Fjallkonan


Fjallkonan - 07.01.1890, Qupperneq 1

Fjallkonan - 07.01.1890, Qupperneq 1
Kemr út á þriðjudögum. Árg. 2 lcr. (3 kr. erlendis) 36 bl. -f- aukaútgáfu llcr. —1,50 (1,50—2 kr. erl.). Gjalddagi í júlí. FJALLKONAN. Uppsögn ógild nema skrifl. komi til útgef. fyr. 1. okt. Skrifstofa í Veltusundi 3. íltgef.: Vald. Ásmundarson. VII, 1. REYKJAYÍK 7. JANÚAR 1890. Fj allkonan. Sú breyting verðr nú á útgáfu Fjallkonunnar, að hún kemr út þetta ár, 1890, einu sinni í hverri viku, á þriðjudögum. Stækkuninni er hagað þannig, að út kemr auka- útgáfa af blaðinu, er eingöngu flytr fróðleik og skemtun; ritgerðir um ýms fræðandi efni, er al- menning varða mestu, leiðbeiningar og ráð, sögur, bæði innlendar og útlendar og annað skemtandi efni, enn engar greinir um stjórnmál né deilu- greinir, og ekki heldr venjulegar fréttir. Þessi auka-útgáfa kemr út einu sinni til tvisvar í mán- uði, 16 blöð alls á árinu. Efnið í þessa auka-út- gáfu verðr valið eftir bestu föngum, þannig, að ffæðiritgerðirnar og leiðbeiningarnar komi lesendum sem mest að gagni í daglegu lifi, enn sé ekki neinn hjdlu-fróðleikr, og sögurnar og skemtigreinarnar sé ekki einungis til dægrastyttingar, heldr að eitt- hvað megi af þeim læra. I þessari auka-útgáfu verðr mynd í hverju blaði, helst af einhverjum merkum mönnum eða mannvirkjum, útlendum eða ! innlendum. Svo er fyrir þakkandi, að hér á landi má fullvel prenta myndir, hvað sem öfundarmenn ! kunna að segja um það. Myndin af Jóni Árnasyni ! í Fjallk. var lýtalaust prentuð, sömul. myndin af ! Grladstone 1887. Auka-útgáfuna geta þeir kaupendr Fjallkonunn- ar sem óska þess fengið á 1 kr. árganginn, svo að blaðið verðr þá alt á 3 kr. — Annars kostar árg. j af aukablaðinu 1 lcr. 50 au.. þ. e. fyrir þá sem ekki eru kaupendr Fjallkonunnar. Við lægra verði er j eigi unt að selja þessa auka-útgáfu að sinni. með ! því að myndirnar auka kostnaðinn hér um bil um helming. Hvort, þetta fýrirtæki getr staðist og hvort auðið verðr að bjóða betri kjör næsta ár er komið undir þvi, hvernig kaupendr Fjallk. taka þessari auka-ritgáfu og hve margir kaupendrnir j annars verða. I auka-útgáfunni koma fyrst um sinn meðal ann- ars ýmsar hversdagslegar heilbrigðisreglur eftir j reyndan lækni, ágrip af varningsfræði (um að þekkja kost og löst á ýmsum varningi), búskaparráð o. s. frv. og auk þess sögur og smágaman. Að öðru íeyti mun Fjallkonan verða þetta ár að efni og útgerð lik og áðr, nema hvað von- j andi er að henni fari heldr fram enn aftr og verð- ! ið hið sama og áðr. Árið 1889 hér á landi. Árið sem leið hefir í flestu tilliti verið eitt hið ' besta ár, er menn muna. Tiðarfar var óvenjulega gott; að vísu var nokk- ! uð snjóvasamt. um miðjan vetrinn ogrít þorrann, enn i síðan víðast enginn hagaskortr. Jafngott vor þóttust j fair muna, og kom gróðr óvanalega snemma. Að eins varð vart við hafís fyrir norðrlandi, eftir miðj- an vetr, enn það vóru að eins jakar á stangli. — Sumarið var einnig æskilega gott. Heyskapr byrj- aði víða miklu fyrr enn venja er til og heyafli varð með mesta móti, því bæði var grasvöxtr góðr og tíðin hagstæð alt sumarið, nema lítill óþurka- kafli framan af slætti. Haustið mátti einnig telja gott. þó nokkuð rigningasamt væri sumstaðar, og vetrinn að nýári hefir verið mildr, enn nokkuð umhleypingasamr. Aflabrögð hafa orðið viða í fullu meðallagi. Yerslun var með líflegramótiog verð allgott bæði á innlendum vörum og útlendum. Fjársalan til Englands varð meiri enn nokkru sinni áðr, og er talið að hátt upp í 1 milj. króna hafi komið inn í landið fyrir hana. Efnahagr almennings hefir eflaust rétt mikið við þetta ár, einkum af því að árið í fyrra var einn- ig í mörgu með hinum hagstæðari. Yerslunarskuld- ir og lántökur hljóta að hafa minkað talsvert og öll viðskifti orðið greiðari, einkum fyrir hinn mikla peningastraum frá Englandi. Af gerðum alþingis er helst að nefna lögin um toll á kaffi og sykri og hækkun tóbakstolls, er munu mælast misjafnt fyrir meðal almennings. Á embættaskipun varð nokkur breyting, biskupa- skiftin og háyfirdómara. Skólar vóru hinir sömu og áðr, og með líkum nemendafjölda, nema Hléskógaskólinn, er naumast var sóttr, enn aftr kom upp búnaðarskóli á Hvann- eyri í Borgarfirði. Bækr komu út með færra móti á þessu ári og skal að eins nefna: Jarðfræði eftir Þorvald Thor- oddsen (i ,,Sjálfsfræðaranum“), tvær kenslubækr í ensku eftir G-eir Zoega og Halldór Briem, kenslu- bók í flatmálsfræði eftir Halldór Briem, Kvæði eft- ir Brynjólf Jónsson frá Minnanúpi og „Eldinguna“, skáldsögu eftir Torfhildi Hólm. Heilsufar manna var gott árið sem leið, og slys- farir með minna móti. Stjórnhættir 1 Sviss. I. Fyrir skömmu lét einn af æðstu embættismönn- um landsins þá skoðun i Ijós á alþingi, að íslend- ingar gætu ekkert lært eða ekkert tekið sér til fyrirmyndar í stjórnháttum Englendinga. Hann hlýtr að vera nokkuð kínverskr í anda, höfðinginn, ef hann heldr að íslenska stjórnarskipunin sé hin fullkomnasta í heíminum. Vér erum nú á þeirri skoðun, að stjórnarskipun vorri eins og flestu öðru hjá oss sé mjög ábótavant, og að vér getum lært margt í stjórnarefnum af öðrum þjóðum, einkan- lega þeim er um langa tíma hafa stjórnað sér sjálf- ar. Þess vegna viljum vér flytja hér lítið ágrip um

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.