Fjallkonan


Fjallkonan - 16.03.1894, Page 4

Fjallkonan - 16.03.1894, Page 4
44 JTJALLKONAN. IX ll ekki þangað; 1861 fekk kann Skagafjarðarsýslu, og var þar sýslumaðr og bjó á Reynistað þar tii hann lét af embætti. Þá flutti hann til Reykjavíkr. Kona Eggerts sýslumanns Briems (f 14. sept. ’90) var Ingibjörg, dóttir Eiríks sýslumanns Sverrissonar og systir Sigurðar sýsluraanns í Bæ; þau áttu nítján börn og lifa ellefu þeirra: Eiríkr prestaskólakennari, Gunnl. verzlunarstj., Ólafr alþingismaðr á Álfgeirsvöll- um, Halldór kennari á Möðruvöllum, Páll sýslumaðr í Árbæ, Elín skólaforstöðukona á Ytriey, Sigurðr kand. polit., nú í Stykkishólmi, Sigríðr í Reykjavík, Eggert málaflutningsmaðr, Yilhjálmr prestr að Goðdölum, Jóhanna kona séra Einars á Hálsi í Fnjóskadal. Af hinum 8 börnunum, sem dáin eru, komust 2 dætr til fullorðins ára: Yalgerðr, og Kristín fyrri kona Y. Claes- sens á Sauðárkrók. Þörunn Jónsdöttir, húsfrú Þórarins prófasts Böð- varssonar í Görðum lézt í þ. m. yflr 70 ára. Hún var í röð fremstu merkiskvenna. Frú Inqileif Melsteð, ekkja Páls Melsteðs amtmanns, enn dóttir séra Jóns Bachmanns í Klaustrhólum, lézt 13. þ. m. hér íbænum, 83 ára. Sonr hennar og Páls amtmanns Melsteðs er Hallgrímr Melsteð landsbóka- vörðr. Þóra Eyjólfsdóttir, móðir prófasts Janusar Jóns- sons.r, lézt á Holti i Önundarfirði 6. febr., 85 ára. Sveinn Magnússon , Víkingr1, veitingamaðr á Húsa- vík, lézt 8. febr. úr „iufluenza“. Dáinn í Khöfn 1. febr. Jón Sveinsson, málfræðingr, hálfbróðir Hallgríms biskups, 63 ára. Norðrmúlasýslu (Úthéraði) 13. febr. „Úr influenza er dáinn Pétr gullsmiðr Guðmundsson bónda að Mýr- um í Skriðdal, einstakt valmenni og búhöldr góðr. Einum af þeim bændum, sem nýdánir eru úr sótt þessari, hafði verið bygt út af landsdrotni, að sögn eftir fyrirhyggjusömum tillögum hreppsnefndar, svo að hann yrði ekki sveitlægr, þótt núverandi fardaga- ár væri einungis hið 7. dvalarár hans í hreppnum. — Að vísu er eigi lýðum ljóst í hverjum heiðri hlutað- eigandi höfðingjar eru hjá alheimsstjórnaranum, enn mikil líkindi til, að hann hafi litið líknar augum á hiun látna búanda, svo að hann feldi eigi skugga á fyrirmyndar búskap þeirra. — Yel mælast fyrir af- skifti þings af byggingu kirkjujarða og annara eigna þeirra, enda þótt sérhvað það sem þeim til heyrir þyki færa ómetanlega blessun í bú, sem ljósast sést á því, að ærkúgildi þeirra eru sumstaðar bygð fyrir 4 lambafóðr, þar sem lambafóðr eru seld á 5 krón- ur (!) — í vetr hefir tíðarfar verið mjög umhleypinga- samt, enn nægir hagar fyrir fullorðið fé fram í jan- úarlok, nema 3 daga fyrir jólin gerði haglaust um alla Austfjörðu. Um mánaðamót jan. og febr. gerði haglaust í Fjörðum og á Úthéraði, enn í Upphéraði eru nokkrir hagar". Norir-Þingeyjarsýslu 24. jan. „Frá því um vetrarbyrjun til jóla var tíðarfarið ákaflega óstilt með hríðum og frosti miklu, mest 19 stig á R., og annað veifið forarbleytuhríðir, t. a. m. vikuna fyrir jólin, var þá orðið haglaust yfir alt, svo snjótitlingr fékk ekki í nef sitt, bæði vegna snjódýptar og hörku. Minstr var snjór á Melrakkasléttu. Hafði þá ótið varað hér í 18 vikur. — Hafíshioði kom