Fjallkonan - 03.07.1894, Blaðsíða 1
,Kemr út & þriíjtidögnm.
Árg. 3 kr. (erlendis 4 kr.).
Anglýsingar mjög ódýrar.
GJalddagi 15, júli. Upp
sðgn skriileg fýrir 1, okt,
Afgr.: Þingholtsstr. 18
FJALLKONAN.
Reykjavík, 3. júlí.
1894.
XI, 27.
Fjallkonan ókeypis.
Nýir kaupendr „Fjallkonminar'1 hér í nærsveitunum
(Reykjavík, Q-ullbringu sýslu og Kjósar og Borgar -
fjarðarsýslu), sem hér eftir gerast kaupendr að
nœsta árgangi, 1895, geta fengið allan þennan
árgang ókeypis og kostnaðarlaust sendan.
Q-aman væri að vita, hvaða blað fæst með ódýrari
kostum!
Fjarsveitamenn geta fengið allan árganginn með
sömu skilyrðum fyrir að eins
eina krónu.
Auk þess geta þeir nýir kaupendr, sem vilja,
fengið fylgirit þau sem fylgdu Fjallkonunni 1892
og 1898, svo sem „Gefjuni" og ýms rit önnur,
sem send h&fa verið út með Fjallkonunni, meðan
þau hrökkva.
Landneminn er nú hættr að koma út. Nokkur
eintök fást enn af honum, enn einstök tölublöð
vantar í.
Rafmagnsljós og hitaleiðsla í Reykjavík.
Oft hefir verið minzt á það í þessu blaði, hve
afarmikið afl lægi fólgið og ónotað í lækjunum og
ánum hér á iandi, og að sá tími mundi koma, að
það yrði notað til almennra þarfa.
Síðast var drepið á þetta í 7. tbl. Fjállk. í vetr
i grein um „Rafmagn á íslandi", þar sem einnig
var bent á dæmi um það, hvíiikar ódæma fram-
farir notkun þessa náttúrukrafts hefir í för með
sér.
Það má með sanni segja, að flest sé nú unnið
með rafafli umstaðar í Ameriku. Borgir og hús
eru lýst og hituð með rafmagni. Menn geta legið
í rúmi sínu að morgninum og þurfa ekki að hafa
meira fyrir að hita upp harbergi sín er.n að drepa
fingri á hnapp í veggnum, og er hægt að tempra
svo hitann, að ekki muni svo miklu sem einu stigi
allan daginn. A sama hátt má fá matinn eldaðan
á svipstundu, þannig að hann getr soðið á mat-
borðinu sjálfu.
Af nýjungum þessum er það einkum rafmagns-
lýsingin, sem farin er að tíðkast víða í Evrópu,
og eru þó víðast þau vandkvæði á, að kostnaðrinn
er zniklu meiri fyrir það, að nota verðr gufuafl
til að knýja rafmagnsvélina (dynamo-véiina),
sem framleiðir rafmagnsstrauminn. — Slíkar gufu-
vélar eru dýrar í sjálfu sér, og þar á ofan bætist
kolaeyðslan.
Kostnaðrinn til að hreyfa dynamo-vélarnar verðr
auðvitað margfalt minni ef vatnsafl er notað til
þess, og eru nú bæði Svíar og Norðmenn farnir
að gera það að dæmi Ameríkumanna og annara
þjóða.
Því virðist kominn tími til, að íslendingar fari
að íhuga, hvort þeir geti ekki fært sér í nyt þann
náttúrukraft, sem þeir munu vera birgari af enn
flestar aðrar þjóðir.
Það vill svo vel til, að hér á landi eru víða
straumharðar ár og fossar, sem hægt er að taka í
þjónustu sína. Hugmyndir þjóðtrúarinnar um
vatnsanda og jötna undir fossum má segja að sé
draumórar fyrir því, að þar eru fólgnir feiknamiklir
náttúrukraftar, og þótt aldrei finnist neinar gull-
kistur undir fossunum, er vonandi að þeir geti
orðið uppspretta mikilla hagsmuna.
Útgef. Fjallk. hefir fyrir skömmu leitað upplýs-
inga um það hjá félagi einu í Bandaríkjunum, sem
býr til rafmagnsvélar og annast um rafmagnsleið-
ingar, hvað það mundi kosta, að leiða rafmagn frá
Elliðaánum til &ð færa Reykjavík Ijós á götur og
í öll íbúðarhús og jafnvel hitun á íbúðarhúsum.
Félag þetta hefir nú gefið upplýsingar um kostn-
aðinn, og ætlar það að bærinn muni þurfa að halda
á því afli sem samsvarar 300 hestöflum, enn kost-
naðrinn til rafmagnsvéla og leiðslufæra til að lýsa
bæinn muni verða um 2500 dollars, eða tæpar
10,000 brónur. Hreyfihjólið og undirbúningrinn
við árnar er ekki reiknaðr þar með, né heldr íagn-
ing eða flatningr á færunum. Er gert ráð' fyrir
1000 dollara viðbót til þess, ef alt er keypt í Ameríku
eða á Engl&ndi. Kostnaðrinn verðr þannig ekki
yfir 14,000 krónur, eftir þessari áætlun. Enn
þess er jafnframt getið, að kostnaðrinn gæti orðið
minni, ef íslendingar smiðuðu sjálfir hreyfihjólið,
legðu leiðiþræðina og settu vélarnar saman o. s. frv.
Það er nú reyndar líklegt, að kostnaðrinn ^æti
orðið nokkuð meiri enn þessi áætlun gerir ráð fyrir,
enn hér er heldr ekki um smávegis hagsmuni að
ræða, einkum ef koma mætti á hitaleiðslu til bæjar-
ins í sambandi við þetta, eins og höf. áætlunarinnar
álítr ekki efamái. Það er nú að eins tímaspursmál,
að hitun með rafmagni komi í staðinn fyrir kola-
hitun i borgum, og að þar með verði sparaðr
allr eldiviðr, enda segir í nýjustu enskum blöðum
áreiðaniegum, að af mörgum tilraunum sé það orðið
víst, að rafmagnshitun sé nú alls ekki dýrari enn
kolahitun, og verði auðvitað miklu ódýrari þegar
fram í sækir.
Þetta m&l verðr síðar rætt rækilegar í þessu
blaði, er fengnar eru nánari upplýsingar um kostn-
aðinn o. fl.
Samvinna blaðanna.
Þjóðviljinn ungi drepr á, að hin frjálslyndu blöð
hér á landi séu ekki svo samdóma um ýms lands-
mál sem þau ættu og þyrftu að vera til þess að
geta komið sem mestu til leiðar og orðið það