Fjallkonan


Fjallkonan - 09.05.1893, Page 3

Fjallkonan - 09.05.1893, Page 3
9. maí 1893. FJALLKONAN. 75 neyðzt til að brenna smíðakolarusli, sem einnig er á fórum. Horfir hér til vandræða með eldsneyti, ef ekki kemr þerrir innan skamms. Yrði tilfinnanlegt ef ræki að þvi, að menn neyddust til að brenna kofum sínum, þvi ekki er fýsilegt, að matast á hráum fiski og óelduðum kornómat þeim sem hér er. Enn þetta eldiviðarleysi er ný verzlunarólagsþruma, sem bendir öllum (sem geta og hafa opin augun) til að trúa betr á mátt sinn og meg- in framvegis heldr enn kaupmanninn. — 16. þ. m. kom „Jason“ frá Höfn með vörur til Gards-verzlunar (enn ekkert til Godt- haabs- eða Julianehaabs-verzlana, ef þær verzlanir skyldi þurfa að nefna héðan af). Þá var bankabygg sett niðr í 26 kr. tunn. og rúgrinn sem kom (og svipaðr var ninum sem undir var), niðr i 16 kr., enn kaffi (sem er lök tegund) var þá jafnframt þokað upp að nýju, n. 1. í 1 kr. 25 a. pd. Með sama skipi komu 12—16 skpd. af kolum (ekki er ráðizt í lítið), og kosta ekki nema einar 6 kr. skpd. Hvort „Jason" fer nú til hákarla, eins og ráð var fyrir gert i fyrstu, eða hann fer nú að flytja hið útlenda góðgæti héðan aftr i verzlunarselið Vík, vita menn ekki, fyrr enn Bryde kemr. Varla mun hann hafa farið eftir kolum! — Sama dag (16. þ. m.) fóru flestir Landeyingar héðan til meginlandsins, sem róið höfðu héðan í vetr. Enn Eyfellingar bíða hér enn byrjar, og fara við fyrsta tækifæri. Mælt er að sumir útróðramenn muni ekki koma hér oftar upp á líka verzl- un og nú er, þrátt fyrir það, þó þeir hafi nú fengið hér hlut með bezta móti, eftir því sem gerzt hefir i mörg næstliðin ár. — Leitt og skaðlegt er samgönguleysið hér nú sem oftar. Póst- ar munu nú vera orðnir 3 til viðlegu í Landeyjum. Einnig bíðr þar einn maðr er fór héðan snemma á vertið til lækninga. Sum blöðin sjást hér ekki fyrr enn eftir marga mánuði, og bréf kom- ast héðan ekki fyrr enn i ótíma“. Strandíregnin um gufubátinn „Odd“, sem stóð í síð. blaði reyndist ósönn. Bátinn festi að vísu á skeri, enn hann losaðist þaðan aftr litt skemdr. Prestaköll veitt. Arnarbæli séra Ólafi Ólafssyni í G-uttormshaga og Háls í Fnjóskadal kand. Einari Pálssyni. Prestvígðr 30. apr. kand. Kjartan Kjartansson til Staðar í Grunnavík. Yöruverð erlendis. Haustull, sem kom með Láru síðast, seldist á 43^/j e., mislit Saltfiskr, sem kom með Láru, seldist á 57a/2—60 kr., enn vegna hins mikla afla í Noregi er búizt við, að verðið lækki. Á Englandi var ýsa í 14 pd. sterl. smálestin, smá- fiskr 168/4 pd. sterl., langa 18 og stór fiskr 15— lö1/^. Gufubrætt lysi 33 kr., enn mun lækka. Tölg 25 au. Sundmagar 35—40. Æðardúnn 7%—9 kr. Rúgr 5,15—5,40 (100 pd.), rúgmjöl 5,60—5,75, bankabygg 7,50—6,00, rísgrjón 8x/2—71/*, kaffi 77 —72 au., kandís H1^, hvítsykr 18^/j, púðrsykr 141/,-151/,. Vöxtr og gæði sitt hvað. Töluvert eru menn sólgnir í að lesa blöðin, þegar þau koma með póstinum; flestir sjá eitthvað af blöðunum, sumir öll. Auð- vitað geta kaupendr lítið heimtað af blaðamönnnnum sökum van- skila þeirra, sem alt of margir brennimerkja sig með, enn þó finst mér, að nefna megi við ritstjórana, að vanda efni blaðanna betr enn gert er. Ég skal nefna rekstrinn, sem stundum er í Reykjavíkr-blöðunum út af fiskveiðamálefnum þeirra er við Faxa- flóa búa. Hvað varðar t. d. Þingeyinga um þau mál? Auðvitað má minnast á þau, enn þegar blöðin eru nærri fylt af þessháttar frumvörpum, sem lengst hafa komizt