Fjallkonan - 23.06.1891, Side 2
ntóbak og neftóbak er hvergi ódýrara enn 1 verslun Eyþórs Felixsonar.
98
FJALLKONAN.
Vin, 25.
3
£
að rétt mundi vera, að leysa ekki vistarbandið að
sinni, enn gera aðganginn að lausamensku hægri með
því að færa leyfisgjaldið niðr um lielming. — Eætt
var um breyting á sveitarstjórnarlögunum í þá átt,
að sameina störf hreppstjóra og oddvita og launa
þeim sýslunarmanni úr landssjóði. — Ura mentamál var
allmikið rætt og var það niðrstaða fundarins, að auka
skyldi styrkinn til sveitakennara, enn jafnframt gera
ráðstafanir til að hæfir menn væru teknir til þess
starfa.
Þingmálafuudr í Arnessýslu. Fundr þessi var
haldinn í Hraungerði 15. júní. Mættu þar auk
beggja alþingismanna kjördæmisins 4 úr Stokks-
eyrarhreppi, 1 úr Olfushr., 1 úr Þingvallahr., 1 úr
Biskupstungnahr., 2 úr Hrunamannahr., 1 úr Gnúp-
verjahr., 1 úr Skeiðahr., 1 úr Villingaholtshr. og 5
úr Hraungerðishr. Til fundarstjóra var valinn
Þorlákr alþingism. Guðmundsson og til skrifara
sóra Valdimar Briem. Gjörðir fundarins vóru: 1.
Lýst var yfir áliti þvi í stjórnarskrármálinu: að
þingið haldi fast fram rétti Islands til alinnnlendr-
ar löggjafar og stjórnar i þess sérstöku málum með
fullu fjárforræði og ábyrgð fyrir alþingi, og það
gæti þess að sleppa eigi réttindum landsins úr hönd-
um sér. Hinsvegar var álitið mjög óheppilegt, að
þingmenn gengu i tvær sveitir í því velferðarmáli,
þar sem þó vitanlega aUir vildu eitt', meiningarmuninn
mætti laga, svo að vel færi, með góðum vilja af
beggja hálfu. — 2. Kosnir 2 menn til Þingvalla-
fundar, sem boðað er til 29. þ. m., þeir Jónas
hreppstjóri Halldórsson í Hrauntúni og Brynjólfr
Jónsson ffá Minna-Núpi. — 3. Oskað laga, er fyrir-
bygðu betr enn enn þá er, að nokkra höfn megi
einoka. Álitu fundarmenn einna tiltækilegast, að
fá kosnum nefndum umráð yfir höfnum og hafna-
áhöldum, notkun þeirra og umbótum á þeim, und-
ir umsjón yfirvalds. — 4. Vistarbandið var álitið að
leysa ætti, enda þótt ekki væri hægt að sjá allar
afieiðingar þar af, enn bent var á, að um leið mundi
þurfa að endrskoða ákvæði laganna um það að geta
unnið sór sveitfesti. — 5. Lagt til, að afnema tí-
undir, lausafjárskatt og ábúðarskatt. Fátækratíund
álitin þýðingarlaus og mætti hún falla burtu. — 6.
Lagt til að leggja útflutningstoll á landvöru í stað-
inn fyrir ábúðar og lausafjárskattinn. — 7. Lagt
til, að i stað kirkjutíundar verði lagt á alment
kirkjugjald, enn að landssjóðr launi prestum meðan
kirkjan er rikiskirkja. — 8. Óskað laga heimildar
til að launa hreppsnefndaroddvitum af hreppasjóð-
um, þar sem ástæður væru til þess. — 9. Þinginu
falið að halda eftirlaunamálinu áfram í sömu stefnu
og á siðasta þingi. — 10. Beðið um að stofnuð yrði
innlend kensla í dýralækningafræði. ... 11. Beðið
um að heitið yrði verðlaunum fyrir, að finna ör-
ugt ráð við bráðapestinni. — 12. Mælt alvarlega
með því, að halda áfram lagaskólamálinu. — 13.
