Fjallkonan


Fjallkonan - 08.08.1888, Side 2

Fjallkonan - 08.08.1888, Side 2
90 FJALLKONAN. 8. ágúst 1888. er þrifið til bissustingjanna. Þá er ef til vill dá- litið eftir af „melinit“ til að kveykja síðasta bálið. Verksmiðjur og brýr eru sprengdar í loft upp. Bókasöfn, myndasöfn, listaverkin, frægustu sigr- vinningar mannlegs andaverða að dusti á svipstundu. Það hefir verið unnið að því í þrjár aldir, að afla þessa auðs. enn hann verðr að engu á þremr mín- útum. — Vinnum vér sigr? Það fáum vér að heyra morguninn eftir, er hershöfðingjarnir frétta hvort skipunum þeirra hefir verið hlýtt á öðrum stöðum langt í burtu, og hvorra bissur hafi dregið lengra. Enn hvort heldr sem er, hvort sem vér sigrum eða bíðum ósigr, er oss glötunin vís þegar svo er komið. Það er sagt oss til hugfróa, að ekki muni standa lengi á þessum ófriði'. Evrópu-ríkin segja við hina sigruðu þjóð: „Þér hafið engan her fram- ar og því engan rétt til að vera sérstök þjóð. Vér skiftum með oss eignum yðar og landi. Vér köst- um eign vorri á lög yðar og venjur, trúarbrögð og mál“. Evrópa verðr öll eitt líkhús eða spítali, og pest og hungrdauði geisar. Mörg ár þarf til að gera vegina aftr færa, til að byggja hús og verk- smiðjur, o. s. frv. Og það veitir jafnvel ekki af mörgum mannsöldrum til að koma kyrð á skaps- muni manna. Eftir tuttugu ár verðr enginn maðr vopnfær; ófriðrinn drap feðrna, börnin verða svo fá. Alt þetta tjón er þó ekkert að telja á móti öðrum verri afleiðingum, sem mest er að óttast. Það er ófriðr sósíalista og siðleysisþjóða. Sósía- listar búast til ófriðar; þeir segjast að eins bíða eftir hinu mikla Evrópu-stríði. Þeir segja: „Ment- uðu þjóðir, reynið nú fyrst að vinna hvor á annari, og þegar þér eruð orðnar dauðvona eftir ófriðinn, komum vér og veitum yðr banasárið. Vér erum hvorki Frakkar, Þjóðverjar, Englendingar né Rúss- ar; vér erum sósíalistar, og hefnum vor þegar færi gefst“. Ogþágæti líka farið svo, að siðleysisþjóðir réðust á Evrópu, jafnframt sósialistunum. Komið þá Kínverjar, Arabar, Svertingjar og Kyrrahafs- menn, þá ber vel í veiði fyrir yðr! — Hinar ment- uðu þjóðir þurfa ekki að hugsa til að hverfa frá vigvellinum til að harma sigr sinn eða ósigr í ró og næði. Grætum þess, að Frakkland og Þýska- land hafa fimm miljónir vopnaðra manna, og að Rússland, Austrríki og smáríkin hafa enn fleiri. Það eru að minsta kosti 12 milj. manna, er vinna að því á nokkrum vikum, að drepa niðr þjóðirnar í Evrópu; þeir fara langar herferðir með svo mikl- um kostnaði, að fæði liðsins kostar 25 milj. franka um daginn og vopn og hergögn enn meira. Þá eru brátt þrotnir allir fjársjóðir, öll vinna hætt, forðabúr tæmd, verksmiðjur niðrbrotnar, akrar ó- yrktir eða komnir í örtröð. Þá er Evrópa rétt kjörið herfang hálfviltra þjóða. Evrópumenn hafa kent þeim hernaðinn og fengið þeim vopn í hendr, þær standa þá vel að vigi; þær eru hugaðar og þolnar og hafa nægan auð og mannafla. Þær koma eins og stefnivargar austan úr Asíu og sunnan úr Afriku til að