Fjallkonan - 29.02.1884, Qupperneq 3

Fjallkonan - 29.02.1884, Qupperneq 3
F JALLKONAN. 8 8. d. Þórðr Guðmundsen, héraðslæknir í Gullbringus., leystr frá embætti án eftirlauna. S. d. Jóbannes Ólafsson, cand. jur., settr af ráðherranum málaflutningsmaðr við yfirdóminn. ie/v Jón Gimnlaugsson, skipasmiðr, skipaðr vitavörðr á Beykjanesi. 28/i' Benidikt presti Eiríkssyni í Guttormshaga veitt lausn frá prestskap í næstu fardögum með 370 kr. eftir- launum. S. d. Janus prestr Jónsson að Hesti settr prófastr í Borgarfjarðarprófastsdæmi. Óveitt cmbætti. (Talan framan við í brotslíki táknar auglýsingardaginn, talan aftan við tekjumar í krónum, -j- að við bættu lands- sjóðstillagi). 14/x. Héraðslæknisembætti í 2. læknishéraði (Gullbringu- sýslu). Laun: 1500 kr. ’/„. Kirkjubæjarklaustr. 1163. Prestsekkja á hlut í. a8/t. Beykholt. 1196. Hvílir á 800 kr. skuld til lands- sjóðs, er borgast skal með 100 kr. á ári, auk vaxta. ‘ Holtaþing. 753+200. %. Þykkvabæjarklaustr. 454+100. Prestsekkja áhluti. Meðallandsþing. 468+300. Staðarbakki. 1088. Yerðr eigi veittr fyrst um sinn enn prestr settr. Holt í Önundarfirði. 1356. Grundarþing. Erá því brauði greiðast 50 kr. Saurbær í Eyjafirði. Erá því brauði greiðast 250 kr. Prestsekkjur eiga hlut í. Dvergasteinn. Yeðrátt hefir í allan vetr verið mjög óstöðug og stormasöm bér syðra, en frost eigi mikil og snjór eigi fallið mjög mikill. Mest frost í Kvík. í janúar inn 26. 14° Cels.; mestr hiti inn 16. 7°. í febrúar mest frost inn 11. 9°; mestr hiti inn 5°. Oftast í jan. og febr. útsynningr. Úr öðrum hlutum landsins spyrst og óstöðugt og stirt tíðarfar, en all-vel látið yfir heýbirgðum meðal almenn- ings. Bezt tíð i Múlasýslum. Aflabrögð. Alment fiskileysi hér við Paxaflóa síðan fyrir nýár. Nýlega befir orðið fiskvart í Grindavík, og enda á Mið- nesi ogíHöfnum. Hákarlsafli hefir verið hér vestr um, og er enn talsverðr ef gæftir leyfðu. Látnir menn. 18/x. Þórðr prófastr Þórðarson, Jónassonar í Reykholti f. 2S/4. 1825. 21/i- Ungfrú Ingileif Benidiktsen í Beykjavík f. 27/7. 1861. 3%. Havsteen faktor á Akreyri, faðir Júlíusar amt- manns og þeirra systkyna. %. Símon Hannesson Johnsen í Beykjavík, kaupmaðr og sænsk-norskr konsúll, f. 22/6. 1848. Skólar. Vetrinn 1883—84. Talan aftan við nöfnin merkir fjölda stúdenta, lærisveina eða lærimeyja. Lcerði skblinn : 116 (í skólanum) -j- 14 (utan- skóla) = 130. Prestaskólinn : 8 (i efri deild) —j— 2 (í yngri d.) +• 1, er sækir forspjallsvísindi = 11. Læknaskólinn : 6. Möcfruvallaskólinn : 25. Búnaðarskólar : Eyðar : 6. Hólar : 7. Ólafs- dalr: 8? Kvennaskólar : ítvík : 24. Laugaland : 20. Ytri-Ey : 16. KvennaskóUim í Reykjavík vetrinn 1883—84. Annar bekkr. 1. Elín Þorleifsdóttir úr Árnessýslu. 2. Bagnheiðr Johnsen úr Barðastr.s. 3. Guðrún Gísladóttir úr ísafj.s. 4. Anna Ólafsdóttir úr Suðurmúlasýslu. 5. Margrét Þorkelsdóttir úr Kjósars. 6. Sigrún Daníelsdóttir úr Beykjavík. 7. Bóthildr Bjarnardóttir úr Borgarfj.s. 8. Vigdís Ketilsdóttir úr Gullhr.s. 9. Ólafía Petersen úr Gullhr.s. 10. Þórdís Jóhannesdóttir úr Barðastr.s. 11. Bósa Jónsdóttir úr Beykjavík. F-yrsti békkr. 