Fjallkonan - 13.08.1895, Blaðsíða 4
136
FJALLKONAN.
XII 33
Smælki.
Eftir Jón Ólafsson.
Chicago, í maí 1895.
n.
Skrúðs-vísur Jónasar Hallgrímssonar.
Úr því að Jónas HallgrímBSon er nú í hnga mínum á annað
borð þessa stundina, þá ætla ég að minnast á vísurnar hans um
Skrúðinn. „Hannes Hafstein segir í athugasemdum sínum við
vísur þessar um visuorðin: „mér er sem ég sjái hann Qísla, Og
hann séra Ólaf minn", að þessi staðr sé nú orðinn óskiljanlegr,
en líklega sé átt við vissa menn. Svo er það, og er Gísli =
Gísli Hjálmarsson, er síðar varð héraðslæknir; en „séra Ólafr“
er faðir minn (séra Ólafr Indriðason á Kolfreyjustað). öll er
vísan svona:
„Og hvenær sem ég hugsa
um hrútinn og pækiliun,
er mér sem ég sjái’ hann Gísla
og hann séra Ólaf minn“.
Skrúðrinn er eyfjall út af Fáskrúðsfirði og liggr undir Yatt-
ames, sem er næsti bær fyrir utan Kolfreyjustað. í Skrúð er
fé látið ganga sjálfala og verðr svo vænt og feitt, að firnum
sætir .Þegar brim er rnikið, skvettist sjór hátt í Skrúð og fyllir
dældir í klöppum, svo tjarnir verða þar með sjóvatni. Síðan
þurkar sól upp sjóinn og verðr salt eftir í skálunum. Síðast
áðr alþurt er úr skál, er sjórinn í henni orðinn svo seltumegn
sem sterkasti salt-pækill. Jónas sá í Skrúð pækil þennan og
hrút einn ferlega mikinn, er honum óx mjög í augum. Faðir
minn fór með Jónasi í Skrúðinn, og eftir þvi sem mig minnir
ég heyrði hann segja, ætla ég að Gísli Hjálmarsson væri með í
förinni; mun hann þá, ef mig minnir rétt, liafa verið á Austr-
landi [embættislaus] Sé það misminni mitt (sem vart mun
vera), að Gísli hafi verið í förinni með í Skrúðinn, er þó eðli-
legt. að Skrúðrinn minti Jónas á Gísla (vin sinn frá Höfn), því
að Gísli hefir án efa sagt honum margt frá Skrúðnum. Gisli
var alinn upp á Kolfreyjustað (faðir hans, séra Hjálmar Guð-
mundsson, var þar prestr á undan föðurmínum). Ég man glögt
eftir, að ég las og lærði þessar visur barnungr, og spurði föður
minn, við hvað ætti vísa þessi, en hann hló við og sagði: ,Það
erum við Gísli Hjálmarsson’, og sagði mér þá frá hrútnum og
pæklinum. ____________
m.
Séra Hjálmar Guðmundsson.
Við það að minnast á séra Hjálmar Guðmundsson, kemr
mér til hugar, að geta eins og anuars um hann. Miðaldra menn
muna enn eftir honum; ég sá hann alls einu sinni, er hann kom
að Kolfreyjustað til föður míns, en kornungr hefi ég þá hlotið
að vera, enda man ég að eins glögt eftir, að hann sat frammi
í stofu nýkominn á fætr um morguninn; hann satöðrummegin
við borð, en faðir minn hinum megin; séra Hjálmar var snögg-
klæddr, á blágrárri prjónapeysu; höfuðið var stórt, ennið mikið,
hárið nær hvítt af hærum; augun lágu ákaflega djúpt í höfðinu.
Ég hafði heyrt svo mikið sagt af sérvizku séra Hjálmars og
svo margt um hve hlægilega hann bæri sig að á stundum, að
ég man glögt, að ég hafði hugsað mér hann sem mjög kátlega
fígúru, sem ég mundi eiga mjög bágt með að hlæja ekki að.
En því fór þó svo fjarri, að hann hefði þau áhrif á mig, er
ég sá hann, að ég fékk ósjálfrátt lotningu fyrir manninum.
Hann og faðir minn vóru lengi að tala saman, töluðu þeir af
mikilli alvöru, og sá ég að faðir minn sýndi honum mikla virð-
ing, og mun það hafa haft áhrif á mig, ásamt svip og yfirliti
séra Hjálmars, sem var einkennilegt mjög. Ekkert man ég eft-
ir, um hvað þeir töluðu, hefi og ef til vill ekki borið mikið skyn
á það. (Meira).
J. P. T. Brydes verzlun
selr gegn peningaborgun út í hönd
lma- West Hartley Ofnkol
á 3,40 pr. skpd., ef minst 20 skpd. eru tekin í einu.
NB. Þetta tilboð gildir að eins til septemberloka.
Verzlimin í Kirkjustræti ÍO
tekr fé til slátrunar eins og að undanförnu og borg-
ar það í peningum og vörum með lœgsta verði, ef
óskað er.
Menn sem koma með sauðfé til bæjarins, eru
beðnir að snúa sér þangað, áðr en þeir semja við aðra,
því það mun borga sig.
Port fyrir fé lánast, hvort sem féð verðr keypt
eða ekki.
Fljót afgreiðsla fyrir hvern sem verzlar.
Royal Daylight
steinolía
fæst hvergi eins ódýr gegn peningaborgun, eins og í
verzlun J. P. T. Bryde, Reykjavík.
^Brúkuö íslenzk frímerki eru keypt á
afgreiðslustofu Fjallkonunnar.
Til leigu óskast 1. septbr. 2 rúmgóð herbergi með eld-
húsi og nokkru geymsluplássi. Eitstj. visar á.
Eitt herbergi með húsbúnaði, í austanverðum
bænum, óskast til leigu nú þegar. Afgrst. Fjallk.
vísar á.
í kringum Þjórsárbrúar-vígsluna kom morstrútóttr hundr
að Selfossi og er hann þar enn. Hver sem á hund þenna, geri
svo vel að hirða hann hið fyrsta, þvi ella verðr honum fargað.
Símon Jónsson,
Selfossi.
Kensla í yfirsetukvennafræði
byrjar fyrstu dagana af októbermánuði næstkomandi.
J. Jónassen.
Víravirkis sjalprjónn úr siifri er fundinn á götu Rit-
Btjóri vísar á finnanda.
í verzlun Magnúsar Einarssonar
úrsmiðs á Vestdalseyri við Seyðisfjörð fást
ágæt vasaúr og margs konar vandaðar
vörur með mjög góðu verði
rvi
rð
bdO
C3
~T
o
CC5
03
CS
CS
09
Leiðarvísir til lífsábyrgðar fæst
ókeypis hjá ritstjórunum og hjá Dr.
J. Jónassen, sem einnig gefr allar
nauðsynlegar upplýsingar um lífs-
ábyrgð.
Útgefandi: Vald. Asmundarson.
Félagsprentsmiftjan.