Fjallkonan - 20.04.1892, Blaðsíða 3
20. apríl 1892.
FJALLKONAN.
68
fá í Keflavík, enn í vetr varð þar snemma kolalaust
enda færði fél. engin kol í fyrra. Þeir sem lielst
gengust fyrir félaginu, hafa feugið misjafnar þakk-
ir, og víst lítil laun, og munu því að vonum þreytt-
ir á að draga fram í því lífið og fá vanþökk að
Iaunum.
'Líklega fara menn nú að gera tilraun með að fá
samþyktinni breytt á næsta sýslufundi, því liægra
mun mönnum að sækja héraðsfund að sumrinu, enn
að þrásækja slíka fundi um hávetr, og varia er mönn-
um trúandi til, að horfa rólega á fiskinn fyrir framan
vararkjaptana árum saman og fá ekkert af honum,
því ekki geta menn, sem hafa nokkra fyrirhyggju,
treyst því, að néitt komist í lag með lagabrotum.
Njarðvíkum, 12. apríl.
Þýskalands keisari hafði háífvegis ætlað sér að
fara til íslands i sumar, enn hætti við það aftr vegna
þess, að enginn málþráðr tengir oss við önnur lönd.
— Með þessu málþráðarleysi kórónar Danmörk önn-
ur Evrópu lönd. og Tyrkjann með, enda munu þeir
vera til, sem biðja guð og kónginu að forða því böli,
að hingað verði nokkurn tíma lagðr málþráðr.
Hraðfregnaskeyti í lausu lofti. í mörgum blöð-
um stendr, að Edison hafi nú fundið að Jelegrafera'
málþráðarlaust. „Ég liefi fundið það“, segir hann,
„að rafmagns-.telegrafering' miili tveggja staða, sem
eru fjarri hvor öðrum, er möguleg án leiðsluþráðar
með færslu (induktion) rafmagnsins, enn það verðr að
fara fram í nægilegri hæð til þeSs að yfirstíga jarð-
bunguna og hindra það að jörðiu sogi í sig rafmagn-
ið. Þetta má jafnt gera á sjó og landi“.
Skemtiferðir til (xrænlands. í þýskum blöðum
hefir því verið hreyft, að skemtiferðamenn (túristar)
ættu nú að vera að venja komur sínar til Grænlands,
heldr enn að vera alt af að sækja á sömu stöðvarn-
ar. Ættu menn að fara þangað til vestrstrandarinn-
ar, t. d. síðast í júlí og færa sig svo í ágúst norðr
eftir alt að 75. breiddarstigi, því að þá sé íslaust;
þá sé loftslagið þægilegt. Mikið sé þar að sjá, lands-
lagsbreytingar stórkostlegar, feiknajökla og ísborgir
hvarvetna. Nú sem stendr sé raunar lítið um far-
kost að gera þangað, nema með dönskum skipum^
enn þess muni ekki langt að bíða, að ferðamanna-
eimskip verða látin ganga þangað reglulega um há-
sumartimann, alveg eins og til norðrodda Noregs.
Heiinssýiiiiig' í Berlín 1898. Til orða hefir kom-
ið, að þar verði haldin heimssýning það ár. Til
þessa hafa 8 slíkar stórsýningar verið haldnar í Ev-
rópu, þar af 4 í París. Minni sýningar hafa verið
margar, þar á meðal sú, er síðast var í Khöfn.
Mikil tíöindi og ill.
ÍJtfiutningsbann á fénaði frá íslandi.
Með herskipinu tDiana‘ fékk landshöfðingi tilkynn-
ingu frá dönsku stjórninni um að enska stjórnin
(deild akryrkjumálanna) hefir lagt bann á innflutn-
ing á lifandi fé tilEnglands- Skotlands-Wales frá Spáni,
Noregi, Svíþjóð og Islandi frá 1. apríl þ. á. vegna
innfluttrar fjársýki (sem að vísu er ókunn á íslandi).
Er þannig loku fyrir það skotið, að nokkur fjárkaup
verði af hálfu Englendinga hér á landi þetta árið,
að minsta kosti, nema úr því rætist síðar, sem mjög
er óvíst, þótt landstjórnin hér reyni að kippa því í lag.
