Fjallkonan


Fjallkonan - 20.12.1892, Síða 4

Fjallkonan - 20.12.1892, Síða 4
204 FJALLKONAN. IX, 61 H. TH. A. THOMSENS verslun I Reykjavík. Jólabazarinn er opnaör, Og er fjölskrúðugr af fallegum munum, bæði til skrauts og nauðsynja, með lágu verði. einnig leikföng- um, ilmvötnum og „Toilet“-áhöldum. ATH. Talsvert af eldra glysvarningi selst þar meö hálfvirði. Þar eru krystallsbikarar, hentugir til jólagjafa Ennfremr eru til sölu: Stearinkerti og Spil með ýmsu verði, Jólakerti í pökkum með 30 kertum 50 a. Yínföng, Vindlar og Reyktóbak af mörgum tegundum. Mikið úrval af niðrsoðnum matartegundum, Ávaxtalegi, Syltetöj og Q-emyser. Chocolade, Confect-brjóstsykr, Confect-rúsinur, Fíkjur, Para- og Skógarhnetur. Miklar birgðir af Korn- Nýlendu- Isenkram- Grlas- og Postulins-vöru. Mikið úrval af vefnaðarvöru, þar af frambýðst einkum til jólanna: Skinn-Mufter, Loðskinnskragar, Regnhlífar, Sjöl, Ullarklútar, Svuntuefni, Slipsi, Jerseylíf, Kragar og Flibhar, Manchetter, Humhug, Fataefni, Tiihúin Föt, og m. m. fl. Hvínavatnssýslu (austanverðri) 1. des. Heybirgðir vóru í haust með minna móti; taða víðast ekki meiri enn þriðjungr eða helmingr á við töðuna í fyrra, svo alment hefir verið lógað miklu af kúm. Úthey urðu viðast í meðallagi, að minsta kosti upp til dala. — Haustið hefir verið allgott, þar til nú um jólaföstukomu, að brugðið er til frosta og hríða. Frostið hefir enn orðið mest 14° R. — Verslun er óhagstæð hér sem ann- arsstaðar og skuldir miklar. Pen- ingaleysi svo mikið, að stórbændr eiga fult í fangi með að greiða skyldur sínar og skatta í pening- um. — Kjötverð var hér 10- 14 a., gærur 25 au., mör 18 au., haust- ull 35 au. Útlend vara öll i háu verði: rúgr 21 kr., rísgrjón 28— 26, bankabygg 30, baunir 32, kaffi 1.10, kandís 38, melis 36 o. s. frv. „Stúfr‘'U heitir hið síðasta leir- hnoð, sem Símon Dalas.... hefir barið saman og prenta látið í ísa- foldarprentsmiðju. Sama skáld hefir einnig verið að yrkja í merkisblað- ið ísafold sjálfa. — Ekki vantar það, smellið er nafnið enn sem fyr á syrpum hans, enn um það má segja eins og meistari Jón segir: „Eg veit, að einn asni verðr samt aldrei hestr, þótt á hann sé lagðr gull- söðull, svo verðr og einn dári aldrei vís, hvernig sem hann málar sig utan“. Rit Sím. verða aldrei annað enn bull, þó hann klessi á þau nöfnum fornskálda. — í meir enn 20 ár hafa nú útburðir Símonar vælt í hverju holti á landinu þvert og eiidilangt, öllnm betri mönnum til gremju og skapraunar. í „Stúf“ þessum er eigi að eins nýr leirburðr, heldr og gamlar dreggjar, enn almenningi þykir bragðið víst gott, hvað sem því líðr. Aðalkvæðið i Stúf, sem nýtt er, er um Kristján skáld Jónsson og Jóhönnu unnustu hans, ákaflega langr siefu-bláþráðr. Þar sem hann lætr Jóhönnu tala við Kristján, byrj- ar hún á klámi til smekkbætis, og geta flestir séð, hve náttúrlegt er að ástfangin stúlka tali þannig. — Ann- ars dettr mér ekki í hug að fara að elta Símon í riti þessu. Málið er hörraulegt, ekki snefill af óbjagaðri islenzku, orðin öll teygð og toguð, bara til þess að fá at- kvæðafjöldann í vísuorðin; orð- skrípi og hortittir eins og maðka- veita í hundsskrokk, og áherzlan eins og hjá vitlausum manni, og er nú flest talið, sem einn kveðskap má óprýða. — Jónas Hallgrímsson sagði, að nær hefði sumum rímna- skáldum verið að prjóna duggara- sokk, enn fimbulfamba rímur sínar, enn þessi Stúfr er helzt í líkingu við sokkleist úr geitarhári, sem áttræð, steinblind og krókloppin kararkerling hefir potað sér til dægrastyttingar, og verðr ekki einu sinni notaðr til að stinga í hunda- fífu. Aftast í skottiriu á Stúf er skrá yfir allan leirburð Simonar með til- færðu söluverði, og er flest af því uppselt. Kostar þá öll syrpan 8,05 kr. Ef gert er, að af hverju riti hafi verið lögð upp 1000 eintök, þá er Símon búinn að selja fyrir rúm átta þúsund krónur, og er það lag- leg peningahrúga, sem þjóðin hefir lagt í lófa karls fyrir aðra eins endileysu, og hefði þeim peningum verið betr varið til að kaupa Fjall- konuna. Á einni viku kveðst Símon hafa selt rit sín fyrir 60 kr. í Reyð- arfirði. — Ekki eru Reyðfirðingar gleðivandir. — Hvenær skyldi al- menningr ljúka svo upp augunum, að hann hætti að láta dragast á tálar af slíkum hégóma? Þyrnir. Rahbeks Allé bjórinn hjá Brciðijörð. Nú gengr mikið á, að aftappa hinn kröftuga þjóðdrykk Rahbeks Allé bjórinn fyrir jólin. Hið skásta jólaborð hér í bænum, er hjá Breiðfjörð. Hið stærsta og margbreyttasta úrval af karlmanna hálsbúnaði og öUu þar til heyrandi er hjá BreiðQörð. Komið og sjáið. Lampaglös (vanaleg) á 15 a., fir kristalgleri 30 a. Munntóhak 2 kr. pd. Sfikkulaði 60 a. Borðhnífar 10 kr. dús. Gafflar 22 kr. dús. Skeiðar 22 kr. dfis. í verzlun Magnúsar Einarssonar á Vestdalseyri. Leiðarvísir til lífsáhyrgðar fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá Dr. J. Jónassen, sem einnig gefr allar nauðsynlegar upplýsing- ar um lífsábyrgð. Ir rerslun Magnúsar Einarssonar fir- smiðs á Vestdalseyri við Seyðisfjörð fást ágæt vasaúr og margskonar vand- aðar vörur með mjög góðu yerði. Útgefandi: Yaldimar Ásmundarson. Félagsprentsmiðjan.

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.