Fjallkonan - 13.02.1885, Blaðsíða 3
FJALLKONAN.
11
Frá íslendingum í Höfn. íslendingafélag
hefir svo aukizt og magnazt, að nú eru í því
milli 90 og ioo manns, karlar og konur, enda
hefir félagið átt duglegan formann, þar sem kand.
júr. Páll Briem er; hefir aldrei verið svo fjðl-
ment í neinu íslendingafélagi í Höfn fyr. í fé-
laginu hafa verið haldnir margir fróðlegir og
skemtilegir fyrirlestrar af ýmsum. Dr. Rosen-
berg, sem mörgum mun kunnr heima á Fróni,
talaði um samhljóðan milli fornnorrænna og forn-
persiskra goðasagna. Dr. F. Jónsson um Jón Sig-
urðsson. þorvaldr Thoroddsen, kennari, um ferðir
sínar á íslandi í sumar, kand. júr. Páll Briem
um kvenfrelsismálið. Dr. Schandorph, eitt af höf-
uðskáldum Dana, las upp sögu eftir sig. Að því
búnu settust menn að drykkju, og mælti hann
þá fyrir minni íslands. og bað menn bera kveðju
sína fornkunningja sínum, skáldinu Stgr. Thor-
steinsson. J>á hefir varaprófastr Eir. Jónsson talað
um íslendinga í Khöfn eldri og yngri, og loks
stúd. mag. Jón Jakobsson um mælsku. Dansleikr
er haldinn einusinni á mánuði. Á J>orláksmnssu
hélt félagið jólagleði i Seecamps Locale. Varþar
fyrst leikin „Prófastsdóttirin11 eftir þá Valtý Guð-
mundsson og Stefán Stefánsson; þótti það in
bezta skemtun, því að bæði líkaði mönnum
leikritið vel, og svo var leikið ágætlega; tveir
menn úr söngkapellu hins kgl. leikhúss skemtu
milli þátta með fögrum hljóðfæraslætti og söng.
Eftir leikinn var tekið til matar, og mælti þá Eir.
varapróf. Jónsson snjallt fyrir minni J>orláks gamla
helga; þá var sungið kvæði eftir stúd. júr. J>or-
stein Erlingsson fyrir minni íslands, og mælti
hann fyrir því. J>á var sungið minni Jóns Sig-
urðssonar, og mælti Dr. Finnr Jónsson fyrir því.
J>á stóð upp generakonsúl etazráð H. A. Clausen,
og mælti fyrir minni leikanda. J>essu minni svar-
aði stúd. mag. Stefán Stefánsson með þvi að mæla
fyrir minni hinna íslenzku kaupmanna. J>ví næst
hófst dansleikr og stóð til kl. 3. Luku allir upp
einum og sama munni, að slíka skemtun hefðu
menn aldrei haft fyr í Höfn. Á aðalfundi félags-
ins eftir nýjárið var kosin ný stjórn, og hlutu
þessir kosningu: Dr. Finnr Jónsson, læknir Mor-
itz Halldórsson Friðrikssonar, stúd. mag. Stefán
Stefánson, stúd. mag. Bogi Th. Melsteð og stúd.
júr. Klemens Jónsson.
Dr. Finnr Jónsson heldr fyrirlestra við há-
skólann í vetr, skýringar yfir Njálu.
Verzlunarfréttir. í árslok 1884 vóru óseld
í Khöfn 5000 pd. af íslenzkri ull. Verð á ull var
þar síðast: norðlenzk hvít ull 62—63 aura, bezta
tegund, enn 57—60 aura lakari tegund; sunnlenzk
og vestfirzk ull 56—58 aura. Mislit ull á 48—51
eyri. Svört ull 75 aura. Oþvegin haustull 50—55
aura. Á Englandi seldist hvít ull á 69 aura (bezta
norðlenzk ull) í september. Síðan ekki meira enn
63 aura. Mislit ull 12—16 aurum ódýrari.
