Fjallkonan - 08.09.1884, Side 1

Fjallkonan - 08.09.1884, Side 1
15. BLAÐ. REYKJAVÍK, 8. SEPTEMBER. 1884. *TTM: I'KÍKIEKJUPÉLA.eiÐ OG UM HÁSKÓLA Á LAKDI HÉR. í 13. blaði „Fjallkonunnar“, er út kom núna 20. ágústm., stendur greinarkorn eptir einhvern X. um ,,Reyðfirðingana og þjóðkirkjuna'1, sem mér finnst engan veginn vel samin, þó það sé mikið orðagjálfur í henni. — Höfundurinn byrjar þá fyrst á því, að lýsa yfir gleði sinni, að nú sé svo komið, að fríkirkju söfnuður Reyðfirðinga sé fullmyndaður, þar sem þeir hafi fengið sér prest og kirlcju, og óskar hann og vonar að fleiri söfn- uðir verði smám saman til að fylgja dæmi þeirra. Síðan fer hann að fræða menn á því, að presta- skólinn sé með öllu ónógur til þess að frá hon- um geti komið viðunanleg prestsefni; það sé ekki nema vitleysa ein, að vilja kQma hér á hærri vísinda stofnunum, því ísland liggi svo af- síðis frá frjófgunarstraumum heimsmenntunar- innar“, og líka séum vér svo fámenn þjóð, og þess vegna svo lítils umkomnir bæði í líkamleg- um og andlegum efnum til að halda slíkri stofn- un í gildi. Vitnisburður sögu vorrar sé sá, að þá einmitt hafi vísindalegt líf staðið hér í beztum blóma, er íslendingar báru sig eptir þvi þangað, sem það var að finna og komu með það ferskt og fjörugt frá báskólum norðurálfunnar, en létu sér ekki nægja að hýrast heima í von um, að það yrði fært þeim á sængina. Mér getur nú ekki betur skilizt, ég segi ,það satt, en að höfundurinn sé með grein þessari í rauninni miklu fremur að skopast að Reyðfirð- ingum, en að samgleðjast þeim, því hann nefnir ekki með einu einasta orði, að þeir séu nokkru sælli eða nokkru nær, þó þeir séu búnir að út- vega sér prest og byggja sér kirkju, en hitt veit hann, að allir vita, þó hann ekki minnist á það, að þeir hafa bafa bakað sér með þessu ráðlagi sínu mestu útgjalda, því allir sjá, að auk þess sem þeir verða að gjalda til sóknarprestsins og sóknarkirkjunnar öll lögboðin gjöld, sem hverjir aðrir, hafa þeir orðið að gefa út mikið fé til kirkjubyggingarinnar, og svo kostar þá nokkuð afr við halda henni," og þar til er mælt, að þeir verði að gjalda þessum nýja presti sínum 1800 kr. í laun ár hvert. Og hvernig getur nú höfundinum þótt það tilvinnandi fyrir Reyðfirð- inga að baka sér allra þessara útgjalda, og fá að eins í staðinn prest, sem að eins hefir lært á^ prestaskólanum, þessari vísinda kytru, er hann svo nefnir, og sem hann segir, að hafi sýnt sig „duglausan til frjálsra rannsókna í trúarefnum og því einnig vanmáttugan um að verka vekjandi á presta og söfnuði?“ f>að er vonanda, að fleiri slíkir söfnuðir myndist ekki hér á landi, og að þeir láti sér víti Reyðfirðinga að varnaði verða1. það er allt annað mál, að söfnuðirnir mættu fá nokkurn meiri þátt í að kjósa presta sína, en þeir nú um tíma hafa haft. Höfundurinn hefir í grein sinni, sem fyr er sagt, lýst því áliti sínu yfir — þótt það ekki komi nokkuð þessu máli við, þar sem hann er að fræða menn á því, að Reyðfirðingar hafi nú fengið sér prest og byggt sér kyrkju — að það sé ekki nema vitleysa eintóm, að vilja koma upp hér á landi háskóla, því 1., séum vér svo langt i burtu frá frjófgunarstraumum heimsmenntunar- innar og líka 2., svo fá menn þjóð, 3., horfi menn hér ekki í, að fleygja út tugum þúsunda ár hvert I til að geta látið hópa af hálaunuðum embættis- mönnum sitja kreppta í ofnstofum æfilangt yfir svo sem 4—5 eða enda yfir 2—3 stúdentum, og 4., hafi vísinda líf hér á landi staðið í beztum blóma, þegar íslendingar báru sig eptir því þang- að sem það var að finna, og komu með það ferskt og fjörugt frá háskólum Norðurálfunnar. þ>að verður nú hver heilvita maður að sjá, að þessar röksemdir höfundarins eru gripnar út úr loptinu, og sanna ekki hið allra minnsta; eða hví skyldum vér ekki mega komast inn í þenna frjófgunarstraum heimsmenntunarinnar með því að stofnsetja háskóla hjá oss? og hvað fjölmenn á ein þjóð að vera til þess að mega stofnsetja háskóla hjá sér? pað væri gott, að höfundurinn vildi skýra mönnum betur frá þessu hvorutveggju, því menn geta þó ekki trúað honum í þessu, þótt hann segi það út í bláinn. Og hvað 3. á- stæðu hans snertir, þá er hún auðsjáanlega sprott- in af því, að hann heldur, að háskóli hér á landi mundi verða langtum kostnaðarsamari að tiltölu, en háskólar séu í öðrum löndum, því að vér kunnum eigi að spara eins og aðrar þjóðir gjöri; hann ímyndar sér auðsjáanlega, að háskóla- 1) f>ótt Reyðíirðingar hafi kostað ærnu fé til að koma upp fríkyrkjusöfnuði og fá sér prest og kyrkju, þá kemr það ein- ungis þeim sjálfum við, og getr ekki verið ástœða móti fyrir- tæki þeirra; ef aldrei ætti að gera neitt, sem kostaði fé eða fyrirhöfn, yrðu framfarirnar litlar. Reyðfirðingar munu þykjast bærir að ráða fé sínu, og þar sem þeir sjálfir fúslega vilja leggja stórfé í sölurnar til þess að vera lausir við þjóðkyrkjuna, þá er ekki annara manna að fást um það. liitstj.

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.