að Sléttu og inn á Axarfjarðarflóa um jóla- föstukomu, enn hvarflaði frá aftr. — Um sólhvörfin brá til stillinga, er héldust í mánuð, og komu á því tímabili þýður nokkrar, svo allgóð jörð kom í sveitum, og lá við að lyftist brfln á bóndum, þar sem þeim áðr var farinn að standa stuggr af harðindunun). — Nfl með þorranum er Kári gamli aftr farinn að kveða úr norðrinu og fylgir fónn og frost. — í dag er loft- vogin fallin óvenjulega lágt og að líkindum því von á óveðri, enda er loftfltlit ískyggilegt. —Verzlunarskipið „AIfred“ á Húsa- vik strandaði í aftaka veðri og sjóróti, rak á land og brotnaði talsvert, svo vörur skemdust að mun, enn mönnum varð bjargað. Alt var síðan selt við uppboð og fór ólikt og á flestum ströndum hér nyðra áðr, að flest fór í geypiverð, bæði skemt og óskemt. Veikindi fluttust af Húsavík um það leyti hingað norðr í sveit- irnar. Sögðu læknar það „influenza“, enn hún mun þá í meira lagi illkynjuð, því margir liggja lengi og eru illa haldnir, enn mannspell heflr veiki þessi enn ekki gert“. Skagafjarðarsýslu, 26. febr.: „Út allan Þorrann og það sem af er Góunni hefir tíð verið stirð og óstöðug og enda hart á jörð fyrir útigangshross. — Fljótamenn og Slétthlíðingar fóru einn róður til hákarlaveiða á Þorra og var hæsti hlutr 14 kútar lifrar“. „Gamla morðið“ á Bessastöðum(I) Leiðrétting við ísafold. Með því að frétUritari „Ísafoldaril lýsir fund á mannabeinum. þeim er fundust á síðastliðnu hausti á Bessastöðum í Sæmundarhlíð, á þann hátt, að ókunnug- um getr orðið það trúlegt, að maðr sá hafi verið myrtr á síðastliðinni öld, ber nauðsyn til að lýsa slíku nákvæmar enn þarer gert. Ég sem fann bein þessi, var að grafa fyrir undirstöðu á fjárhúsvegg í hól sunnan við gamalt fjárhús, sem lengi hef- ir staðið þar, svo sem 2 faðma frá fjárhúsinu. Ég tók glöggt eftir því, að hvitt sandlag, sem hér er víða i þurri jörð, var alstaðar jafnt, þar sem ég gróf fyrir undirstöðunni, og eins þar sem beinin vóru undir; hefir því þessi maðr óefað verið jarðaðr þarna áðr enn hvíta sandlagið myndaðist. Þessi bein vóru orðin mjög fúin, engin kjúka fanst, og fátt af rifj- um; höfuðkúpan dottin í marga parta. Yfir höfuð bendir alt til þess, að beiu þessi séu orðin mörg hundruð ára (líkl. frá heiðni), enda hafa engir hér heyrt þess getið, þótt gamlir séu, að sendimaðr til Húnavatnssýslu hafi horfið á síðastliðnum mannsöldr- um; ekki getr Espólín þess heldr í Árbókum sínum, enn litlu eftir 1830 druknaði Guðmundr nokkur E>or- steinsson á svokölluðum Hellulandsvöðum í Héraðs- vötnum, og fanst ekki síðan, og hafði peninga með- ferðis. Tilgátur þær er „ísafoldu gerir viðvikjandi mannsbeinum þessum eru rangar. Framanskrifaðar línur bið ég ritstj. Fjallkonunnar að taka. Bessastöðum, 26. febrúarmán. 1894. ____________Páll Jónsson. Til sjómanna á þilskipum. Munið eftir, heiðruðu sjómenn, áðr enn þið farið út á fiskirí, að kaupa ykkr hinn alþekta vatnsstíg- vélaburð frá Bafni Sigurðssyni. TT'alsvert af tilbúnum skófatnaði af öllum stærðum er til hjá Bafni Sigurðssyni. Útgefandi: Yaldimar Ásmundarson. Félagsprentsmiðj an.

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.