á pappírinn, lygasögum um brot á fiskisamþyktum og endrköllunum slíkra frétta o. s. frv., þá finst mér keyra fram úr hófi. Vel er það að vísu gert, að taka málstað aumingja, sem lögin banna að ná sér í björgina, enn það ómaka þau sig Bjaldan til, sem mest rausa um fiskveiða- málið, heldr hin, sem gera það minst. — Enn — það er við- víkjandi stærðinni á blöðunum sem ég skrifa þetta. Sumír gangasL J'yrir henni, enn því betr eigi allir — ekki nærri því. Það^séztibezt á því, að þau blöðin eru eigi mest keypt sem stærst^eru, þó ódýr sé, heldr hin, sem lægri eru í loítinu, enn mergjaðri. Stærðin ein er litils nýt, ef hún ber kjamann ofr- liði.gV- Það má skrifa um samgöngur t. d. betri grein og skil- merkilegri íji 1, dálk en 30, ef laglega er áhaldið. Það sem mér þykir_ leiðinlegast við stóru blöðin er, hvað gestrisin þau eru við hina langorðu hugvekjurithöfunda, sem teygja úr hvaða efni sem^þeir skrifa um, svo að yfirtekr minst 6 dálka. Það sem mér, og mörgum fieirum, þykir aðgengilegast í blöðunum, eru smáfréttir utan úr heimi, nýjar uppfundningar, nýjar skoð- anir í trú og visindum, nýjar byltingar. Þannig les ég með miklu meiri ánægju alt þess háttar, þó stutt sé og i ágripi, heldr enn langar og ákaflega uppskrúfaðar fréttir af ráðherra- skiftum eða sendiherra suðr á Ítalíu eða gripdeildum Eússa austr i Asíu, eða um yfirreið „herra biskupsins“ vestr á Snæ- fjallaströnd. Þá eru bréfin sum úr sveitunum — herra minn! Það er þó ekki upplifgandi að lesa slíkt. Slik bréf gætu verið skemtileg og fróðleg, ef þau værn vel stíluð, sem þau eru stundum, enn vanalega eru þau eins og nokkurs konar svefnþorn, og er vana- lega því meira af þess háttar „pródúkti", sem blöðin eru stærri. Nei, stærðin ein er eigi einhlit, enda gangast fáir fyrir henni. í sambandi við þetta skal ég geta þess, að það hefir ekkert gildi, þótt leirhnoðari stæri sig af þvi að vera búinn að gefa út undir 20 rit, þar sem enginn, ekki einu sinni sjálfr hann, getr sýnt, að þau séu nokkru nýt. Það sem því eykr eftirsókn blaða er, að þau sé fjölbreytt og stuttorð, eins og „Fjallkonan“ er oftast nær. Þyrnir. Bækr, sendar Fjallkonunni: Finnr Jcmsson dr., Den old- norske og oldislandske Literaturs Historie. Udgiven pá Carls- bergfondets Bekostning, I, 1. Köbenhavn 1893 8. (Gad). y,, Rosenthal J. dr., Öl og Brœndevin i deres indbyrdes Forhold. Khavn_1893. 8. (Salmonsen). Jón Olafsson, Ljóðmœli. Winnipeg 1893. Sam. Smiles, Hjálpaðu þér sjálfr. Þýtt hefir og samið Ólafr Ólafsson prestr í Quttormshaga. Bvík 1893. 8. (Sig. Kristjánsson). Jón Þorkélsson dr., Supplement til islandske Ordböger, 6—7 h. 8 Páll Þorkelsson, Samtalsbók íslenzk-frönsk. Quide islandais- frangais. Khöfn 1893. 8. (Mansa). Öllum þessum bókum mun verða lýst í blaðinu innan skamms. gj^T Yegna hinna miklu auglýsinga, sem eru í þessu blaði, hefir ekki yerið rúm fyrir ritgerðir og fræðandi og skemtandi greinir, sem koma því í næsta blaði. Misprentað í síð. bl. Fjallk. í greininni um sauðasölu Dana: tólgarpundið 60 au., á að vera 15 au. í 3 Aðalstræti 3 verðr eins og áðr frá 9. maí næstkomandi keypt: Tuskur úr ull helzt prjónaðar. Tuskur úr hvítu lérefti. Tog og ullarhnat. Hrosshar. Gamall kaðali. Gamall segldúkr. Kopar. Eir. Látún. Zink. Blý. Gamalt járn og hvalskíði. Verzlunin í Austrstræti nr. 18 selur: kaffi, sykr, tóbak, brenuivín og margar aðrar nauðsynjavörur fyrir rnjög lágt verð.

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.