Fjallkonan - 08.02.1887, Page 3
F.TALLKONAN.
15
vinir í Vínarborg og Austrrikisvinir í Pétrsborg, enu livað sem
því líðr, munum vér jafnt og stöðugt kosta kapps um að friðr-
inn megi haldast.
Við Frakkland eigum vér varhentara. Hvort kappstreitu vorri
við riki þetta er lokið til fulls eða ekki, get ég ekki um sagt.
Vér höfum enga friðar viðleitni sparað gagnvart Frakklandi.
Það hefir aldrei verið ásetningr minn að fara i strið við Frakk-
land, ef vér ekki yrðum neyddir til þess, enn ekki getóg vitað
nema þetta kunni að koma að höndum. Svo mikið get ég að
eins sagt, að hafi Frakkland sama hugartar og vér, þá lendir
oss aldrei í styrjöld við það framar. (öóðr rómr).
Árið 1871 var ég lengi að skoða huga minn um, hvort vór
ættum að taka herborgina Metz eða ekki, enn þegar sagt var
við mig: Metz er 100,000 liðsmanna igildi, þá sagði ég við
sjálfan mig: ’látum oss bara taka hana‘. (Hlátr).
Nú er ekki ólíkt ástatt og þá. Ef þér veitið oss liðsmanna-
tölu þá, er vér förum fram á, þá er það i væntanlegum ófriði
miklu meira virði enn fjárkostnaðr sá, er til þess gengr. Gleym-
ið ekki því, sem saga Frakklands kennir oss, að það er minni-
hlutinn, enn meiri hlutinn ekki, sem úrslitum ræðr í því landi,
og þegar horfurnar eru þannig þá segi ég: vtr komumst í
gtríð við FYakkland. Hvort striðið hefst að 10 dögum eða 10
árum liðnum, það er alt undir því komið, hvað lengi þeir stjórn-
endr sitja að völdum, sem nú eru. Ég get þvi ekki veitt hér
nein triðar fullyrði; slíkt væri markleysa ein og munnfleipr.|
Frumvarpsástæðan er hætta sú, er yfir oss vofir frá Frakk-
landi. Hyggið að, hvílík ógæfa getr hlotizt af stríði við Frakk-
land. Og þessa ógæfu má ef til vill koma i veg fyrir, eða
fresta henni, með því að samþykkja frumvarpið, því stríðið mun
dynja yfir á sama augabragði sem það hyggr sig vera oss yfir-
sterkara. Jafnframt sem Frakkar þykjast hafa fjölmennari her,
fullkomnari skotvopn og betra púðr enn vér höfum, mnnu þeir
samstundis hefja ófriðiun.
Ekki er það ætlun mín að vér munum undir verða í slíku
stríði, enn hættan er mikil, og þegar vorir hugprúðu herfor-
ingjar lýsa skýlaust yfir, að brýna nauðsyn beri til, að auka
herafla vorn, þá væri velmikil dirfska að bera brigðr á orð
þeirra. Frakkland er auðugt land og voldugt, og ættum vér
helzt ekki að gera oflitið úr atta þess. Það nægir alls ekki að
vér höfum lamið á Frakklandi einu siuni; vér verðum aðskapa
oss fulla tryggingu fyrir nýjum sigri. Vinni Frakkland sigr á
oss, þá munum vér lifa upp aftr sama ófagnaðinn og yfir oss
gekk árið 1807. Þá mundi Elsass-Lothringen og Rínarlönd-
in verða frá oss tekin; konungsríkið Hannover endrreist og vér
mundum verða kvaldir til síðasta blóðdropa. Enn ef vér hins
vegar verðum neyddir til að fara í stríð við Frakkland, og ef
vér kæmum til Parísar í annað sinn, muuum vér heldr ekki
verða mjúkhendir, heldr gera Frakkland óskaðvænt í fullan
mannsaldr. (Góðr rómr).
í þessu máli mun sambandsráðið tafalaust neyta þeirra rétt-
inda er því bera samkvæmt alríkislögunum, og það mun aldrei
una því, að lögin gildi fyrir skemra tímabil enn þau 7 ár, sem
farið er fram á. Vér höldum því fastlega fram 7 ára bil-
inu. Verði frv. ekki samþykt óbreytt eins og það liggr fyrir,
þá neyðumst vér til að framfylgja málinu á nýju rikisþingi".
Bréf frá París.
15. jan. 1887.
Eg geri ráð íyrir að flestum íslendingum þyki t'róð-
legt að fregna eitthvað héðan, og ætla eg því að rita
yðr fáeinar línur um borgina og lífið í henni.
París er hér um bil 15 mílur frá sjó. í gegn um
borgina fellr áin Signa (Seine, frb. Senn). Liðr hún
áfram með leynistraumi og hringsveipum, kolmórauð
sem jökulárnar á íslandi. Á ánni er 21 brú; þær
eru allar rammgervar úr stórgrýti og eru bogabrýr.
