Fjallkonan


Fjallkonan - 10.05.1892, Side 2

Fjallkonan - 10.05.1892, Side 2
74 FJALLKONAN. IX, 19. og varð hanu að borga mér hvern eyri. Litlu síð- ar komst ég að því, að útlendingrinn hafði samið svo við túlkinn, að hann (túlkrinn) átti að borga mér fylgdarkaupið, enn þessar 3 kr. ætlaði hann sjálfr að gefa mér. Sömuleiðis heyrði ég eftir út- lending þessum, að þessi túlkr haus hefði reynst illa á margan hátt og verið bæði drykkfeldr og lyginn, enda heyrði ég hann einskis spyrja hann á norðrleiðinni. Af þessu eina dæmi er hægt að sjá, hvað þessir menn geta rýrt álit útlendra manua á þjóðinni og gefið þeim skakkar skoðanir á mörgu, eins og sjá má á mörgum ferðabókum, að því er blöðin skýra frá. Konráð Maurer gat talað fyrir sig sjálfr, enda mun hann hafa náð réttari skoðuu á landi og landsmönnum enn flestir aðrir. Flestir útlendir ferðamenn koma fyrst til Reykja- víkr. Ættu því Reykjavíkrbúar, sem nokkuð er ant um sóma landsins, að sjá um, að svo miklu leyti sem í þeirra valdi stendr, að óhæfir menn komist ekki í þá stöðu, að vera túlkar útlendinga, þar sem þó hlýtr að vera völ á hæfum mönnum. Eins og áðr er um getið, hef ég ofo fylgt ferða- mönnum Sprengisandsveg, og gerði ég það fyrstr manna að fara einn til baka, ef ekki þurfti fylgd báðar leiðir; enn í seinni tíð hefi ég af mörgum verið átalinn fyrir það, að hafa lagt líf mitt í hættu og jafnvel annara, sem kynnu að leika þetta eftir mér. Eg get ekki borið á móti því, að þetta sé nokkur hætta, þar sem maðr er 7—9 dægr í óbygð, og yfir eitt hið mesta stórvatu að fara, og hvergi meiri illviðra von. Enn með þessu hefi ég sparað fé auðugra útlendinga svo mörgum hundruðum króna skiftir, og býst ekki við að fá mikið þakk- læti fyrir. Þar sem ég nú er hálfsjötugr og er heimilisfaðir, býst ég við að hætta þessum ferðum, þó mér kunni að verða lengri lífdaga auðið. í öllu falli verð ég héðan af ófáanlegr til að takast slika fylgd á hendr nema með öðrum manni til, er sam- ferða geti orðið til baka. Sömuleiðis víl ég gera það kunnugt, að séu fylgdarmenn útlendinga ann- aðhvort óþektir menn eða þektir að því að vera ekki áreiðanlegir, verða þeir að gefa skriflegt lof- orð um umsamda borgun áðr enn ferðin byrjar. Haga í Gnúpverjahreppi í apríl 1892. Asmundr Benediktsson. Um síldbeitu og geymslu hennar eftir Svein Brynjölfsson. (Niðrl.). Eg var í fyrstunni að hugsa um að gefa nákvæma lýsingu á öllum þessum útbúnaði, enn hætti við það í þetta sinn, vegna þess, að ég er hræddr um að það geti ekki komið að fullum notum, nema uppdrættir fylgdu, og mundi þá vera heppilegast að gefa það út í sérstöku riti. 0g þess vegna er heldr ekki til neins að svo komnu að gefa reglur fyrir hvernig á að nota það. Eg ætla að eins að minnast á það hvernig hægt er að geyma ísinn, svo hann ekki renni niðr, því það er að svo mörgu leyti þægilegt að hafa hann á sumrin, þeg- ar hitar eru, og má líka til skamms tíma geyma síld í honum, sem getr verið brúkleg beita. Hús til að geyma í ís má vera hvort heldr er með tréveggjum, steinveggjum eða torfveggjum, enn gott er að þeir séu súglausir, og nauðsynlegt að ekki renni vatn í gegnum þá. Ef veggirnir eru úr torfi er betra að slá einhverjum óvönduðum fjalarimlum innan á þá, svo það sem haft er kring- um ísinn liggi ekki í moldinni. Þakið má vera úr hverju sem verkast vill, að eins að það ekki leki. Nauðsynlegt