Fjallkonan - 08.05.1888, Blaðsíða 1
Kemr út þrisvar ámán-
uöi, 36 blöö um áriö.
Árg. kostar 2 kr. og
borgist fyrir
júlílok (ella 3 kr.).
FJ ALLKONAN.
VcUdimar Aamunitaraim
ritstjöri bfr t Þing-
holtsHtrtDti og er að hit u
kl. 3—4 e. m.
14. BLAÐ. REYK.TAVÍK, 8. MAÍ 1888.
Pantanir til Bókverslunar Sigf. Eymunds-
a sonar eru menn beðnir að skrifa ekki innan um
annað í sendibréfum annars efnis, heldr skrifa þær á sérstakan
seðil með nafni og heimili (og póststöð eða póstskips-höfn).
Póstskipið Laura kom 1. þ. m. til Rvíkr; fór
3. þ. m. til Akraness og HafnarQarðar og þaðan til
Vestrlandsins.
Verslunarskipin til íslands komust eigi út frá
Khöfn fyrir ís fyr enn 22. f. mán.
Verslunarfréttir frá Höfn 17. f. m.: Saltfiskr
seldist nú síðast: sunnlenskr stór hnakkakýldr 55—
59 kr., vestfirskr óhnakkakýldr 60—65 kr. Vegna
samgönguleysis, sakir vetrarríkisins og þar aí leið-
andi þurðar á matvælum, komst fiskrinn í svona hátt
verð, enn annars ekki glæsilegt útlit með verð á hon-
um í sumar, sakir mjög mikils afia í Noregi og sam-
kepni við Frakka. — Harðfiskr er þvi nær hættr
að seljast. — Ull gengr-illa út á Englandi, og útlit
fyrir heldr lágt verð áhenni. — Rúgr rússneskr. 100
pd. á 4 kr.; rú(/mjöl 4 kr. 45 a.; bankabygg 7 kr. til
7 kr. 50 a.; kaffi 56—60 a.; kandís 22 a.; hríta-
sykr 19 a.
Stjórnmálaf'undr. í síð. blaði var þess getið,
að alþingismenn Þingeyinga hefði í hyggju að boða
til þjóðfundar á Þingvelli í sumar eftir samráði við
ýmsa aðra þingmenn o. fi. menn víðsvegar um land.
TJm þetta var rætt á stjórnmálafundi, er haldinn var
að Einarsstöðum í Reykjadal 26. mars. Mættu þar
alþingismenn Þingeyinga ásamt fjölda manna úr öll-
um suðrhluta sýslunnar (þar var Einar í Nesi, Her-
mann búfræðingr og ýmsir fleiri helstu menn, og 4
konur, er einnig tóku þátt í fundargerðum, enda er
það altítt þar nyrðra, að konur sæki pólitiska fundi).
— Á þessum fundi var ályktað, að ráðlegast væri,
að öllum málavöxtum athuguðum, að Þingvallafundr
yrði haldinn í sumar, og fól fundrinn þingmönnum,
að rita ýmsum mönnum víðsvegar um land
um þetta mál. — Þar var og rætt um ýmisle^t fleira,
svo sem það, að leigja skip handa ferðafólki úr
Þingeyjarsýslu til sýningarinnar, sem á að verða í
Khöfn í sumar. Vóru þegar gerð samtök að safna
nöfnum þeirra, er taka mundu þátt í þessu fyrir-
tæki.
Tíðarfar. Veðráttan er köld hvervetna sem til
spyrst, og má með réttu kenna það hafísnum. Lagnaðar-
ísar allmiklir á fjörðum nyrðra; hafþök af liajis fyr-
ir norðrlandi, þvi meiri sem austar dregr; ekki nema
hroði á Húnaflóa. Greinilegri fregnir um tíðar-
far og hafísinn eru i bréfköflunum hér á eftir. —
í fýrri nótt og gær dreif hér niðr mikinn snjó, enda
meiri enn kom nokkurn tíma í vetr.
livalrekar engir með þessum hafís, utan fáeinir
höfrungar, er hafa fundist dauðir við Tjörnes.
