Fjallkonan - 28.09.1895, Síða 4
160
F JALLKONAN.
XII 39
haldnir. AuðviUð verðr þetta að gerast með sam-
þykki jarðeiganda.
Kvennabrekku, í septbr. 1895.
Jóhannes L. L. Jóhannsson.
Holdsveikislæknirinn, dr. Ehlers, er ferðaðist hér
um land í rannsóknum sínum, fór heimleiðis með (Thyra’af Hósa-
vík 8. þ. m. Pór hann fyrst úr Reykjavík um 25. júlí austur í
Árness- og Rangárvallasýslu og þaðan um Kalmannstungu norðr
í Húnavatnssýslu. Dvaldi hann lengst við Eyjafjörð og fór vest-
an megin fjarðarins út í Svarfaðardal og Ólafsfjörð, enn að aust-
anverðn út í Höfðahverfi og alt að Hringsdal á Látraströnd,
þaðan um Fnjóskadal og Ljósavatnsskarð norðr að Mývatni, og
svo til Húsavíkr. í för með honum vóru læknarnir: dr. Gross-
mann frá Liverpool (augnalæknir), dr. Cahnhein frá Dresden og |
Eichmiiller frá París. Tveir hinna fyrtöldu fóru ekki lengra enn
á Akreyri, komu þaðan landveg hingað suðr, og fóru héðau með
,Laura’ 23. f. m. Ekki kvað hafa borið á öðru enn að þeim dr.
Ehlers og félögum hans hafi verið vel tekið í för þeirra.
Um rannsóknir sínar hefir dr. Ehlers sent Fjallkonunni svo-
látandi skýrslu :
(Við rannsóknarferð mina í sumar hefir fengizt vitneskja um
16 nýja holdsveika sjúklinga alls, og skiftast þeir þannig niðr
á hin sérstöku héruð:
Sýslur. Hniklótta tegundin. Slétta tegund. Sam- bland. Alls.
Karlmenn. Kvennmenn Karlmenn. ð a 5 i 3 3 © >• fcd Karlmenn. | i jKvennmenn
Reykjavik i n n 51 n 1
Árnessýsla i 1 i 1 4
Borgarfjarðarsvsla 3 n n 51 51 n 3
Rangárvallasýsla n í n 2 „ 51 3
Húnavatnssýsla í n >5 51 n 1
Eyjafjarðarsýsla i n V 51 1 n 2
Þingeyjarsýsla n n 1 1 n n 2
16
Ég hefi að þessn sinni að eins rannsakað Árness- Rangár-
valla, Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. í skýrslum þessum hafa
látizt síðen i fyrra þessir sjúklingar: í Rangárvallasýslu 2, i
Eyjafjarðarsýslu 2, og 1 Þingeyjarsýslu 2.
Rannsóknir mínar i ár hafa styrkt þá ætlun mína, að það
mundi koma í ljós, er sjúklingarnir væru skoðaðir á heimilum
þeirra, að þar séu sjúklingar, sem eru sýktir og þjást af veik-
inni, án þess að vita það sjálfir.
Nánari skýrslu um þetta mnn ég gefa í Spítalatíðindunum,
þá er ég kem aftr til Hafnar’.
Gufubátrinn Elín strandaði á Straumfirði 21.
sept í stynnings útsynningi; brotnaði gat á skipið og
er talið víst að ekki verði gert við það framar. Eins
og margoft hefir verið bent á í þessu blaði, var bátr
þessi ekki fær til ferða hér um Faxaflóa, ef nokkuð
var að veðri, og því síðr að hann væri hæfr til lengri
ferða, enda lá við sjálft að sögn, að hann færist í
Eyrarbakka-flóa í sumar. — Vonandi er að betra skip
verði valið til ferðanna hér um flóann næsta ár.
Dáinn 25. ág. séra Jón Bjarnason Thorarensen
(amtmanns) í Stórholti í Saurbæ.
18. ág. lézt að Auðkúlu í Svínadal frú Þorbjörg
Halldórsdóttir (Sigurðssonar stúdents og Hildar Ei-
riksdóttur, systur kand. theol. Magnúsar Eiríkssonar)
kona séra Stefáns M. Jónssonar Auðkúlu.
Háu verði kaupir undirskrifaðr gamalt silfr,
svo sem: silfrbelti, hnappa, bikara, könnur, mill-
ur o. fl.; gamla útskorna muni úr tré, svo sem: ót-
skorna aska, rómft'alir, kassa, smástokkka, kefli
o. fl. Ennfremr ýmsa gamla muni úr kopar og
eir.
Öll íslenzk frímerki kaupir sami fyrir hæsta verð.
Reykjavík, Austrstræti 5.
__________________Ólafr Sveinsson._______________________
Utanáskrift til Jðns ritstjóra Ólafssonar er nú:
Jón Ólafsson Esq.
.Skandinaven’, Editorial Rooms,
183—187 N. Peoria Str.
Chicago, Ills.
Piano-Magazin
Skandinavien,
30 Kongens Nytorv 30,
Kjöbenhavn.
Stærsta verksmiðja í Danmörku.
Langódýrasta verð; alt selt með
5°/0 afslætti gegn peningum eða
gegn afborgun eftir samkomu
lagi.
Verksmiðja og nægar birgðir af
Orgel-Harmonium.
Dráttstöfuð verðskrá send ókeypis.
Vottorð.
Ég uudirskrifuð hefi i mörg ár
verið sjúk af taugaveiklun, og hefi
þjáðst bæði á sál og líkama. Eftir
margar árangrslausar læknatilraun-
ir, reyndi ég fyrir 2 árum (Kína-
lífs-elixír’ frá hr. Waldemar Peter-
sen í Frederikshavn, og þá er ég hafði i
neytt úr fjórum flöskum varð ég
undir eins miklu hressari. Enn þá
hafði ég ekki föng á, að kaupa
meira.
Nú er sjúkleikinn aftr að áger-
ast, og má sjá af því, að batinn
var hinum ágæta bitter að þakka.
Litlu-Háeyri, 16. jan. 1895.
Quðrún Símonardóttir.
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flest- [
um kaupmönnum á íslandi.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaup-
endr beðnir að líta vel eftir því, að i
VFP standi á flöskunum í grænu
lakki, og eins eftir hinu skrásetta
vörumerki á flöskun.iðanum: Kín-
verji með glas í hendi, og firma-
nafnið Valdemar Petersen, Frede-
rikshavn, Danmark.
í vcrzlun Magnósar Einarssonar
úrsmiðs á Vestdalseyri við Seyðisfjörð fást
ágæt vasaúr og margs konar vandaðar
vörur með mjög góðu verði
Leiðarvísir til lífsábyrgðar fæst
ókeypis hjá ritstjórunum og hjá Dr.
J. Jónassen, sem einnig gefr allar
nauðsynlegar upplýsingar um lífs
ábyrgð.
Allir, sem skulda mér
eru vinsamlega beðnir að
borga það í peningum í
haust.
Seyðisfirði 14. sept. 1895.
M. Einarsson.
Útgefandi: Tald. Ásmundarsou.
Félagsprentsmlðjan