Fjallkonan - 10.05.1892, Page 4
76
FJALLKONAN
IX, 19.
ið lagt til ámælis að liann rækti ekki em-
bætti sitt. ■— „Heilræði“ það sem J. G.
leggi séra J. P. í niðrlagi greinar sinn-
ar kveðst P. G. ætla sðknarbörnunum hans
að svara.
Yíndrykkja Bismarcks. Maðr nokkur,
Krall Elberfeld að nafni hefir nýlega með-
al annars sagt fráveitingumhjáBismarck:
„Nokkrar umferðir af heitum mat vðru
búnar og eftirmatrinn kominn á borðið. |
Bismarck kveykti sér í langri pípu, hall- [
aði sér makindalega aftr í hægindastóli
sínum og var að spjalla. Hann bauð mér
smástaup af gömlu Lohmanns kornbrenni-
víni, enn ég afþakkaði vegna þess að ég
hafði svo mörg glös fyrir framan mig. „Á“, |
sagði hann og brá á gaman, „ég held j
okkr sé alt af að fara aftr með drykkjuna. [
Bara það fari ekki fyrir okkr eins og |
Englendingum síðan þeir fðru að þamba j
tðmt teseyði og blávatn. Við Norðrlanda- j
búar þurfum að skvetta í okkr. Hngverj- I
ar og Spánverjar og þeir aðrir þar niðr
frá eru hálfslompaðir þegar þeir koma í
heiminn. Enu þegar þýskr maðr á að
finna almennilega til þróttar síns, þá veit-
ir honum ekki af að setja í sig hálfa flösku
af víni eða — bætti hann við hlæjandi
— ef vel vill heilli. Og yðreralvara; þér
viljið það ekki? Ég vil ekki sjá þessa
Jíköra' og þetta sæta gutl, enn hjá Ágústu
drotningu hásællar minningar fékk maðr
ekki annað enn þess konar. Sterkr ,kon-
jakkari‘ það er nokkuð fyrir mig. Nú
vildi til allrar hamingju, að meðal offisér-
anna sem þjðnuðu fyrir borðum vóru tveir
skolli séðir náungar; mér er rétt sem ég
sjái annan þeirra; það var langr stðrskota-
liði. Hvað geri ég? Þegar hann kemr
til min, depla ég til hans hægra auganu,
enn hann dregr vinstra augað í pung, og
þá vissi ég upp á hár, að þeim megin
stæði handa mér glas af ósviknu konjakki“.
Áð þessu kænskubragði hlð furstinn svo
dátt, að honum komu tár í augu.
Tíðarfarið er fjarska kalt, —
frost á nóttum og suma daga um
Mdaginn. Lítr því illa út með
gróðr.
Mannalát. 2. maí lést séra Jón
Björnsson á Eyrarbakka á 63. ári.
Hafði gengið heiman að frá sér út
með sjó og fanst dauðr í flæðarmál-
inu; hefir eflaust dáið af aðsvifi.
6. maí lést Jón Björnsson versl-
unarstjóri á Eyrarbakka, efnismaðr,
sonr Björns bónda Pétrssonar á
Hlaðseyri við Patreksfjörð og tengda-
sonr Markúsar kaupmanns Snæ-
bjarnarsonar á Vatneyri.
4. maí druknaði Sveinn Sveins-
son búnaðarskólastjóri á Hvanneyri
í smálæk skamt frá bænum; hafði
sótt á hann þunglyndi nokkra daga
á undan.
I apríl lést að Syðri-Þverá í Vestr-
hópi Guðný Sigurðardóttir ekkja
séra Jóns Kristjánssonar, er þar var
síðast prestr (bróður þeirra Kristj-
áns amtmanns og Benedikts pró-
fasts), og þótti merkiskona í sinni
röð.
Þingmenn. Þorvarðr Kjerúlf
ætlar að sögn ekki að gefa kost á
sér framar til þingmensku, og ó-
víst um Jón á Sleðbrjót. — Sagt
er að Norð-Mýlingar hafi augastað
á Guttormi búfræðingi Vigfússyni
sem þingmannsefni. — Talið er lík-
legt, að Suðr-Þingeyingar muni
kjósa Einar í Nesi til alþingis, með
því hann muni gefa kost á sér.