Eftir ánni ganga litlar eimíerjur, og má fara með
þeim um þvera borgina fyrir 30 cent. = 20 aura ;
er það hér um bil helmingi lengra enn úr Reykja-
vik suðr í Hafnartjörð (þ. e. I1/, mila). Áin er ekki
breiðari enn stórár á íslandi.
Líf manna hér er uyög svo breytilegt sem nærri
má geta. Mikillæti og vesöld, auðr og fátækt er hér
hvað innan um annað eins og gerist i stórborguuum,
enn mismuurinn á lífinu verðr venjulega þvi meiri
sem borgirnar eru stærri. Parisarbúar eru 21/, milj.
að tölu; er talið svo til, að saunir þurfaraenn, sem
vakna svo að morgni að þeir vita ekki með hverju
þeir eiga að seðja hungr sitt, só ylir 200,000 manna,
enn hinir, sem séu svo efnum búnir að þeir þurfi
ekki að vinna sér til uppeldis, sé um 300,000 inanns,
eða varla það.
Kurteisi i viðmóti og framgöngu er hér mjög svo
algeng. Varla er nokkur svo aumr stráksnáði, að
ekki sé hann kallaðr monsieur (frb. mossjö = herra
minn) i ávarpi, né heldr nokkur kvennvæfla svo vesöl,
að ekki sé kölluð madame eða madamoiselle (= fröken).
Flestir ganga hér prúðbúnir á götunum og gera
það vist allir sem geta. Hér sést varlasá lúðulaki,
að hann ekki dingli með pípuíiatt og sé allr útflúr-
aðr. Þó berst kvenfólkið enn meira á i klæðaburði.
Allir bera sig mjög borginmannlega á götunum. Að
þekkja hér dánumenn frá bófum er vist engiun hægð-
arleikr, og bezt mun hér að gefa sig ekki rnjög á
; vald annara, því sýnt muu mönnum hér að snúa
upp á náungann ef færi gefst. Menn af lægra tagi
eru hér að mér virðist mjög blótsamir; að öðru
} leyti sýnist ytra siðiæti vera liér mikið.
íslenzkr sögubálkr.
I r Hóla-skóla.
(Úr æfisögu Jóns prótasts Steiugrimssunur, eigiuhuudarriti á
landsbókasafuiuu).
Nær ég var 15 úra, var ég í skólauu iuu-tekinu á páskuin
j árið 1744, og var þar eftir, sem míus skólameistara vituisburðr
útvisar, i 6 ár, að þessuui parti frá páskum til Jóusmessu og
Öðrum trá Mikaelsmessu til föstu iungaugs meðtöldum, so rauu-
ar var það eigi meir enu 5 ár. Þá ég i skólaun koin, kuuui
eg ei 80 mikið að segja sein bouus dies, felix nox, licet exire
og þess háttar smáglósur, sem á þurfti að halda. Sr Skafti
Jósefssou, sem uú er prestr á Hofi í Vopuatirði, uáfræudi miun,
varð þar minn tutor o: torsvarsmaðr; hanu skrifaði upp þessar
glósur handa mér og lagði mér það heilasta 1 öllu er eg þurfti
að vita og gera meðan sainan vórum. Frí varð eg við inn-
byrðis skólareglur þeirra, er brúkast við nýkomna, marra,
bál, ftug og skírn' nema ineð vægasta máta, vegua mius áðr
laskaða fótar; þeim sýudist eg og ei vera so stifsinua, að þess
þyrfti stórum við. Sr. Jðn Þorkelsson gaf mér Donatinu, og sagði
mér að koma til sín þá eg vildi að þiggja mjólkrsopa úr kouu
hans, enn þá skólapiltar komust að þvi, héldu þeir, hvað þó ei
} var, eg bæri honum fréttir. Varð eg þá að leggja það niðr,
er eg sagði honuin og grét hann þá yfir mér og sagöi: þó skal
eg muna til þin, hvað hann og gerði, því þá hann var aftr
kominn tii Kaupenhafnar og hann heyrði eg tók að mannast,
sendi hann mér árlega gefins góðar latinubækr, enn ég honurn
aftr það sem prentað var á Hólum. Eg settist neðstr í skúla-
röðinni sem von var; næst fyrir ofan mig var jalhaldri minn
Erlendr; hann haíði lært i heimaskóia einn vetr; enn áðr skói-
anum var sagt upp um sumarið var eg búinn að ná konum í
lærdóminum, þvi eg lagði svo að mér sem mest eg kunni og lá
marga nótt í fötunum. Næsta haust var eg látinn fara upp
1) Frá þessum fornu skóla-siðum mun síðar skýrt í blaði þessu.
Ritstj.