Fjallkonan - 18.01.1889, Blaðsíða 1
Kemr út
3—4 Binn. á mánuöi.
Verð 2 (erlendis3) kr.
Gjalddagi í júlí.
FJALLKONAH.
Útgefandi:
Vald. Ásmundarson.
Skrifstofa og afgreiösla:
Veltusund, nr. 3.
YI, 2. REYK.TAVÍK, 18. JANÚAR 1889.
Frelsi ö,
Fyrirlestr eftir Robert lngersoll.
---
(Niðrl.) Mannkyninu hefir farið fram samfara
því, að því hefir lærst að láta hugsun og hendr
vinna saman. Sjómaðrinn, sem á við ofrefli sjávar
og storma og hefir mjög litla þekkingu áhreyfing-
um hafsins og straumum, er hjátrúarfullr; sama er
að segja um bóndann, sem á það oft undir kröft-
um, sem eru sterkari enn hann sjálfr, hvernig
honum farnast búskaprinn. Oðru máli er að gegna
um verkvélamanninn; hann f'ellr aldrei á knó til
bænagerðar, þótt hjól stansi í vélinni; hann veit,
að hægt muni að gera við það ; hann sór að eitt-
hvað er í óreglu í vélinni og reynir að laga það.
Mannkyninu fer fram bæði að verklegu og andlegu
atgervi, samfara því, að menn leysast úr þrældómi
höfuðskepnanna og atvikanna, hrósa sigri yfir
náttúrukröftunum og læra að ráða við forlög sín.
Samfara því sem mannkyninu fer fram, lærir það
að meta réttindi sín, og jafnframt sem menn læra
að meta sín eigin réttindi, fara menn að viðrkenna
réttindi annara. Þegar svo iangt er komið,að allir
vilja veita náungum sínum sömu réttindi og þeir
hafa sjálfir, má fyrst kalla að mentunin hafi rutt
sór til rúms.
Fyrir nokkrum árum þorðu menn ekki að
spyrja kónginn að neinu, eiga orðadeilu við prest-
inn, rannsaka sannleika trúarjátningarinnar eða
ritningarinnar. Menn lutu valdinu og heiðruðu
titlana — þetta hefir alt breyst smásaman. Vér
lútum ekki lengr mönnum fyrir það, að þeir eru
ríkir; forfeðr vorir dýrkuðu gullkálfinn, enn nú
þykir það svívirðing; það goð er að falla úr tign-
inni eins og önnur fleiri. Metorðagirni stórbokk-
anna nægir ekki lengr konungs eða keisara tign.
Napóleon III. var ekki ánægðr með að vera keis-
ari og bera gullna kórónu; hann vildi láta ásann-
ast, að hann hefði einhverja andlega hæfileika til
að bera, og því samdi hann sögu Júlíuss Cæsars
til þess að verða meðlimr hins franska vísindafé-
lags. Kóngar, keisarar og páfar eru ekki lengr tald-
ir meiri enn aðrir menn. Berum t. d. saman Vil-
hjálm keisara og Háckel náttúrufræðing; annar
þeirra er drottins smurði, sem kallað hefir verið;
enn hinn mænir yfir hann sem jötunn vitsmun-
anna. — —
Mannkyninu hefir farið fram. Vér höfum not-
ið blessunarríkra ávaxta af miklum og góðum verk-
um. — — Enn þegar ég hugsa um það, hve mik-
ið mannkynið hefir orðið að þola, hve lengi forfeðr
vorir hafa verið þrælar, hvernig þeir krupu og
skriðu frammi fyrir hásætum og ölturum og niðr-
lægðu sjálfa sig, þá verð ég höggdofa afskelfingu.
Það eru ekki nema rúm 50 ár, sem þessi heimr
hefir verið bygðr af mönnum — það var ekki fyrri
enn árið 1808, að Englendingar aftóku þrælaversl-
unina. Fram að þeim tíma vóru hinir ensku dóm-
arar, þjónar réttvisinnar, og prestar sem jkendu að
maðrinn ætti að elska náungann eins og sjálfan
sig, sameigendr að þrælaskipunum og lifðu í alls
konar óhófi af víkingsskap og manndrápum. Það
var einnig um sama leyti, sem Bandaríkin í Norðr-
Ameríku námu þrælaverslun við önnur lönd úr lög-
um, enn ráku hana innanlands eftir sem áðr. Enn
ekki var þrælaverslunin í nýlendum Breta afnum-
in fyrr enn 1833, og það var ekki fyrr enn á ný-
ári 1863, að Abraham Lincoln fekk þvegið þessa
svívirðu af fána Bandarikjanna. — —
Líkamlegt frelsi kalla ég það, að mega gera
alt sem ekki skaðar náungann, andlegt frelsi, að
mega hugsa það sem maðr vill, hvort sem það er
rétt eða rangt. Hugsunin er sá vegr, sem vór verð-
um að þræða til að leita sannleikans; ef vér þykj-
umst vita sannleikann, þurfum vér engrar ihugun-
ar við. — —
Til að mæla harðstjórninni bót, hefir kirkjan
kent, að mennirnir sé allir gjörspiltir. Sannleikr-
inn er sá, að mennirnir eru bæði góðir og illir;
hinir verstu menn geta gert gott verk, og hinir
bestu geta gert ilt verk; þeir sem lægst liggja
geta reist sig við, þeir sem hæst standa geta fall-
ið. Það er alveg rangt að skifta mannkyninu í
tvo flokka, syndara og helga menn. Á hinum
verstu timum hafa menn, sem kirkjan hefir dæmt
til glötunar, gengið fúsir í dauðann og unnið
þannig þau drengskaparverk, sem gera nöfn þeirra
ódauðleg. í sjávarháska, á skipbrotum á reginhafi,
innan um boða og brimgarða, eða á brennandi
skipsflökum, hafa hraustir og drenglyndir menn á
vorum tímum getið sér ódauðlega frægð. — —
Burt með allar þær bækr, lög og trúarbrögð,
sem svifta sálir mannanna frjálsræði og skyn-
semi. — —h
Lagafrumvarp um alþingiskosningar flytr
„lsaf.“ í 3. bl. sínu þ. á., sem er að nokkru leyti
sniðið eftir kosningarlagafrumvarpi því er Tr. Gf.
fór með á alþingi 1885, enn gengr þó lengra í þvi
að fjölga kjörstöðum, þannig, að kosningar fari
ffam á þingstað hvers hrepps. Þetta telr ritstj.
mikla réttarbót, því stærð kjördæma meini mönn-
um að sækja kjörfundina. Þetta reynist þó ekki
svo, því að hvergi á landinu eru kjörfundir að
jafnaði svo vel sóttir sem í Þingeyjarsýslu, strjál-
bygðustu og víðlendustu sýslu landsins, enn þar á
mót eru kjörfundir að tiltölu einna verst sóttir í
1) Þetta er að eins ágrip af hinum upphaflega fyrirlestri
Ingersolls, og að eins fyrsti kaflinn; í miðkaflanum er um
frelsi og mentun kvenna, og er sá kafli þýddr að mestu í „Ið-
unni“ II, bls. 198—209; síðasti hlutinn er um frelsi barna, og
er honum slept hér.