Fjallkonan


Fjallkonan - 08.05.1894, Page 1

Fjallkonan - 08.05.1894, Page 1
Kemr flt & þriðjudögnm. Árg. 8 kr. (erlendis 4 kr.). Auglýsingar mjög ódýrar. Gjalddagi 15. júli. Upp- sðgn skrifleg fyrir l.okt. Afgr.: Þingholtsstr. 18. FJÁLLKONAN. Reykjavík, 8. maí. 1894. XI, 19. Vandaö Hiis til sölu í miðjum bæaum með ágætum kjallara uudir. Söluskilmálar tujög aðgengilegir. ítitstj. vísar á. Frá Danmörku. Danir bafa fengið regluleg fjárlög (eins og frá hefir verið skýrt í þ. bl.) eftir 9 ára bráðabirgðarlög. Á þessum níu árum hafa stöðugt verið skærur milli vinstrimanna og stjórnar. Vinstrimenn hafa haldið því jafnan fram, að þeir bæru ekki fult traust til Estrups-ráðaneytisins og neituðu að veita því fé. Fjárlögin náðu því eigi samþykki og þannig hófst deilan og á sama hátt hefir þvi lyktað ár eftir ár síðan 1885, er Estrup setti fyrst bráðabirgðarlögin. Vinstrimenn hafa haldið því fram, að svona löguð ráðsmenska á fé þjóðarinnar væri stjórnarskrárbrot, og lögspekingarnir, Matzen og hans fylgifiskar, hafa verið á annari skoðun. Vinstrimenn hafa haldið því fram, að samkvæmt anda þingbundins stjórnarfyrirkomulags, ætti sérhver stjórn að víkja úr sessi, þegar þjóðin eða fulltrúar hennar mistu traustið á henni. Annars gæti þingbundið stjórnarfyrirkomulag eigi komið að tilætluðum notum. Eins og kunnugt er, hefir Estrup trássast og litið smám augum til fólksþings- ins (neðri deildar), enn þó vóru hægrimenn farnir að hafa ýmigust á viðgangi vinstrimanna við kosn- ingarnar 1890, enn þá vildi þeim það stórhapp til, að vinstrimenn skiftust í tvo flokka, miðlunarmenn og framsóknarmenn, eða fylgismenn þeirra Bergs og Hörups, og flokkar þessir hafa reynt að eyði- leggja hvorn annan. Við kosningarnar 1892 veitti miðlunarmönnum miklu betr, enda greiddu og hægrimenn atkvæði með þingmannaefhum þeirra, og þannig varð árangrinn af kosningunum sá, að að eins um 30 framsóknarmenn komust á þing, enn yfir 40 miðlunarmenn. Foringi miðlunarmanna er Bojsen. Var hann áðr einn hinna æst- ustu vinstrimanna. Ástæðan til þessarar skyndi- legu breytingar í pólitík miðlunarflokksins virðist vantraust á því, að vinstrimönnum mundi takast að kúga stjórnina, og hinsvegar vóru miðlunar- menn orðnir leiðir á bráðabirgðarlögunum, og vildu því, hvað sem það kostaði, ná sættum. Framsókn- menn aftr á móti sögðu, að ráðaneytið hlyti að fara frá völdum innan nokkurra ára. Um 1890 var féhirzla ríkisins tæmd. Stjórnin hafði iátið byggja víggirðingar utan um Kaupmannahöfn, og fé þurfti hún að fá til þess að manna vígin og til vopna, enn álit Estrups-ráðaneytisins og vinsældir vóru í rénun. „Við hefðum haft yfir 70 atkvæði í fólksþinginu, ef miðlunarmenn hefðu eigi hlaupið í lið með hægrimönnum“, segja framsóknarmenn, „og við hefðum hlotið að sigra að lokum“. — Á þinginu i fyrra vóru hægrimenn og miðlunarflokkr- inn að mestu orðnir ásáttir um friðarskilmálana, enn sættirnar fórust þó fyrir sökum þess, að hægrimenn vildi eigi færa niðr herstyrkinn svo mikið sem miðlunarmenn kröfðust. Á þessu þingi var þegar tekið til óspiltra mála, enn eigi vissu menn glögt hvað fram fór fyr enn í lok marzm., og efuðust flestir um það, að nokkru yrði ágengt. Enn það þótti líklegt, að Bojsen og öðrum miðlunarmönn- um fengi að svíða, er til næstu kosninga kæmi, ef þeir entu eigi loforð sín. í>eir höfðu heitið kjós- endum sínum að vinna að því eftir megni, að regluleg fjárlög kæmust á. Við hinu höfðu menn þó eigi búizt, að miðlunarmennirnir mundu verða eins tilslökunarsamir við stjórnina sem raun hefir orðið á. Menn vissu það, að stjórnin mundi eigi slaka mikið til. Henni var það ljóst, að hinir gömlu andstæðingar sínir, vinstrimennirnir, iétu sér eins mikið hughaldið um það, að berast bana- spjótum á innbyrðis sem um hitt að rísa á móti ráðaneytinu. Stjórnin sá ljóslega hvað verða vildi, hún þóttist þekkja þá miðlunarmennina svo vel, að þótt þeir vildu eigi slaka til í fyrra, þá mundu þeir þó sjá sitt óvænna nú, er kosningarnar nálg- uðust. Framsóknarflokkrinn vænti þó, að miðlun- menn mundu vera tregir til að lýsa velþóknun sinni yfir gerðum Estrups, víggirðingunum, og öðrum bráðabirgðarlögum. Vonir þeirra rættust að nokkru ieyti. Beyndar fór svo, að miðlunarmenn sættust við hægrimenn heilum sáttum, og þegar til kastanna kom, þótti nokkrum hluta þeirra friðr- inn svo dýru verði keyptr, að 15 neituðu að greiða atkvæði með friðarsamningnum. Einn af þessum mönnum var forseti fólksþingsins, Högsbro gamli. Nú hafa þessir 15 menn stofnað sérstakan flokk, enn eigi er mönnum kunnugt um áform þeirra. — Það munu flestir á því, að hægrimenn hafi unnið sigr. Þeir hafa í raun og veru fengið játningu fólksþingsins um það, að víggirðingarnar væru lög- lega bygðar, og yfir höfuð að tala, að fjármálum landsins hafi verið stýrt svo sem vera ber í þessi níu ár. Miðlunarmenn fengu smáivílnanir, enn þýð- ingarlitlar vóru þær flestar. Enga tryggingu hafa þeir fyrir fyrir því, að stjórnin eftirleiðis geti eigi sett bráðabirgðarlög þvert á móti vilja þjóðarinnar. Aftr á móti hafa miðlunarmenn fengið hernaðar- útgjöldin lækkuð að nokkru. Það er mælt, að Estrup hafi dregizt á það, að leggja ef til vill niðr völdin einhvern tíma innan skamms, ef miðlunar- armenn viidu ganga að þeim kostum sem hann setti. Eigi er ólíklegt að alt ráðaneytið fari með honum fi’á. Soavenius, sem áðr var kenslumála- ráðgjafi, sagði á almennum stúdentafundi, sem hald- inn var fyrir skömmu, að Estrup hefði tekizt að framkvæma það þrent, sem hann hefði barizt fyrir í þau 19 ár, sem hann hefir verið ráðgjafaforingi. Þessi þrjú atriði vóru: 1. játning frá fólksþinginu um, að konungr mætti sjálfr ákveða hvaða ráðgjafa hann hefði og hvenær þeir færu frá völdum, 2. jafn- rétti landsþings og fólksþings og 3. víggirðingarnar

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.