Fjallkonan - 26.07.1892, Blaðsíða 1
IX. ár.
Nr. 30.
N.
FJALLKONA
Arg. 3 kr. (4 kr. erlendis). Gjalddagi 15. júlí. Reykjavík, 26. jÚlí 1892.
Skrifst. og afgreiðslus
Útlendar fréttir.
Rússabelsari var farinn heixn frá Danmörk og
hafði hann áðr hitt Þýskalandskeisara í Kíl, ’þar
þar sem hann var með þýskri flotadeild. Urðu
samfundir þeirra stuttir að sagt er og að eins til
málamyndar. Þýskalands keisari er nú í Noregi
að njóta sumarsins, og væntanlegr heim snemma í
ágústmánuði.
Kritr milli Svía og Norðmaima er kominn í hart,
þar sem Svía konungr hefir [neitað að^slaka tilaí
konsúlamálinu; hefir því Steen með ráðaneyti sínu
beiðst lausnar, og var ekki svo langt komið að nýtt
ráðaneyti væri myndað, enn getið helst til, að Stang
fyrr. ráðaneytisforseti mundi ganga í þann sess af
nýju. Steen hefir öfiugt fylgi þjóðarinnar, og vóru
miklar lýðhreyfingar í Kristjaníu og Noregi til að
lýsa yfir fullu trausti til hans. — Björnson hamast
um þessar mundir með ræðuhöldum; bæði hefir hann
talað á fundum í Noregi til að stæla menn í deil-
um við Svía og sömuleiðis hefir hann verið á ferð
í Danmörk til að tala máli þjóðafriðarins.
Eldsbruni varð mikill í Kristjanssand fyrir
skömmu; skaðinn metinn 7 milj.
Danski kirkju- og kenslumáia ráðherrann Goos
veitti nýlega prófessors embættið í fagrfræði við
háskólann Paludan nokkrum, guðfræðingi, lítt merk-
um í fagrfræði, og þar á ofan þvert ofan í til-
lögur háskólaráðsins, sem lagði á móti honum. Hafði
embætti þetta staðið óveitt í 20 ár síðan skáldið
Hauch skildi við, enn hann ætlaðist til að Georg
Brandes yrði eftirmaðr sinn, maðr, sem ber höfuð
og herðar yfir alla aðra á Norðrlöndum í þeirri
grein.
Bismarck yngri (Herbert) hélt brúðkaup sitt ný-
lega í Yín með furstaborinni mey úr Austrríki, og
fór Bismarck faðir hans til Vínar að sitja brúð-
kaupið. Á þeirri ferð var alt í uppnámi þar sem
hann fór um, bæði í Berlín, Dresden og Miinchen,
og í Vín gekk svo mikið á með læti fólksins, að
lögregluliðið varð að skerast í leikinn. Á þessari
íerð var Bismarck svo tannhvass í viðræðum við
ýmsa menn um keisarann og Caprivi, að vant þyk-
ir úr að ráða fyrir stjórnina. Þykir svo kveða að
svæsni Bism., að sumir kalla hann ’Wallenstein ann-
an valdalausan. í Vín vildi Bism. ná viðtali af
Austrrikis keisara enn þess var synjað, að líkindum
eftir undirlagi frá Berlín, því þar hafði Bismarck
farið svo um, að hann leitaði ekki fundar við keis-
arann.
Frakkar héldu hátíð í Lothringen um það leyti
sem keisararnir áttu fundinn með sér í Kíl. Þá
hátíð sóttu margir Tsjekkar frá Bæheimi og Kon-
stantínus stórfursti, föðurbróðir Kússakeisara; var
I.: Þingholtsstræti 18.
þar mjög mælt til bræðralags með Frökkum og
Kússum, eða réttara Slöfum yfirhöfuð.
Ferdínand krónpr. í Kúmeníu er nú jtrúlofaðr
Maríu dóttur hertogans af Edinborg, enn áðr hafði
hann ætlað að eiga rúmenska tignarstúlku, Helenu
Vacaresca, og var honum þess varnað af stórmenn-
inu í Kúmeníu. Helena á sæg af ástarbréfum frá
prinsinum og hefnir hún sín á Maríu með því að
senda henni 3. og 4. hvern dag eitt af bréfum
þessum, og er sagt að henni sé mikil raun í því-
Kosningar stóðu yfir á Englandi, og var ósýnt
hvorir hærri hiut mundu bera, Torymenn eða heima-
stjórnarmenn. Gladstone er hinn sami sem fyrrum,
og er sífelt að ferðast og halda fundaræður.
HíiYachol, óbótamaðrinn franski, var dæmdr [til lífláts og háls-
höggvinn i Montbrison. Hann hafði auk eprenginganna-1 e'kki
færri enn 5 morð á samviskunni.
Jakoh kviðristara hyggst lögreglan í London enn þá einu
sinni hafa fundið. Maðr hefir verið handtekinn, sem er upp*
vís að því að hafa drepið á eitri eigi allfáa kvenmenn, og heit"
ir doktor Neill. Ætla lögreglumenn að alt sé sami óvættrinn i
mannsliki og hafi að eins á síðkastinu breytt um aðferðina.
Eldgos í Vesúfi og Etnu með jarðskjálftum og
hraunflóði.
Kólera gengr í Rússlandi og við Kaspíhaf.
Slys hafa orðið, með miklu manntjóni, í Penn-
sylvaníu af skýjafalli, í borginni Títusville, fórst hátt
á 2. hundr. manns og í námum í Bæheimi á 4.
hundrað.
Nýjungar frá ýmsum löndum,
Le'o pá/i 13. hefir nýlega sent út hirðisbréf til
klerkdómsins á Frakklandi með þeim fyrirmælum,
að þeir skuli í alla staði þýðast þjóðveldið frakk-
neska og hlýðnast því. (8ættið yðr við þjóðveldis-
stjórnina', segir hann, (virðið hana, verið henni
undirgefnir, því hún gengr i stað þess valds, sem
komið er frá guði‘. Stjórnarformið sé mannaverk,
og guð hafi ekkert meiri mætr á kónga valdi og
keisara enn þjóðveldisstjórn, sem best sjáist af því,
hve misjafnlega yfirráðin gangi frá einum valdhaf-
anum til annars, með öðrum orðum, að svo beri að
álita, sem herradæmi (af guðs náð‘ í hinum eldra
skilningi sé alls ekki til, heldr hafi þjóðveldafor-
setar vald sitt (af guðs náð‘ engu síðr enn lögerfða-
herrar. Sýnir þetta, að páfinn er mannúðarmaðr,
þótt kaþólskr sé, og spekingr að viti.
Björnstjerne Björnson hefir verið á ferð í Dan-
mörku og haldið þrumandi ræður um friðarmálið á
á Himinbjargi (á Jótlandi) og í Sórey. Hefir gef-
ið hægri mönnum Dana, frávillingum vinstra flokks