Þinginu falið, að greiða sem best fyrir mentun al-
þýðu, bent samt á, að betra væri að fresta enn
flaustra því vandamáli, og beðið um, að auka styrk-
inn til sveitakennara, nema því að eins, að annað
ráð yrði fundið sem áreiðanlega væri betra og hag-
kvæmara. — 14. Lagt til að selr yrði gerðr rétt-
dræpr í veiðiám og vötnum, enn álitið, að laxveiða-
eigendr ættu að bæfa þeim, er þar við missa sel-
veiði og fá eigi laxveiði í staðinn.. — 15. Óskað að
þingið gerði sitt ýtrasta til að bæta samgöngur á
sjó og landi. — 16. Álitið ótækt, að setja brúar-
vörð við Ölfusárbrúna og óhagfelt að tolla hana al-
ment, enn fallist þó á, að taka brúartoll af mark-
aðarekstrum, og mundi mega koma þvi við án sór-
staks brúarvarðar. Eftirlit með brúnni skyldi
falið næstu bændum mót þóknun af landssjóði. —
17. Óskað, að sem mest yrði flýtt fyrir Þjórsár-
brúnni. — 18. Lagt til, að stofnaðr verði geð-
veikra-spítali í Eeykjavík. — 19. Talið ráðlegt, að
samþykt verði þingsályktun um undirbúning til
þess, að tekin verði upp sýslu- og hreppamörk á
sauðfó. — 20. Mælt með þvi, að veittr verði styrkr
úr landssjóði til þess, að halda áfram sjógarðsbygg-
ingu á Stokkseyri. — Að lokum lýsti fundrinn óá-
nægju sinni yfir því, hve fáir höfðu orðið til að
sækja hann.
Alþingismaimskosning í Kangárvallasýslu fór
fram 15. þ. m. Kosinn var séra Ólafr Ólafsson í
Outtornishaga með 58 atkvæðum. Næst honum fókk
Þórðr bóndi Guðmundsson í Hala 54 atkv. — Fyrst
féllu atkvæðin svo, að Þórðr bóndi Guðmundsson
fékk 56 atkv., enn sóra Ólafr 53 og Jón söðlasmiðr
í Hlíðarendakoti 9, enn með þvi að enginn fókk
fullan helming atkvæða, varð að kjósa upp aftr.
Slys við Ölfusárbriína. 15. þ. m. vildi það slys
[ til að flutningsbátr hlaðinn járni, er hafa átti í
brúarsporðana, hvolfdist á Ölfusá; á bátnum var ungr
Englendingr, er hafði farið út í hann þrátt fyrir
aðvaranir þeirra, sem við vóru staddir. Maðrinn
druknaði. Tekist hefir að ná bátnum aftr, enn
j mest mun hafa tapast af því sem í honum var.
Prestkosning. ‘2. júuí var haldinn fundr að Bjarna-
nesi til að kjósa prest fyrir Bjarnanesprestakall. I
kjöri vóru prestarnir: séra Ólaf'r Magnússon á Sand-
felli og séra Þorsteinn Benidiktsson á Eafnseyri og
kand. Eicliarð Toríason. í byrjun fundarins kom yfir-
lýsing frá séra Ólafi um, að hann óskaði að verða
ekki kosinn. Kosningin féll þannig, að allir þeir sem
atkvæði greiddu, enn það voru 33 af 55, sem á kjör-
| skrám stóðu, kusu séra Þorstein Benediktsson.
Bókmentafélagsfundr var haldinn í gær í
j Eeykj avikrdeildinni, hinn fyrri ársfundr, sem sam-
kvæmt félagslögunum á reyndar að halda í febrú-
ar. Á fundi þessum vóru fólaginu boðin til útgáfu
I ljóðmæli út af biblíunni eftir séraValdimar Briem.
Nefnd var sett til að segja álit sitt um bók þessa
og vóru í hana kosnir: biskupinn (náttúrlega),
prestaskólakennari Þórhallr Bjarnarson og dr. Björn
j Ólsen.
Druknan. 13. þ. m. druknaði á Blönduósi Árni
B. Knudsen, búfræðingr; liafði farið að baða sig í
sjó. Hann var syndr, enn haldið að hann hafi feng-
ið sinadrátt og því ekki getað komið sundtökunum
við. Hann var ungr maðr og efnilegr.
Dáin 15. þ. m. frú Steinunn Melsteð í Klaustrhól-
um, ekkja sóra Jóns Melsteðs, er þar var prestr
(f 1872), enn dóttir Bjarna amtmanns Thorarensens,
skáldsins, merkiskona, 67 ára að aldri. Eitt af
börnum hennar er Bogi Melsteð, kand. mag., sem
kom frá Kaupmannahöfn með síðasta póstskipi.
6. þ. m. lézt að Fiskilæk í Borgarfirði húsfrú