Af íslenzku lýsi vóru í árslok óseldar 500
tunnur i Khöfn. Dökt þorskalýsi seldist þar síð-
ast á 36—44 kr. tunnan og dökt hákarlslýsi á
34—42 kr. Nokkuð fluttist héðanaflandi af gufu-
bræddu lýsi í sumar og seldist það einungis 2—4
kr. hærra enn annað lýsi. Er því svo að sjá, sem
það hafi eigi verið annað enn skrum og hégómi,
er ráðgjafi íslands taldi íslendingum trú um, að
fá mætti afarhátt verð fyrir gufubrætt lýsi (sbr.
bréf ráðgjafans til landshöfðingja um það efni).
Af ísl. saltfiski vóru óseld í Khöfn í árslok
470 skpd. Verðið á honum var síðast í Höfn 54
kr. mest, enn seldist jafnvel á 50—45 kr. Ysa
seldist þar 26—30 kr. Langa 46—60 kr. Óhnakka-
kýldr fiskr 68—75 kr. Mjög er kvartað um sam-
keppni Frakka í fiskiverzlun á Spáni, og lýtr
helzt svo út, að alveg verði hætt að senda fisk
til Spánar frá Norðrlöndum. Saltfiskr frá ísafirði
seldist seint í sumar er leið til Spánar fyrir 64—66
kr. skpd., enn það var langbezti fiskrinn. J>að var
hæst verð á íslenzkum saltfiski í sumar.
Harðfiskr hefir selzt vel árið sem leið í Höfn:
122—140 kr.
Af söltuðu sauðakjöti ísl. vóru óseldar í Kh.
900 tunnur við árslok. J>að seldist í haust á 51 */2—
53 kr. Ið bezta komst í 55 kr. tunnan (224 pd.).
Af tólg vóru óseld í Höfn 41000 pd. um árs-
lokin. Verð 32 — 34 au. pd.
Af sauðargœrum vóru um árslok óseld rúm
9000. Verð 4—5 kr. gæruvindilinn (2 gærur).
Æðardúnn er að hækka í verði. Var 19 kr.
50 aura pundið í árslokin.
INNLENDAR FRÉTTIR.
Eeykjavík, 12. febrúar.
Póstskip lagði héðan til Khafnar 8. þ. m.
að morgni. Fóru með því fáeinir verzlunarmenn
hér úr bænum og einn að norðan.
Margar nauðsynjavörur fást nú ekki hér 1
bænum, þó leitað sé með loganda ljósi hjá öllum
inum mörgu kaupmönnum. Á hinn bóginn er
enginn skortr á ónauðsynlegum vörum og mun-
aðarvörum, svo sem brennivíni og öli, enda virð-
ast kaupmenn nú, síðan árferði tók að harðna,
einkum láta sér um það hugað, að hafa nægar
byrgðir af ölföngum og öðrum óþarfa, og sum
kaupmannapeð, sem sprottið hafa hér upp á síð-
ustu árum, selja mest megnis brennivín, öl og
tóbak, því að þeir eru eigi færir um, að ráðast í
stór vörukaup, og hinir stærri kaupmenn keppast
síðan á við þá um munaðarvörurnar, enn skeyta
minna um almennar nauðsynjavörur. Nú fæst
hvergi hér í bænum steinolía, og ýmsar fleiri nauð-
synjar eru annaðhvort ófáanlegar eða á þrotum,
þó póstskip sé nýkomið.
Yeðrátt ernú köld, og sífeldir norðanstorm-
ar rokhvassir hafa nú gengið í hálfan mánuð.
Ekki hefir snjóað hér við sjó fram, enn byljir hafa
verið til sveita. Frost hefir hér verið um 6 stig
síðustu dagana.
Fréttabréf. Suðr-pingeyjarsýslu í desember.
„J>egar Vestfirðingar sendu út áskoranir i vor sem
leið um Jfingvallafund, þá vöknuðu nokkurir
ungir menn hér í Mývatnssveit og Bárðardal til
þess að hugsa um mál þetta. |>eir komu sér sam-
an um, að stofna politískanflokk, sem skyldihafa