er að malargólf sé í slíkum húsum, svo að það sem rennr niðr af ísnum ekki standi uppi. Líka mætti hafa gólf úr trérimlum og svo umbúið, að það sem rennr niðr geti runnið út. Sag eða hey er vanalega haft í kringum isinn svo hann ekki renni niðr. Hér á landi mætti einkan- lega brúka hey; þó er líklegt að einnig mætti brúka moð. Aðr enn ísinn er lagðr niðr er nauðsynlegt að leggja lag af heyi á gólfið, sem mun vera nægi- legt um 6 þuml. þykt, enn þykkra ef líkur eru til að súgr komist inn með gólfinu. Þegar ísnum er hlaðið upp, verðr að hafa bil milli hans og veggj- anna og fylla það jafnótt með heyi. Séu einfaldir tréveggir á húsinu, mun ekki veita af 12 þuml. þykku heylagi í kring, enn þynnra ef veggirnir eru góðir. Við þetta er ekkert annað að athuga enn troða heyinu svo fast, að hvergi komist loft að ísnum. Einnig þarf að leggja lag af heyi ofan á ísinn, svo þykt að hvergi komist loft að, enn það er álitið nauðsynlegt að byrgja ekki húsið svo fyrir ofan ísinn, að þar sé ekki nægr loftstraumr. Þess verðr að gæta, að þegar isinn er tekinn úr húsinu, að ganga svo vel frá aftr að ekki komist loft að. Frekari upplýsingar þessu viðvíkjandi er ég fús að gefa þeim er þess óska. Dómar „ísafoldar“ um sjónleikina. Þar sein nú allir dómar „ísaf.“ viðvíkjandi sjónleikjunum í vetr eru komnir út, finst mér ástæða til þess að fara um þá nokkrum orðum, ef þér hr. ritsjóri, viljið taka þau í blað yðar. — £>að stendr nú reyndar ekki nær mér enn öðrum, sem láta sér umhugað um sjónleiki að taka til máls um þetta, enn af því að ég þykist sjá að enginn muni taka sig fram um það, vil ég gera það þótt hvorki timi né rúm leyfi mér að gera það svo rækilega sem ég vildi. Ég skal taka það fram, að ég sá oft leik- ina og er mörgum leikendum persónulega kunnugr. — Mér hefir sem sé ekki dulist að sumir þessir dómar „ísaf.“, einkum þeir i fyrstu, um einstaka leikanda hafa verið mjög ósanngjarnir í samauburði við það er hún hefir jsagt um suma aðra (o: vini sína og kunningja). Sumt í dómum þessum er ósatt og sumtó- nákvæmt. — Þegar dæmt er um hvern einstakan leikanda verðr j að taka tillit til margs, t. d. hvað örðugt er að leika hverja j „rullu“ i samanburði við hinar o. s. frv. Þetta hefir ritstj. „ísaf“. víðast hvar ekki gert, og engum mun finnast það rétt að ritstj. blaðs, hvort sem hann heitir „Björn“ eða annað, skrifi opinber- lega um frammistöðu leikenda með fyrirlitningu og remhing þótt þeim ekki takist að leika eins og honum líkar. — Það er heldr ekki rétt að mæla leik þeirra manna, er enga tilsögn hafa feng- ið i leikment enn leika einungis sér og öðrum til skemtunar, á sama kvarða og leik þeirra manna, sem notið hafa tilsagnar í mörg ár og hafa gert það að lífsstarfi sínu. — Ég skal þá fyrst minnast á dóminn um „Æfintýrið". Mér og mörgum öðrum finst hann mjög ósanngjarn hvað suma leikendr snertir, t. d. það sem sagt er um Skrifta-Hans og assessorinn, enda hefir heyrst rödd um það í þessu blaði áðr. Að flestra manna áliti var Skrifta-Hans sérlega vel leikinn eftir því sem við er að búast hér, því „rullan“ er vandasöm. Hvað viðvikr misskilningi á sumu, sem hann og ef til vill fleiri hafa gert sig seka í, þá er það aö mínu áliti Instruktörnum" að kenna, því til þess er hann að hann leiðbeini. — Assessorinn var að flestra áliti fremr vel

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.