Fjallkonan - 25.11.1890, Side 5
49
var að gefa alt í kring, enn honum hafði gefist prýðilega, þá
þá stingr hann þeim í ermi sína og gengr í kirkju. Þegar þang-
að var komið, vingsaði hann svo mikið handleggnum, ná þess
hann myndi til spilanna, að þau hrutu út um alt. Hann lét sér
ekki bylt við verða og snéri sér út úr því, og sagði að eitt barn-
ið sem áðr hafði ekki getað leyst úr skildi taka upp eitt spilið.
Hann spurði hvað spilið héti og er barnið sagði það, tók hann
harðlega að sneypa börnin og foreldrana fyrir það, að börnin
lærðu fyrr spilin enn guðsorð, og að hann hefði nú haft með
sér spilin til að komast fyrir þetta.
Prófessor einn i náttúruvísindum náði froski og dró upp vasa-
úr sitt til að athuga og ákveða lífæðaslátt frosksins. Þegar
hann hafði nógsamlega reynt þetta og rannsakað fleygði hann
úrinu út i tjörn, enn stakk froskinum i vestisvasa sinn.
fiskr 38 kr., ísa 27— 28, langa 42— 44 kr.
Ull. Vorull selst fyrir 70—75 au. pd., haustull
fyrir 65 au., mislit fyrir 50—52 au., svört fyrir 55
au. í Liverpool seldist sunnlensk vorull fyrir 651/,
au. pd.
Ly'si. Gfufubrætt hákarlslýsi á 33®/4 kr. — 34J/2
kr. tunnan; pottbrætt 32V2—33, þorskalýsi 26—30
kr. dökkt hákarlslýsi 23—28 kr.
Kjöt er borgað 561/,,—581/,, kr. tunnan.
Hardfiskr 187x/2—192 kr. skpd.
Æðardúnn 9^/g—11 x/2 kr. pd.
Fólkstalið í Keykjavík, í bænum sjálfum, var 1.
nóv. þ. á. 3700.
Pðstskipið Laura kom 23. nóv. Með því komu
þrír íslendingar frá Ameriku og fáir farþegar aðrir.
Veikindi allmikil hafa gengið hér í bænum stöð-
ugt síðan í vor, einkanlega kíghósti og lungnabólga
í börnum. Síðan í miðjum júní hafa dáið 50—60 börn
hér í bænum.
Mannalát. 16. þ. m. lést merkisbóndinn Ólafr Þor-
valdsson bóndi 1 Hafnarfirði.
6. nóv. lést Brynjblfr Einarsson bóndi á Meðalfeili
65 ára.
22. nóv. lést hér í bænum húsfrú Kristjana Jón-
assen, alsystir Geirs kaupm. Zoéga, en ekkja versi-
unarstj. Jónasar Jónassens. Þeim hjónum varð ekki
barna auðið, enn hún ól upp mörg fóstrbörn.
*„Hinn 10. október andaðist Jón Bjarnason,
bóndi á Þuríðarstöðum í Eyðaþinghá eystra. Ferða-
menn víðsvegar um land munu kannast við hann, enn
þó sérstaklega austfirskir vegfarendr. Hann var gest-
risinn, var eiginlegt að gefa og sjá ekki til gjalda,
og má því með sönnu segja um hann:
Hann saddi hungraða,
svalaði þyrstum,
hýsti hælislausa;
alla gladdi hann
gjöfum sínum.
því hann gaf með gleði“.
Lík Bertéls ÞorleiJssonar stúdents hefir fundist
rekið við Amager í Khöfn; þykir því líklegt að hann
hafi drekt sér.
Frá útlöndum eru engin sérleg tíðindi, önnur
enn þau, er þetta blað hefir þegar fiutt á undan hin-
um blöðunum. Smálegar fréttir koma í næsta blaði.
Verslunarfréttir (Kmh. 7. nóv. 1890). Saltfiskr.
Skipsfarmar þeir, er áttu að fara til Spánar frá Faxa-
flóa, eru nú uppseldir, aftr á móti eru 5 skipsfarm-
ar af fiski frá ísafirði óseldir, sem eru boðnir til
sölu fyrir 58 mörk skpd. Fyrir einn skipsfarm það-
an var einungis boðið 52 mörk fyrir skpd. og síðar
55 mörk. — í Kmh. seldist vestfirskr óhnakkakýldr
fiskr fyrir 56—57 kr. skpd., hnakkakýldr fyrir 65
— 70 kr. Vestfirskr smáfiskr seldist á 40—42 kr.,
vestfirsk ísa á 28—29 kr., vestfirsk langa fyrir 45
kr. En sunnlenskr og austfirskr fiskr, stór, óhnakka-
kýldr seldist fyrir 48—50 kr., málsfiskr 44 kr., smá-
Búgur að hækka í verði 6—6,25 kr. 100 pd. Rúg-
mjöl 6,50. Bankabygg 8—8,75 kr. 100 pd. Grjón
stór 9,50 kr. 100 pd. og smærri grjón 8,25 kr.
Kaffi. Gott meðalkaffi 80—85 au., lakara 72—
77 au. pd., púðrsykr ÍS1^—14 au. pd., kandis 18]/2
—19 au. pd., melis 181/,,—19 au. pd.
Leiðrétting;. Misprentað í bíö. bl.: í útlendu fréttunum um
blysförina 1200 f. 12000 manna.
UIAIA
Félagsprentsmiðjan
á Laugavegi nr. 4, verkstjóri Sigmundr Guðmundsson,
tekr að sér alls konar prentun. Öll prentun sérlega vel
vönduð. Þeir, sem eitthvað vilja fá prentað, geta snúið
sér til prentsmiðjunnar eða til ritstjóra Þorleífs Jóns-
sonar og samið um prentunina.
Ekta Anílins- Lrrm
fást í verslun Sturlu Jónssonar.
Munntóbak ÖS rjóltóbak
nýkomið í verslun Sturlu Jónssonar.
Tilbúinn fatnaðr, vandaðr og með góðu verði fæstí
verslun Sturlu Jónssonar.
Fataefni, einkar vel vönduð og með góðu
verði, fást í verslun Sturlu Jónssonar.
Rónir sjóvetlingar eru keyptir með hæsta verði í
verslun Sturlu Jónssonar.
Skósmíöaverkstofa, Vesturg. 4.
Eptir þessu sýnisborni
ættu þeir sem panta vilja
stígvél hjá mér, að taka
mál af fætinum utan yfir
1 sokk, með mjóum bréf-
ræmum eða mælibandi. Ná-
kvæmlega verðr að taka
lengdarmálið eptiv því, sem
sýniskornið bendir til.
Björn Kristjánsson.
Gráblá kattarskinn eru keypt háu verði í verslun Sturlu
Jónssonar.
Epli, vínþrúgur, melónur, laukr, ansjósur, sardínur. sultutau
fæst í verslun Sturlu Jónssonar.