Fjárskaðar. í norðanbylnum 26. mars urðu
fjárskaðar allmiklir nyrðra og eystra. Á nokkrum
bæjum í miðhreppuin Suðrþingeyjarsýslu fórust um
130 fjár (um 70 í Viðikeri, um 30 á Hallbjarnarstöð-
um í Reykjadal), og i Brúnahvammi i Norðrmúlasýslu
um 100 fjár.
Druknanir. 23. mars druknaði maðr úr Höfða-
hverfi i Þingeyjarsýslu, er hét Þórhallr Árnason ofan
um lagnaðarís á Eyjafirði. — 28. apríl tórst bátr
rétt við land frá Stóruvatnsleysu í Gullbringusýslu
og druknuðu 3 menn: Sigrfinnr Sigurðsson frá Stóru-
Vatnsleysu, ungr efnismaðr nýkvæntr, Jón Jónsson
vinnumaðr frá sama bæ og Gunnlaugr Gunnarsson
frá Skálahnúki í Skagafirði. — 26. inars fórst. skip
í lending i Bolungarvík vestra með 3 mönnum. — 12.
jan. druknaði piltr og stúlka í Núpá í Hnappadals-
sýslu.
Mannalát. Seint í n. 1. mars andaðist á Sauð-
árkrók snikkari Arni Jbnsson frá Borgarey í Skaga-
firði. „Að honum var mesti mannskaði. Hann var
mesti snillingr í að smíða og mála, og gaf sig allan
við því, og liggr mjög mikið eftir hann af bæjum,
timbrhúsum og kirkjum. Hið síðasta hús, er honum
auðnaðist að ljúka við, var kirkjan í Goðdölum, og
er þessi fallega kirkja þögull vottr um það, hvílikr
smekkmaðr hann var í verkum sinum. Hann mun
hafa verið nál. 50 ára. Hann lætr eftir sig ekkju
Guðrúnu Þorvaldsdóttur, og son og dóttur í æsku“.
Einnig er dáin frú Guðrún Stephensen í Goð-
dölum, ekkja Stefáns prófasts Stephensens, síðast á
Reynivöllum, enn dóttir séra Þorvaldar Böðvarssonar
sálmaskálds, merk og heiðvirð kona, meir enn hálf-
áttræð að aldri.
Itókinentafélagsdeildin í Khlifn hefir nú boðið
Rvíkrdeildinni það kostaboð til samkomulags, að
Rvíkrdeildin fái að njóta allra tillaga félagsmanna
hér á landi, enn greiði aftr á móti 500 kr. skatt á
ári til Hafnardeildarinnar. taki að sér útgáfu Skírnis
og skýrslna og gangi enn fremr undir, að greiða
að hálfu þær skuldir, sem Hafnardeildin er nú í, og
nema munu um 6000 kr. — Þessi tilboð eru svo ó-
aðgengileg, að engin von er að saman gangi ineð
deildunum. — Skírnir er nýkominn frá Khafnardeild-
inni, miklu minni enn venjulega, saminn af Jóni
Stefánssyni.
Ilerskipin frönsku eru bæði komin; hið minna
„L’Indre“ kom 5. þ. m., hið stærra „Cháteau Re-
nault“ og Fylla í gær.
Norörþingeyjarsýslu, 2. apríl: „Hagar nægir ventan Axar-
tjarðarheiðar, enn litlir í Þistilfirði, Langanesi og á Sléttu, og
kvartað nojög nm heyskort i þeim sveitum".
Skogafjarðarsýslu, 13. apríl: „Það á að halda tombólu 4
Hólum í Hjaltadal á snmardaginn fyrsta, og verja ágóðanum
fyrir orgel í Hólakirkju, sem er merkileg og þesg verð að henni
sé sýndr sómi. — Tíðarfar hefir um tínja verið blítt, enn er nú
að snúast í norðrið með kulda og hrið, og kvíða menn því, að
isinn komi, þvi hann er vist skammt i burt. Hann kom rétt
fyrir páskana, enn rak þá bráðlega aftr undan landinu.
— Yetrinn hefir mátt heita fremr góðr, enn þó nmhleypinga-
samr. Litið er kvartað um heyleysi, og eru skepnuhöld með