„Um Mndindi“ hefir séraMagn-
ús Jónsson í Laufási, hinn ótrauði
foringi bindindismálefnisins, enn þá
gefið út ritling á kostnað bindind-
isfélags Höfðhverfinga.
Austrstræti 1. Verslun Eyþórs Felixsonar. Austrstræti 1.
(andspænis „Hotel ísland“),
selur allskonar álnavöru og nauðsynjavöru með
vægu verði gegn peningum.
Stólar og önnur hús-
gögn verða tils sölu með góðu
verði um 14. maí. B-itstj. vísar á.
2góðir reiðhestar verða til sölu
um miðjan júni. Ritstj. vísar á.
Bækr til sölu á afgreiðslustofu
Fjallk.:
Savage: Unitara katekismus
þýddr af Birni Pétrssyni. Kost-
ar heftr í stífa kápu 1 kr.
Jón Pétrsson: Kirkjuréttr, á 3
kr. 50 au.
Til gamle og unge Mænd é
anbefales paa det bedste det nylig i be-
tydelig udvidet Udgave udkomne Skrift
af Med.-Itaad Dr. Miiller om et
og om dets radikale Helbredelse.
Pris inkl. Forsendelse i Konvolut 1
kr. i Frimærker.
Eduard Bendt, Braunschiveig.
Hérmeð leyfi ég mér að tilkynna
hinum heiðruðu viðskiftamönnum
mínum og öðrum, að ég liafi áform-
að að fara heim til Seyðisfjarðar í
maí næstkomandi, dvelja þar fram
á haust og stunda verslun og hand-
iðn mína líkt og að undanförnu.
Kaupmannahöfn í janúar 1892.
Magmís Einarsson, úrsmiðr.
Leiðarvísir til lífsáhyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá
Dr. J. Jónassen, sem einnig gefr allar
nauðsynlegar upplýsingar um lífsá-
byrgð.
r
Iverslun Magnúsar Einarssonar úr-
smiðs á Vestdalseyri við Seyðisfjörð
fást ágæt vasaúr og margskonar vand-
aðar vorur með mjög góðu verði.
JVaupendr Fjallkonunnar hér í bæn-
um og nágrenninu sem árum sam-
an hafa dregið að borga andvirði
hennar eru beðnir að gera það eða
semja við ritstjórann fyrir 20. þ.
m. Að öðrum kosti verða skuldir
þessar fengnar málflutningsmönnum
tii innheimtu.
„Gefjun“, fylgirit Fjallk., verðr
ekki afhent öðrum kaupendum í
Rvík og nágrenninu enn þeim sem
reyndir eru að skilsemi. Hinir geta
vitjað ritsins um leið og þeir borga
skuldir sínar frá fyrri, árum og ný-
ir, ókunnir kaupendr um leið og
þeir borga þennan árgang blaðs-
ins.
Yinnukona getr fengið góða víst
á ísafirði nú þegar. Frítt far vestr.
Snúa má sér til ritstjóra Fjallk.
ú er verið að pakka upp hinum stðru
og margbreyttu vörubirgðum hjá W. Ó.
Breiðfjörð, og mun mönnum sem fyrr gef-
ast á að líta þegar alt er komið á sinn
stað í sölubúð minni, sem er nú orðin alt
of lítil fyrir vörumagn [mitt. Einnig get
ég ekki stilt mig um, að tilkynna hinum
háttvirtu Rahbeks-Állé-vinum, að nú hef
ég fengið hina nýjustu aftöppunarvél, sem
fékk medaliu á sýningunni í Kaupmanna-
höfn 1888 sem bryggeríið í Rahbeks-Állé
hefir nú keypt einkaleyfi á, og getr því
enginn hér á landi fengið þannig aftappað
öl nema hjá
W. Ó. Breiðfjörð.
Útgefandi: Valdimar Ásmundarson.
Félagsprentsmitjan.