Fjallkonan


Fjallkonan - 04.02.1890, Page 1

Fjallkonan - 04.02.1890, Page 1
Kemr út á þriðjudögum. Árg.2 kr. (3 kr. erlendis) 36 bl. -f- aukaútgáfu 1 kr. —1,50 (1,50—2 kr. erl.). Gjalddagi i júlí. NUppsögn ógild nema skrifl. komi til útgef. fyr. 1. okt. Skrifstofa 1 Veltusundi 3. Útgef.: 9 Vald. Ásmundarson. YII, 4. Stjórnhættir í Sviss. IV. Þess er áðr getið, að lög þau er samþykt hafa verið á sambandsþingum og varða alt bandalagið, skulu lögð fyrir alla þjóðina til samþykkis eða synjunar, ef 80000 atkvæðisbærra manna, eða 8 ríki, óska þess. Þessi aðferð er nefnd referendum, og var fyrst upp tekin í einstökum ríkjum, enn ekki tekin upp í stjórnarskrá bandalagsins fyrr enn 1874. Síðan heíir sambandsþingið fylgt þessum hætti með flest áríðandi lög, þar með talin fjárlög og lán til ríkisþarfa. Þetta samþyktarvald er tvenskonar; i sumum ríkjum sjálfviljugt, þ. e. al- þýða greiðir ekki atkvæði um lögin, nema ákveðin tala kjósenda óski þess í tæka tíð, enn í sumum ríkjum er stjórnin skyld að bera lögin undir sam- þykki alþýðu. Það ber ósjaldan við, að alþýða synjar lögum frá fulltrúaþingum, ekki síst fjár- veitinga-nýmælum. Þó er ekki svo að skilja, að fulltrúarnir, hver fyrir sig, fylgi ebki alment fram vilja kjósenda sinna, hitt er heldr, að fulltrúaþing- ið getr ekki orðið svo skipað, að það sé sönn eftir- mynd hins almenna þjóðvilja, því að skoðanirnar verða misjafnar í hinum ýmsu kjördæmum. Hefir því á síðustu árum verið mjög tíðrætt um það í Sviss, að koma þar á hlutfallakosningum til full- trúaþinganna. í öllum ríkjunum í Sviss, nema Freiburg, hefir alþýða þetta samþyktar og synjunarvald yfir lög- unum, annaðhvort með því móti, að kjósendr óski þess (fakúltatívt referendum), eða stjórnin er skyld- ug til að bera lögin undir samþykki alþýðu (obligatóriskt referendum). I ríkinu Wallis eru það þó fjármálin ein, sem alþýða má þannig greiða atkvæði um. Annar réttr, sem veitir þjóðinni í Sviss beina hluttöku í málum sínum, er tillöguréttr eða frum- kvæði (initsíatív) það er kjósendr hafa; þar er það ekki eingöngu falið fulltrúunum eða stjórninni, eins og títt er í öðrum löndum. Þegar ákveðinn fjöldi kjósenda krefst þess, að ný lög skuli setja, eða breyta skuli lögum eða nema úr gildi, getr alþýða kjósenda greitt atkvæði um það. Þessi aðferð er eitthvað frjálslegri og þýðingarmeiri enn að senda áskoranir eða „bænarskrár“ til þings eða stjórnar eins og víða við gengst. — í ríkinu Glarus gerir stjórnin sérstaka skrá yfir þau frumvörp, er ekki þykja hæf til frekari meðferðar, og þykir það svo mikil hneisa fyrir þá er frumvörp hafa sent, að þau sé sett á þessa skrá, að það er nóg til að draga úr mönnum að koma með mörg ástæðulítil frumvörp. Þjóðin hefir þó sjálf æðsta valdið í þessari grein sem öðru; hún getr á samkomum sín- um tekið fyrir mál, er stjórnin hefir synjað með- 1890. ferðar, og sé það þannig samþykt að þau skuli rædd á þingum, verðr að hlíta því. Frumkvæði er nú algengt í flestum þeim ríkj- um er hafa referendum; upphaflega var það eins í ríkjum þeim er hafa þjóðfundi í stað fulltrúa- þinga. Yér getum eigi stilt oss um, að geta þess hér, að einn af voruin íslensku stjómmálamönnum, dr. Grímr Thomsen, kemst svo að orði í ritgerð einni í „Andvara“, þar sem hann minnist á samþyktar og synjunar vald svissnesku þjóðarinnar: „Yfir höfuð mun mega treysta því, að alþýða í opinberum málum fari varlega og hyggilega, ef hún fær að njóta sin og sansa sig. Hún kann um stundarsakir að láta leiða sig af hinum og þess- um leiðtogum, sem eru misj afnir til munns og handa; enn þegar frá líðr jafnar hún sig, og fer sinna ferða, leiðtoga og fortölulaust, og væri, þar sem því verðr við komið, að líkindum hættulaust, að skjóta áríðandi málum til alþýðu; að minsta kosti er mér nær að halda, að á Norðrlöndum gæti það vel staðist“. Það er algeng skoðun, þótt hún sé röng, að stjórnmálunum sé borgið, ef stjórnnf? er góð; alt gott á að koma að ofan. Sé stjórnin góð, segja menn, getr þjóðin verið afskiftalaus af henni. Yér höfum fyrir skömmu séð þeirri skoðun hald- ið fram í stjórnarblaðinu „ísafold“, að það sé eig- inlega stjórnin, sem eigi að hafa frumbvæðið í lög- gjafarmálum landsins; hún eigi að koma með allar tillögur og frumvörp til alþingis. Enn þessi skoðun er allsendis röng og miðar til þess að svæfa þjóðina og gera hana hugsunarlausa um málefni sín. Hinar stjórnlegu framfarir verða eðlilega að spretta að neðan úr skauti alþýðunnar. Þar er hinn eini fasti grundvöllr fyrir frjálsri stjórnarskipun. Þannig er stjórnarskipun ríkjanna í Sviss vaxin upp úr héraðastjórninni. Sveitastjórn- in í Sviss er skipuð á líkan hátt og stjórn hvers einstaks ríkis. Héraðastjórnin er ýmist falin kjörn- um mönnum, eða allir kjósendr hafa ráðin í hönd- um á almennum fundum. V. Sviss hefir engan fastan her, enn hver Svissbúi er skyldr til landvarnar frá því hann er tvítugr og þar til hann er 44 ára. Stjórnin sér um, að almenningr læri vopnaburð og að skjóta, og er farið að kenna unglingunum það undir eins og þeir eru tíu ára. Þeir læra það í alþýðuskólunum, og er vandlega séð um, að þeir temji sér vopnfimi fram að tvítugu. Þá eru öllum fengin vopn í hendr á ríkiskostnað. Á hverju ári er mönnum safnað saman og vopnin skoðuð. Glæpamenn einir mega ekki bera vopn. Svisslendingar eru skotmenn á- gætir, enda vóru þar 1885 2540 frjáls skotfélög með 114000 skotmönnum. Á ófriðartíma geta Sviss- REYKJAVÍK, 4. FEBRÚAR

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.