Fjallkonan - 13.02.1885, Side 2
10
FJALLKONAN.
er vér þar studdumst við síðan verið prentað í
islenzkri þýðingu. Aðr enn vér förum að íhuga
drykkjuskapinn hér á landi, viljum vér hér færa
ágrip úr skýrslu, er vér höfum í höndum um
drykkjuskap í ýmsum löndum.
Svo telzt til, að árleg nautn áfengra drykkja
í lóndum þeim, er hér skal greina, sé á þá leið
að i franskr pottr(i litri — t3/100 pottr að dönsku
máli) komi á hvert mannsbarn
af brennivíni af vini af öli
í Kanada (50%) 3-2 8 0.29 8.51.
- Noregi 3-9° 1.00 •5-30.
- Bandaríkjunum . . 4-79 2.64 31-30.
- AustrríkiogUngaralandi 5.76 22.40 28.42.
- Frakklandi 7.28 I 19 20 2 1.10.
- Rússlandi .... 8.08 ? 4.65.
- Svíþjóð 0.36 I 1.00.
- J>ýzkalandi : í Sambandslöndunum 8.60 6.00 65.00.
- Bayern .... 4.31 ? 203.00.
- Belgíu 3-70 169.20.
- Danmörk 18.90 1.00 33-33-
Af þessari töflu má sjá, að mest er að til-
tölu drukkið af brennivíni í Danmörku, af víni
mest í Frakklandi og af öli langmest í Bayern
og þar næst í Belgíu.
£>á er nú skal bera saman nautn áfengra
drykkja framan af þessari öld og til þessa tíma,
þá kemr það upp, að brennivínsdrykkja hefir meir
enn þrefaldazt á Frakklandi síðan 1830. í Svíþjóð
komu 54 pottar af brennivíni á hvert manns barn
1830; 1860 komu þar að eins rúmir 5 pottar á
hvert mannsbarn og 1880 rúmir 8 pottar. pessu
hafa bindindisfélögin að miklu leyti komið til
leiðar. í Noregi komu 16 pottar af brennivíni á
hvert mannsbarn 1833, enn 1880 að eins tæpir 4
pottar. f>etta má einnig eflaust að miklu leyti
þakka bindindisfélögunum. í Kanada komu 1861
tæpir 7 pottar af brennivíni á hvert mannsbarn,
enn 1880 rúmir 3 pottar. þ>ar fer því drykkju-
skapr mjög svo minkandi, enda er þar feikna hár
tollr á brennivíni, enn hærri enn í Bandaríkj-
unum.
Vér höfum þá séð, hversu miklu er eytt af
áfengum drykkjum í ýmsum löndum og hversu
þjóðirnar hafa víða tekið sér fram og lagt niðr
drykkjuskap að miklu leyti, svo að nú er víða
eigi drukkið ið hálfa á við það sem áðr var
drukkið og sumstaðar miklu minna. í þriðja hluta
greinar þessarar víkjum vér sögunni til íslands
og athugum, hversu á stendr hjá oss í þess-
um efnum.
(Meira.)
ÚTLENDAR FRÉTTIR.
Kaupmannahöfn. 14. janúar.
Svíþjóð. f>ess er getið í síðustu fréttum, að
bók eftir August Strindberg, er „Giftas“ heitir,
var gerð upptæk, og hann sjálfr ákærðr fyrir að
hafa farið hneykslanlegum orðum um sakrament-
in. Strindberg kom sjálfr heim til Svíþjóðar, og
varði mál sitt, og var hann dæmdr sýkn saka;
tók þjóðin því með mesta fögnuði. — Kosning í
stað þeirra 19 manna, sem vóru dæmdir ólöglega
kosnir, fór fram þann 10. janúar, og sigruðu allir
þeir, sem frjálslyndi flokkrinn mælti fram með,
með þriðjungi fleiri atkvæðum' enn fyr; einn af
þeim var Nordenskjöld. — Ur Noregi er ekkert að
frétta, nema þar stjórnar Sverdrup og stjórnar vel.
f>ar er nýdáinn P. Chr. Asbjörnsen, inn nafnfrægi
þjóðsagnaritari, merkismaðr að öllu leyti.
Frakkland. Ofriðrinn við Kínverja heldr
altaf áfram. Smábardagar hafa iðulega orðið í
Kina ; og hefir Frökkum jafnan veitt betr. Ráð-
gjafaskifti urðu núna eftir nýárið; hermálaráðgjaf-
inn Campenous er farinn frá, enn í hans stað
kominn Lewal hershöfðingi; hann hefir þegar
gert þá ráðstöfun, að senda 5000 hermanna til
Kína, og á þar nú að skríða til skarar, enda er
þess öll þörf, því ófriðrinn hefir staðið næsta lengi.
Kólera geysaði ákaflega í París síðari hlut
nóvembermánaðar, enn nú virðist hún liggja niðri.
f>að virðist ekki vera svo fjarri lagi, að menn
heima á íslandi væru dálítið varkárari, þegar
frönsku fiskiduggurnar fara að koma heim í
febrúar og marz.
Englaild. Endrbót kosningarlaganna var sam-
þykt án atkvæðagreiðslu við þriðju umræðu i neðri
málstofunni. Salisbury treystist eigi að standa á
móti, og var það því sömuleiðis samþykt í efri
málsstofunni, og fékk þegar staðfestingu drotn-
ingar. fvi hefir verið fleygt, að Gladstone mundi
ætla að fara að segja af sér, enn það er borið
til baka. 13. des. var reynt að sprengja London-
arbrúna, haldið af völdum Fenía. — Af Egipta-
landi er það að frétta, að ýmist hefir Mahdinn
verið sagðr dauðr eða Gordon, enn alt reynzt
ósannindi, enn annars vita menn ekkert þaðan
með vissu. J>að er sagt, að Gordon hafi mjög
þröngt að Mahdianum, enn fari svo, að Englend-
ingar taki Egiptaland, er hætt við, að fjóðverjum
og Frökkum þyki nóg um. Wolseley lávarðr er
nú á leiðinni til Karthum til hjálpar við Gordon.
f ýzkaland. Um Brúnsvíkrerfðamálin er það
að segja, að engar likur eru til, að hertoginn
af Cumberland nái þar yfirráðum, því að Vil-
hjálmr keisari skoðar hann sem skæðan óvin sinn.
Um daginn kom sú fregn upp, að Bismarck
ætlaði til Parísar; alt komst í uppnám; frönsku
blöðin kváðu hann sjálfan verða að ábyrgjast af-
leiðingarnar, enn þetta reyndist lausafregn. Bis-
marck á í töluverðum þrætum við þingið; hann
hefir komið fram með nokkur frumvörp, enn þing-
ið hafnað, svo að þar gengr hvorki né rekr.
Spánn. Síðast í desember urðu gríðarmiklir
jarðskjálftar sunnantil á Spáni. Jörðin rifnaði og
hús hrundu, og mörg hundruð manns biðu bana.
Jarðskjálftarnir hafa haldizt við alt þangað til nú
og gert afarmikinn skaða, einkum í Granada.
Ameríka. Kosningum þar lauk svo, að
Cleveland sigraði Blaine. Cleveland er „demokrat“,
enn Blaine „republikaner“. Munaðarleysingjahúsið
ií Brooklyn brann til kaldra kola; nokkur börn
1 brunnu inni.