leggja xmdir sig Evrópu lönd. Enn ókomni tíminn mun að mestu gleyma hinum gömlu þjóðum, sem vóru svo hugritsainar, enn jusu út öllu fé sínu og blóði og gjöreyddu svo hver annari“. Þetta er aðal inntakið úr ritgerð hins frakk- neska manns. Um réttindi kvenna. Eftir Matth. Jochumsson. AMMMtv Ég er einn hinna mörgu, sem kann flytjanda hins gullfallega fyrirlestrs „um hagi og réttindi | kvenna“ (Bríet Bjarnhéðinsdóttur) hinar bestu | þakkir. Form hans, blær og frágangr miðar ekki einungis til þess, að mæla fram með röksemd- um hans, heldr og hans augnamiði sjálfu, réttind- um og réttu áliti kvenna. Og hinn stilta og skyn- samlega blæ fyrirl. tek ég sérstaklega f'ram fyrir í þá sök, að sú hlið þessa máls hefir oftast þótt ó- I fullkomnust og oftlega vakið vantraust og andróðr j móti frelsisröddum kvenna — ekki síst meðal þeirra | eiginna systra. Eins og önnur mannréttinda-mál er þetta mál í eðli sínu þrætumál tveggja aðal- flokka og margra minni flokka. Aðalflokkana mynda framsóknarmenn og ihaldsmenn sin á milli, enn hina smærri mynda menn og konur, úr báðum þeim flokkum, út af sérstökum atvikum, misvitrum skoð- unum, hloypidómum og svo frv. Ég skal benda þeim, sem til þekkja, á dóma manna um frammi- stöðu frú Collets (systur Wergelands skálds) í Noregi, á Pauline Worm í Danmörku og á hverja kven- frelsiskonu, sem vera skal. Flestum þeirra hefir verið borið á brýn, að andi þeirra eða ritblær hafi verið of æstr; að orðfæri þeirra og allr stíll hafi orðið ósanngjarn, illkvittinn, okvenlegr. Að öðru leyti játa allir hvorttveggja, að þetta alheimslega frelsis- og framfaramál hafi verið sótt með miklum skörungskap, elju og andríki, ekki einung- is af ýmsum ágætismönnum meðal karla, héldr engu síðr af konunum sjálfum, og að nú sé ) egar fremr sókn enn vörn í málinu í þess miklu heild. Enn harðla fjarri f'er því, að fullr sigr sé unninn. Jafnrétti kvenna er mikið málefni með undra-djúp- nm rótum og ómælilegum afleiðingum. Enn það er enn þá spánýtt í heiminum, svo nýtt, að það er nýfætt af höfði spekinganna. Fyrir miðja ævi John Stuart Mills bryddi lítið á því, svo mér sé kunnugt, jafnvel meðal hinna vitrustu og frjáls- lyndustu manna, enda hafa hinar svonefndu frelsis- þjóðir heimsins: Bandamenn Yestrheims og Engl- ar og Frakkar í vorri álfu verið undarlega mistæk- ir og glapsýnir í jafnréttismálum til þessara síð- ustu tíma; hinir fyrstnefndu með þrælahaldið, Frakkar undir Napoleoni þriðja, og Englar með sínar miðaldastofnanir og forneskj ubrag í lögum og landsvenjum samhliða hinni mestu og bestu menning i heimi. Þar vantar enn mikið á að al- mennings álitið í þessu máli sé vakið til hálfs, enda á Englandi, þvi einmitt þar eru enn tveir þriðjungar þingmanna móti kjörgengi kvenna. Það má óhætt segja um afstöðu þessa máls, að það sé enn á leiðinni að oýan o: frá hinum fáu vel upp- lýstu, enn eigi afarlanga leið fyrir höndum, þang- að til það kemr aftr (ef svo má að orði kveða) neð- i

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.