12. Jóhanna Einarsdóttir úr Gullhr.s. 13. Bannveig Þorvarðardóttir úr Bvík. 14. Þóra Ólafsdóttir úr Bvik. 15. Elín Sigurðardóttir úr Bvik. 16. María ísaksdóttir úr Bvík. 17. Guðrún Guðmundsdóttir úr Bvík. 18. Jó- hanna Pálsdóttir úr ísafj.s. 19. Nikoline Petersen úr Bvík. 20. Jóhanna Stefánsdóttir úr Skagafj.s. 21. Mar- grét Einarsdóttir úr Bvík. 22. Guðný Jónsdóttir úr Bvík. 23. Oddrún Frímannsdóttir úr Húnav.s. 24. ísa- fold Jónsdóttir úr Kvík. BÖKMENTIR. BLÖÐIN. „ÞJÓÐÓLFRM, 36. árg. Yikublað; kostar 4 kr. 7 blöð út komin síð- an á nýári. Ritgerðir, er vér viljum sérstaklega benda mönnum á: „Hvað er þá að?u um endrskoðun stjórnarskrárinnar o. fl., meðal annars um, að konungr megi að eins hafa neitandi synjunarvald. — „Um þilskipaútveg og formenskuM eftir Markús Bjafnason (2. bl.) — „Kafli úr amtmansræðu (Magn. Stephensens á þingi í sumar) með smá- fleygum og randglósum frá Anti-Broddi (3. bl.). — Um skýrslu Pater- sons konsúls um harðærið 1882—83 eftir Eirík Magnússon (4. bl.). — „Um pósthús(leys)ið 1 RvíkM (5. bl.). — „Pólitiskt svefnþornM um til- raunir aftrhaldsmanna og vikaseppa þeirra, að leiða athygli alþýðu frá landsmálum (6. bl.). „ÍSAFOLDM, 11. árg. Vikublað; kostar 4kr. 9 blöð út komin síðan á nýári. Ritgerðir, er vér viljum sérstaklega benda almenningi á : „Stjórnarskrá íslands“ (2. bl.). — „Hugrinn minnir á, enn hönd og tunga framkvæmirM, eftir Finn Jónsson, um skoðanir framf.-manna og aftrk.-manna, þjóðvald í stað konungsvalds, frjáls trúarfélög, afnám forntungnanáms í skólum, jafnrétti kvenna á við karlmenn o. s. frv. (3. bl.). — Um manntjónið í vetr (8. jan.) og „um bjargráð í sjáfar- háska og nytsemi loftþyngdarmælis fyrir sjómenn (4. bl.). — Meira um sama efni eftir Árna landfógeta. [Getr þess, að fáeinir dropar af lýsi nægi til að jafna ferkyrnda alin á sjó, og að það hafi verið lagt til á Skotlandi, að hver bátr ætti jafnan að hafa til taks 5—10 potta af lýsi ef á þyrfti að halda til að draga úr ósjó. í útlendu blaði höfum vér lesið, að af 10 pt. lýsis kom brá á sjóinn á 2000 □ álna svæði, og veitti þá 4 mönnum léttara að róa enn 8 áðr. Þetta ráð hefir og oft hér á landi komið að góðu liði. Loftþyngdarmælir til að hafa á bersvæði til almenningsnota segir höf. að muni kosta 120 kr. og þar að auk alt að 100 að setja hann upp] (6. bl.). — „Konráð MaurerM, æfi- ágrip eftir Finn Jónsson (8. bl.). — Nokkurar greinir hafa og verið í ísafold um ina fyrirhuguðu blautfisksverzlun við Englendinga bæði með og mót, en fleiri munu þó vera á því, að það muni vera heilla- vænlegt fyrirtæki. „SUÐRIM heldr dyggilega áfram að þagga niðr raddir þær, er hin blöðin hafa látið til sín heyra um, að yfirstjórn landsins og stjórnar- athöfnum sé í ýmsu ábótavant, en básúnar lof stjórnarherrans og heldr uppi skildi fyrir amtmannaembættunum. „NORÐANFARIM syngr sitt venjulega líksöngslag, og „FEÓÐI“ kom eigi með síðasta pósti. „AUSTRIM heitir nýtt blað, er kemr út í prentsmiðju þeirri, er Aust- firðingar keyptu af Jóni alþm. Ólafssyni og nú er stofnsett á Seyðis- firði. 1. og 2. blað komið hingað. Ábyrgðarmaðr Páll Vigfússon, cand. philos. á Hallormsstað. Árg. 3 kr. „HEIMDALLRM heitir nýtt blað, er bóksali Björn Bjarnarson í Khöfn er farinn að gefa út. Kemr út ein stór örk á mánuði og kostar árg. 3 kr. NÝJAR BÆKít. Síðan um nýár hafa smábæklingar einir komið út, og er sumra þeirra varla getandi. „SULLAVEIKIN og varúðarreglur gegn henniM. Eftir dr. J. Jónassen. Gefið út á kostnað landssjóðs í 7000 expl., og útbýtt ókeypis. Svo stórt upplag hefir eigi verið prentað hér fyrri af neinu riti, en svo er til ætlazt, að rit þetta komist á hvert heimili. — Ráðum vér alþýðu al- varlega til að lesa það. (Prsm. S. G.). „LÚTERS MINNING, íjórum öldum eftir fæðing hansM. Eftir Helga prestaskólakennara Hálfdanarson, 64 bls. 8vo. (Prsm. S. G.).

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.