Fjallkonan - 25.11.1890, Page 2
46
uð konur; það verðr best fyrir ykkr, að skifta ykkr |
ekki af neinu, því þið munuð sæta sömu meðferð og
menn ykkar“. — „Eruð þér að spá dómsdegi, eða
hvað?“ „segir hertogafrúin11. — „Svo langsýnn er ég
ekki, enn svo mikið veit ég, að þér, hertogafrú, verð-
ið færð til aftökustaðarins á flutningsvagni ásamt
mörgum öðrum, með hendrnar bundnar fyrir aftan
bak“. — Þá vona ég að, ég fái svartfóðraðan vagn
til að aka í“. — Ó nei, það verða tignari frúr enn
þér, sem verða að sæta hinu sama. — „Liklega þó j
ekki konunga dætr?“ — Jú“.
Nú fór mönnum ekki að verða um sel, enn frú
Gramont hélt ræðunni áfram og segir: „Hann veitir
mér þá ekki einu sinni svo mikið, sem ég megi uá
prestsfundi“. — „Nei, frú, þér fáið enga prestsþjón-
ustu, né nokkur annar. — Hinn síðasti, sem færðr
verðr til aftökustaðar og fær að tala við skriftaföður
sinn, verðr----------. „Hver er það sem fær að
njóta þeirra réttinda fremr öðrum?“ — „Það verðr
konungrinn í Frakklandi og það verða hans einu rétt-
indi“.
Húsbóndinn stóð nú upp, og aliir sem við vóru
staddir. Hann vék sér að Cazotte og sagði- með mik-
illi alvöru: „Cazotte góðr, þér hafið nógu lengi
haldið áfram þessu grálega gamni. Það getr orðið
óþægilegt bæði fyrir yðr og þá, sem hér eru saman-
komnir með yðr“.
Cazotte svaraði engu, enn bjóst til að fara. Frú
Gramont spurði hann þá, hvað fyrir honum lægi.
Cazotte þagð i við, enn segir síðan: Hafið þér lesið
frásögn Jósefus um umsátr Jórsala? Maðr var í
borginni, sem hljóp um borgarvegginn sjö daga í röð j
og æpti hástöfum: Vei þér Jerúsalem. Á sjöunda |
deginum sagði“ hann: ,Vei þér Jerúsalem og mér
sjálfum*, og í sömu svipan féll hann dauðr fyrir stein-
kasti frá óvinahernum.
Að svo mæltu fór Cazotte á burt.
Saga frönsku stjórnarbyltingarinnar sýnir, að spár
hans rættust.
Emin pasja
heitir upphaflegu nafni Edvarð Schnitzer, og er fæddr
28. mars 1840 í Oppeln í Slesíu, sonr kaupmanns,
sem var Gyðingr. Hann lagði fyrir sig læknisfræði
við háskólann í Breslau, Berlín og Königsberg, fór
svo til Tyrklands og varð þar læknir og var í her-
för til Sýrlands og Egyptalands. 1871 fór liann til
Ismael pasja landsstjóra, og var í þjónustu hans þang-
að til hann andaðist 1873. Hann kvæntist síðan ekkju
hans, sem er grísk. Á þessum árum haf'ði Schuitzer
aflað sér víðtækrar kunnáttu í málum, frakknesku,
ensku, ýmsum slafneskum tungum og mállýskum,
tyrkuesku, arabisku, persnesku o. fl. og svo hafði hann
samlagað sig austrlenskum háttum og siðum að eng-
inn gat séð á honum, að hann væri Vestr-Evrópu-
maðr. 1875 bráhann sér snöggvast heim til átthaga
sinna og fór síðan tii Egyptalands. Slóst hann í för
með Gordon pasja til Súdan og gerðist læknir hjá
honum og nefndist þá Emin Efíendi; fór hann þá marg-
ar rannsóknarferðir. Gordon þótti hann svo vel fall-
inn til að stjórna öðrum, að hann gerði h.inn að
landstjóra fyrir Egiptajarlíequatorial-héruðunum suðr
af Sudan 1878. Leysti Emin sem nú var nefndr
Emin „bey“ og siðan „pasja“, það verk snildarlega
af hendi og fór hann ýmsar landkönnunarferðir.
Nokkru síðar gerði spámaðrinn (mahdíinn) uppreisu og
og féll Gordon í þeim ófrið. Steypti Mahdíinn Egipta-
landsstjórn í löndum þeim, er vóru fyrir norðan lönd
Emins, svo að hann varð útilokaðr og umkringdr af
óvinum öllum megin. Þarna var Emin í 13 ár, áðr
enn bréf bárust frá honum, og stýrði allan þann tíma
landhluta sínum og varðist öllum óvina árásum með
hinum mesta dugnaði. Með Emin pasja var all-lengi
j um þessar mundir rússneskr maðr, dr. Junker, er eitt
sinn ferðaðist um ísland; færði hann fregnir af Emin,
þegar Stanley var kominn á leið til að leita hans fyrir
tilhlutun Egyptajarls og enskra auðmanna. Hvernig
sú ferð Stanleys gekk er öllum kunnugt.
Emin pasja er vísindamaðr mikill og þar að auki
hinn mesti mannvinr og ákafasti frelsis forvígismaðr
svertingja í Afriku.
Nýjungar frá ýmsum löndum.
Jarðskjálfti. í suiuar í jfluílok gerði mikinn jarðskjálfta í
í Persíu, sem stóð í tvo daga og gerði stórskaða. Bær einn að
nafni Tusck með 200 húsum sökk gersamlega með öllum ibúum.
Þeir einir komust af, sem úti vóru á ökrum við vinnu.
Jakob kviðristari. Nálega í tvö ár hefir ekki orðið vart við
kvennamorðingjann voðalega, sem nefndr hefir verið Jakob kvið-
ristari. Bnn nú er sá friðr úti, því i f. m. fékk lögreglan í
London bréf með undirskrift raorðingjans, og hafa síðan verið
gerðar allar hugsanlegar varnarráðstafanir gegn illvirkjanum og
gildrað sem mest má verða til að ná honum. Bitt lik af myrt-
um kvenmanni nýfundið, er þótti vera með hans ummerkj-
um.
Iyœkning lungnatæringar. Það er fullyrt,, að hinn frægi lækn-
ir Bobert Koch í Berlín hafi fundið aðferð, sem dugi til að lækna
lungna-tæringu.
Reyklaust púðr. Við síðustu hersýningu Prakka var haft
reyklaust púðr. Þegar skotið var af byssum sást enginn reykr,
enda ekki þó raðfeldar skothríðir riðu af frá heilum herflokki í
einu. Við fallbyssuskot sást að eins litill reykr, og þó ekki alt
af, enn eldblossarnir sáust, langar leiðir.
I Pálskirkjunni í London drap sig maðr einn í f. m. Til þess
að hreinsa kirkjuna af þeirri vanhelgun, varð að vigja hana af
nýju.
Siðferði kristinna manna og heiðingja á Indlandi. Samkvæmt