Fjallkonan - 30.10.1884, Blaðsíða 3

Fjallkonan - 30.10.1884, Blaðsíða 3
FJALLKONAN. 79 í fyrra kom merkr höfundr og loftfaramaðr, að nafni Tissandier, upp með það, að nota rafmagn til að hreyfa loftför, enn honum tókst eigi að fá bát sinn til að láta að stjórn, og heldr eigi að hleypa honum beint niðr þangað sem hann vildi. Nú er svo að heyra, sem bót sé ráðin á þessum vankvæðum, og er svo sagt, að á þ>ýzkalandi, Frakklandi og Rússlandi hafi um sömu mundir hepnazt að stýra loftförum. Frakkneskir menn, Renard og Krebs, er þó talið, að hafi orðið fyrstir til að stýra loftfari. Níunda dag ágúst- mánaðar í sumar er leið, stigu þeir á loftfar, sem á var stýri og skrúfa og rafmagnsvél. þeir fóru fram undir danska mílu (7 kilom.) á 23 mínútum, og stýrðu loftfarinu jafnauðveldlega sem gufu- skipi má stýra á sjó, og komu síðan niðr á sama stað, er þeir höfðu frá farið. J>eir hafa verið að smíða loftfarið i 6 ár og vegr það með öllum á- höldum 4000 pund. Flugbelgrinn er 75 ál. á lengd og 12—13 ál. í þvermál, og í lögun áþekkr tóbaksvindli. Rafmagnsvélin hefir 12 hesta afl. Skrúfan er að framan, enn stýrið að aftan. Bátr- inn er sjálfr 50 álna langr. Sitja farþegar í hon- um miðjum og hafa þar stjórn á vélinni og stýrinu. Dolítor í licimspeki er orðin fyrst allra kvenna á Englandi Miss Mary Clara Davis. Hún gekk undir próf í sumar við háskólann í Lund- únum. Hún er afbragðs vel að sér í fornum mál- um og sögu, bæði fornri og nýrri. Mörg hundr- uð kvenna ganga nú á háskóla á Englandi. Hjátní hefir átt sér stað á öllum öldum og hjá öllum þjóðum, því að ávalt hafa mennirnir reynt að rýna lengra enn skilningarvitin hafa get- að til náð. Vér þekkjum allir álfatrú, draugatrú, djöflatrú og galdratrú. Slík hindrvitni hafa geng- ið meðal allra þjóða, og öllum er kunnugt, hvé Lúther gamli var trúaðr á „makt myrkranna“; hann trúði göldrum og gerningum og því, að djöfullinn gengi bersýnilegr manna á milli og ætti jafnvel börn við konum. |>annig var trú- in í þá daga, og það var eðlilegt, að Lúther gæti eigi hafið sig að öllu yfir hugsunarhátt aldar sinnar. Nú er in forna hjátrú víðast þrotin, enn á þessari öld og einkum á síðari hlut hennar er ný hjátrú upp komin, og samkvæmari verðandi tíma. Skal hér drepa á sumar þessar kynjar, er fæstir munu festa trúnað á, þótt menn eigi gerla viti hversu þeim er farið. Andatrú (spiritism) fylgja þeir menn, er þykj- ast tala við anda eða sálir dauðra manna, sem sé á sveimi meðal mannanna. Viðræður við ina dauðu menn fara fram á ýmsan hátt enn venju- lega með því móti, að andinn klappar í borð og má svo setja saman stafi og orð eftir höggva töl- unni. Tveir menn eru þá venjulega sinn hvorum megin við borðið; þeir eru meðalgöngumenn eða „media“, og þeir fram leiða andana. Stundum skrifa líka andarnir. í Ameriku aðhyllist fjöldi manna þessar kenningar (spiritistar). þ>ar er það alltítt, að dauðir menn prédiki í kyrkjunum, nátt- úrlega fyrir tnunn meðalgöngumanna. Fjöldi af blöðum og bókum kemr út á hverju ári frá spiri- tistum, og má þar iðuJega lesa ritgerðir og ræður er dauðir menn hafa samið eða flutt. — Menn þykjast hafa komizt að ýmsum brögðum, spiritistar beiti til að leika þannig á auðtrúa menn. Huglestr (thought-reading) heitir sú list, að geta rýnt eftir því, hvað menn hugsi um. Tveir Englendingar, að nafni Cumberland og Bishop, hafa leikið list þessa í höfuðborgum á Englandi, Frakklandi og þýzkalandi, og með því að sög- urnar segja, að þeim ratist oft satt af munni, er þeir renna grun í, hvað menn sé að hugsa um, hefir mörgum orðið að festa trúnað á þeim. Bishop var í Kaupmannahöfn í sumar og gerði þar ýmsar tilraunir, og þóttu margar hepnast. Ritstjóri blaðsins „The Truth“ á Englandi hefir mælt mjög í móti Bishop, og talið hann fara með hindrvitni, enn eigi als fyrir löngu er mælt, að Bishop hafi þózt færa honum heim sanninn, er hann gizkaði rétt á tölu á bréfpeningi, er lokaðr var í umslagi og ritstjórinn hafði veðjað stórfé um, að Bishop mundi eigi geta gizkað rétt á. Bishop segir annars, að þetta sé engin list, enn þykist gæddr slíkum yfirburðum af náttúrunni. Segulsvæfing (magnetisering) heitir sú kunn- usta, að geta svæft menn og síðan lagt fyrir þá að gera hvað sem verkast vill, eftir að þeir eru vaknaðir aftr. f>essa list leikr nú fremstr allra frakkneskr maðr að nafni Liegeois, prófessor við lagaskóla í Nancy. Hann er í miklu áliti, og jafnvel frægir vísindamenn þykjast vera sann- færðir um, að hann fari eigi með hégiljur, heldr hafi hann stigið ný framfaraspor á vegi vísind- anna. Hann hefir svæft menn og skipað þeim síðan að gera eitthvað, annaðhvort þegar í stað er þeir vakna, eða dögum eða mánuðum síðar, og vita sofendr ekki af neinu, enn framkvæma það, sem fyrir þá hefir verið lagt, í ákveðinn tíma, og eru þá knúðir af svo sterkri fýst, að þeir hljóta að gera það nauðugir viljugir. Á þenna hátt segir Liegeois, að láta megi ráðvöndustu og beztu menn fremja hryllilegustu glæpi móti vilja sínum. Hann þykist hafa komizt að raun um þetta með tilraunum. — Hitt er alltítt, að segul- svæfðir menn gangi í svefni og geri það sem þeim er skipað. — Sem nærri má geta, eru þeir fleiri, sem ætla, að hér sé fremr brögð í tafli enn að segulsvæfingar styðjist við sannleik og vísindi. Y firlýsing. Út af ummælum þeim, sem stóðu í sfðasta blaði „Fjallkonunnar“ um stud. theol. Skúla Skúla- son og „Ingólfs“-félagið, finnr stjórn félagsins skyldu sína ótilkvödd, að lýsa yfir því, að ummælin eru alveg ástæðulaus. Skúla bar aldrei að halda tölu á söngmönnum, hann vanrækti í engu starf sitt sem skrifari og hann kom í öllu vel fram í stjórn- inni. — þ>að er án vitundar vorrar, að téð um- mæli komu fram, og álítum vér yfir höfuð litt

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.