Auðvitað liefir ísland verið tekið með inn í banns-
ákvæðin eingöngu vegna sambands þess við Danmörkur
því þar hefir fjársýki þessi gengið, og því vóru áðr
bannaðir innflutningar á fé til Bretlands frá Dan-
mörku.
Eun eitt dæmi þess, hve sambandið við Danmörku
er blessunarríkt fyrir oss!
Flestir munu renna grun í, hverjar afleiðingar það
muni hafa fyrir ísland, ef fjárverslunin, sem að und-
anförnu hefir verið meginþáttr íslenskrar versiunar,
líðr undir lok. Hvað mun bæta iandinu upp missi
hinna mörgu þúsunda, sem fjárverslunin hefir gefið
af sér?
Reynandi væri að fara að dæmi Dana, sem hafa
hafa nú í vetr byrjað fjárversiun við Dýskaland,
og tekist vel sú byrjun. Það er ólíldegt að ekki
megi fá markað fyrir íslenskt sauðfé á Þýskalandi.
Það væri ekki óráðlegt að leita fyrir sér í því efni.
Svæfingarsaga
frá Ameriku.
g átti mér einn vin við háskólann og vórum við mjög sam-
rýndir. Báðir lásum við læknisfræði. Hann var úr Georgiu,
einu suðrríkinu, og fór heim til átthaga sinna pegar við höfð-
um lokið náminu. Nú eru tíu ár síðan, og þá var það, að saga
þessi gerðist, sem ég segi hér frá:
Vér stúdentar vórum eitt kvöid i líkskurðarstofunni, og vóru
þar fimm lík, sem átti að skera upp. Oss var sagt að skifta
likunum milli okkar eftir vild. Líkunum er venjulega skiít i
fimm hluti, sem eru: höfuð, hægri og vinstri handleggr, hægri
* og vinstri fótr, og með hverjum hlut fylgir nokkur hluti af lík-
amanum. Við vinr minn og þrír stúdentar aðrir urðum fyrir því
að skera upp lík ungrar stúlku 19 ára að aldri. Vér létum
hlutkesti ráða, hvernig vér skiftum líkinu á milli okkar, og eftir
því átti vinr minn að hafa höfuðið til meðferðar, enn ég hægra
handlegginn. Þá var orðið framorðið og fóru stúdentarnir heim,
nema við tveir. Vinr minn dáðist mjög að stúlkunni, hve frið
hún hefði verið, og loks fórum við að tala um, hvort nokkur
merki væri ugglaus til að sanna að maðr sé dáinn. Venjulega
eru slík merki áreiðanleg, enn það getr brugðist. Dess vegna eru
svo mörg dæmi til að menn eru grafnir lifandi. Vinr minn var
læknisson, og var því reyndari enn ég. Hann sagði: j&að er
margt, sem taka má mark á um að líf leynist með líki, og ef
engin mörk eru sýnileg, má ganga að því vísu að maðrinn er
dáinn. Heð rafmagnsstraumi má koma hreyfingu á vöðvana, jafn-
vel á liðnu líki, enn þessi hreyfing kemr ekki fram lengr enn 5
tímum eftir að maðrinn er dáinn. Annað handhægt ráð er að
hnýta bandi um fingr á líkinu, og ef það sést að fingrinn fyrir
neðan bandið verðr öðru vísi litr (dekkri), þá er það sönnun fyr-
ir, að blóðið er enn í hreyfingu. Bf vér þá leiðum rafmagns-
straum í líkið, þá sjáum vér óljós merki um andardrátt, ef vér
höldum spegli fyrir vitum þess‘.
Heðan hann talaði þetta, hafði ég í hugsunarlevsi verið að
reyna að færa til gullhringinn, sem var á hendi stúlkunnar. Enn
hann var fastr og bifaðist ekki, þótt ég beitti talsverðu afli. Ég
benti skólabróður mínum á þetta, og eftir nokkrar tilrauuir tókst
okkr að færa hringinn að miðliðnum á fingrinum, enn lengra.
ekki. Vér tókum þá eftir því að fingrgómrinn hafði dökuað.