á voru máli*.
J>ess var þakklátlega minnst að stórþii.gið norska
hefði vel og heiðariega stutt bindindismálið, bæði með
löggjöf og fjárframlögum.
Stórþingsforseti Steen kvaðst með athygli fylgja
bindindishreyfingunum, og óskaði fjelaginu góðrar fram-
tíðar. Sagíú hann að þingið hefði með fjárveiting sinni
sýnt að það væri málinu hlynt. Uann kvaðst framvegis
vilja tala máli bindindisfjelaganna i þeirri trú, að þau
innu ættjörðinni gagn og sóma.
— 14.—18. apríl þ. á. hjelt Goodtemplarsstórdeild
Englands ársfund siun í Leicester. Af skýrslunum sást