Fjallkonan


Fjallkonan - 27.09.1893, Síða 2

Fjallkonan - 27.09.1893, Síða 2
154 FJALLKONAN. X 39 sumir þeirra hafa naumast kunnað að fara með plóg og herfi, enda munu ekki öll búfræðingaefni æfa sig mjög í þessháttar störfum, ef það er satt, sem sagt hefir verið, að á einum búnaðarskólanum sóu þau áhöld ekki til (!) Hvað það snertir, að réttara sé að hafa einn eða tvo búnaðarskóla heldr enn fjóra, þá hefir þetta blað áðr verið á þeirri skoðun, að tveir skólar mundu nægja. Það hefir verið tekið fram, sem ástæða fyr- ir fækkun búnaðarskólanna, að Norðmenn hefðu í fyrstu haft fleiri skóla enn síðan fækkað þeim. Enn nú er þó svo komið, að þeir vilja fjölga bún- aðarskólum sínum og hafa einn i hverju amti. Er ætlast til að rikissjóðr leggi fram s/4 af kostnaðin- um, enn hvert amt Ástæður þær, sem nefndin hefir tekið fram um það, að fækka ekki búnaðarskólunum, hafa við nokk- ur rök að styðjast, þegar tekið er tillit til álits sýslunefnda og amtsráða. Enn þá mun ekki van- þörf á, að gera á þeim ýmsar umbætr, og miða til- lögur nefndarinnar einnig í þá átt. Þetta mál mun verða íhugað betr í þessu blaði áðr langt líðr. Oft hefir verið ritað um það i blöðum, að slátr- unaraðferð sú, sem tíðkast hér álandi, væri hroða- leg og að líkindum kvalafnll. Á síðustu árum hefir verið reynt á nokkurum stöðum að rota slátr- fé og hefir verið notuð til þess helgrima. Þetta hefir tekizt misjafnlega, enn eflaust er það að kenna óvana, eða því að gaddrinn, sem slegið er á, hefir verið á röngum stað. Nú mun mega bæta úr þessum galla á helgrímunni, og er Tr. G. nú að búa til nýja helgrímu, sem mun verða reynd hér. Menn ættu að taka upp þessa slátrunar- aðferð, sem er langtum viðkunnanlegri enn hin venjulega. Einstakir menn hafa tekið upp á því að skjóta slátrfé sitt með smábyss- um, enn sú aðferð er miklu dýrari og getr líka mistekizt. Þessi venja, að drepa fé með hálsskurði, hefir leitt það af sér, að hór á landi er það miklu tiðara enn í öðrum löndum, að sjálfsmorðingjar skeri sig á háls. Umgengni við sjúklinga, (Úr Sundhedsbladet). Menn sannfærast naumast um það öðruvísi enn af reynslunni, hvert tjón og ógæfa af því getr leitt að ógætnir menn eða hávaðasamir raski ró sjúkl- inganna. — Kona lá á sæng og komu einhverjir af skyldmennum hennar að heimsækja hana. Rótt á eftir kom húsbóndinn heim og var drukkinn. Honum og að- komufólkinu lenti þá saman í illdeilu og fór það fram í herberginu þar sem konan lá. Litlu síðar fékk konan hættulegan „feber", sem læknarnir kendu áhrifunum af þessari deilu. Það þarf ekki einungis að gjalda varhuga við hvað talað er í áheyrn sjúklinga, heldr verðr einn- ig að varast að tala lengi við þá í einu. Aðkom- andi menn ættu jafnan að vera stutta stund hjá sjúkling. Hin nafnkunna hjúkrunarkona Miss Nightingale hefir ritað bók um hjúkrun sjúklinga, og eru í henni mörg ágæt heilræði. Skulum vér hór taka fram nokkur af þeim. Hverskonar hávaði eða ókyrð hefir ill áhrif á sjúkl- ing, einkum ef hávaðinn er að nauðsynjalausu. Aldrei ætti að vekja sjúkling af svefni. Ef hann er vakinn nýsofnaðr, má eiga það víst, að hann á óhægt með að sofna aftr, og sjúklingr sem vaknar eftir nokkurra klukkutíma svefn, á hægra með að sofna aftr enn hinn, sem vaknar eftir nokkurra mínútna blund. Heilbrigðr maðr, sem sefr á daginn, sefr sjaídan vel á nóttunni; þessu er öfugt varið með sjúkliaga; því meira sem þeir eru látnir sofa, því svefnugri verða þeir. Hljóðskraf eða hvísl í herbergi sjúklings hefir ill áhrif, því sjúklingrinn getr ekki að sór gert að hlusta. Ekki á heldr að breyta máiróm og ekki má læðast um herbergi sjúklinga. Þatta getr alt haft ill áhrif á taugar sjúklingsins. Ekki má heldr skella hurðum, eða ganga meira um herbergi enn þörf er á. Þá verðr og að gæta þess, að ekki marri í hurðunum eða braki í gluggarúðum o. s. frv. Sá sem talar við sjúkling, á að setjast niðrbeint frammi fyrir honum, svo hann þurfi ekki að hreyfa sig eða snúa sór við til að geta horft á þann sem við hann talar. Ef sjúklingr er á batavegi og farinn að ganga um herbergi sitt, skal varast að trufla göngu hans þannig, að hann standi kyr meðan við hann er talað, því slik kyrstaða hefir eigi góð áhrif. Alt sem fram fer i herbergi sjúklings eftir þann tíma, er hann á að fara að sofa að róttu lagi, spillir værð hans. Menn skulu ekki halla sér upp við rúm sjúklings, eða setjast á það; það líkar sjúklingi vanalega ekkj. í viðræðu við sjúkling á jafnan að tala og koma fram með staðfestu og einlægni, vera ekki í vafa um nokkurn hlut, hve mikla smámuni sem um er að ræða. Því að öðrum kosti fara * sj úklingarnir að hugsa um umtalsefnið, og getr sú umhugsun bakað þeim áreynslu. Aldrei ætti að láta sjúkling biða lengi eftir neinu sem sótt er handa honum, eða vera lengi í burtu frá honum. Þeir sem gæta sjúklinga, eiga að vera fljótir til svara og ákveðnir, enn þó ekki flýta sór nm of. Það er nokkur vandi, að fara þar meðal- veginn. Það getr stundum verið gott, að lesa blöð og bækr fyrir sjúklinga, jþó held ég það sé venjuiega ekki ráðlegt, nema sjúklingr sé sjálfr svo fær að hann geti lesið, því að öðrum kosti hefir hann ekki gott af að aðrir lesi fyrir hann. Þá á að lesa með stillingu, og ekki of fljótt. Þeir sem oft hafa hjúkrað sjúklingum geta bezt dæmt um það, hve leiðinlegt það er fyrir sjúkling- inn að horfa stöðugt á sömu veggina og hafa alt af hið sama í kringum sig. Daprar hugsjónir eru sífelt fyrir augum hins sjúka, og hann á erfitt með að verða laus við þær, enn til þess eiga þeir að hjálpa honum, sem um- gangast hann. Það er ekki nóg, að hugsa að eins um mat og

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.