Fjallkonan - 08.10.1895, Qupperneq 2
166
FJALLKONAN.
xn 41
gert, enn ekki ætlast ég til að virðingamenn hefðu
neina aukaborgun fyrir að yflrlíta skipin á vorin,
heldr skyldi það innifalið í aðalskoðuninni.
í sambandi við þetta þá, skal ég leyfa mér að
geta þess, að mér finst það næsta óviðfeldið, að fé-
lagsmenn sjálfir séu virðingamenn skipanna. Eðli-
legra sýnist það vera, að kjósa virðingamennina al-
veg fyrir utau félagið, einkum og sér í lagi þar sem
vera mun vöi á alt eins færum mönnum til þess fyrir
utan félagið. Að minsta kosti mundi ekki vandi að
skipa í skarðið fyrir þann (væna’, sem enn ekki kvað
vera búinn að borga ábyrgðargjald sitt, enda þótt 3.
gr. félagsins ákveði, að gjaldið skuli greiða um leið
og hver skipseigandi gangi í félagið.
Ritað í sept 1895.
B.
Úr bréfi frá feröamanni.
Næsta miklar sýnast mér framfarirnar í Borgar-
firðinum bæði að húsabyggingum, jarðabótum og vega-
gerð síðan fyrir sjö árum, að ég fór um sveitirnar í
kringum Hvítá. Ég hefi farið tvær langferðir í
sumar, aðra út í Ólafsvík og hina til Reykjavikr, og
virðist mér næsta ólíkt umhorfs í sveitum þeim, er
ég fór yfir í hvort skiftið. Syðra alt í framför og á
blómavegi, enn fyrir vestan alt í eymd og niðrlæg-
ingu, þar sem alt ber vott um skort á manndáð og
mannrænu. Annars held ég að fé landsins væri eigi
illa varið til að kaupa nokkra duglega bændr úr
öðrum héruðum til að setjast að í hverri sveit í kring
um Jökul, svo sem þrjá í hverjum af þessum hreppum:
Breiðuvík, Neshreppi innan Ennis, Neshreppi utan
Ennis, Eyrarsveit og Staðarsveit; þá mundi margt
fara að færast þar i lag, því landkostir eru á þess-
um stöðum hinir beztu.
Til skósmiða á íslandi.
Ég hefi séð bæði í Pjallk. og ísaf., að skósmiðir í Eeykja.
yík hafa hækkað í verði skófatnað, sem og líka er mjög eðlilegt,
því leðr í útiöndum hefir hækkað afar mikið í verði uú i ár
(100% °S þar yfir) og því er ekki við að búast, að skósmiðir
geti selt fyrir sama verð og áðr. Enn það gegnir furðn, að nokk-
rir af þeim sömu, sem hafa skrifað undir auglýsingu þessa, eru
jafnharðan að auglýsa til sölu mjög ódýran útlendan skófatnað
sem helzt enginn skósmiðr ætti að hafa til útsölu. Það er svo
að sjá, að þeir skósmiðir sem selja útlendan skófatnað hafi ekki
mikla hugsun um framtíð atvinnu sinnar, heldr finst hugsunin
vera að eins nm augnabliks hag.
Setjum nú svo, að allir skósmiðir taki þetta sama fyrir,
n.fl. að panta útlendan skófatnað, og selja hér, sem mjög er eðli-
legt að verði, úr því kannske 2—3 gera það, og hafa ef til vill
einhvern augnabliks hag.
Enn ég vil spyrja þá góðu menn: Hvernig verðr þá skó-
gerðahandverkið eftir 5—10 ár hér frá?
Ég get vitanlega svarað mér sjálfr. Handiðn sú, er ég hér
á við, verðr eftir nefndari tíma alls ekki til, því fólk kaupir
þennan útlenda skófatnað, sem finst ódýrari í byrjun, enn er i
sjálfu sér dýrari. Mér hefði fundizt það rétt af þeim skðsmið-
um, sem hafa skrifað undir þessar auglýsingar, að hafa félags-
skap með að selja engan útlendan skófatnað, heldr selja sem
mest vandaðan innlendan sköfatnað, því það álít ég affarasælast
bæði fyrir kaupanda ogseljanda, að ógleymdu handverkiuu sjálfu,
sem þá mundi geta haldizt við, enn með þessari vitlausu aðferð
hlýtr að liða undir lok eftir f'á ár.
Enginn efi er á því, að fari þessu fram, ris fljótlega upp ein-
hver maðr í Reykjavík, sem eingöngu verzlar með útlendan skó-
fatnað og selr hann svo ódýrt, að allir skósmiðir verða að leggja
niðr iðn sína. Það er margt talað og ritað um það, að sem
mest sé unnið í landinu sjálfu, sem er líka mjög áriðandi, enn
það lítr ekki út fyrir að þið, skósmiðir, sem seljið hinn útlenda
skófatnað, séuð á þeirri skoðun.
Ég vil nú að endingu alvarlega ráða ykkr, skósmiðir, sem
seljið útlenda skófatnaðinn, til að hætta því algerlega, enn selja
hér unninn skófatnað, svo ódýrt og svo vel vandaðan í alla staði
sem kostr er á.
Það mun borga sig bæði í bráðina og einkum fyrir fram-
tíðina. Ráðhollr.
Lífið í Georgíu.
(Eftir Senri Cantell).
(Frh.J. Áðr enn Daria var gift Dimitri, hafði hún
felt ástarhug til ungs manns frá Armeníu, sem hét
Yamiran, og hafði hann fengið uppeldi sitt á Frakk-
landi. Hún hafði grátið, þegar hún var gefin saman
við Dimitri, og þótt hún væri manni sínum trú, þá
gat hún samt ekki gleymt þeim manni, sem hún var
búin að gefa hjarta sitt.
Bakmælgin Iét þetta ekki liggja í þagnargildi,
og Dimitri fekk líka nokkurn pata af því; æsti það
í honum æðandi afbrýðissemi; samt bældi hann hana
niðr og lét ekki á bera. Enn alt frá þeim tíma hat-
aði hanu Daríu og fór aftr að slá sér lausurn í skemt-
anir þær er hann hafði gefið sig við í æsku sinni.
Furstafrúiu átti nú leiðinlega daga og gekk timi
hennar mest í gráti, eða að lýsa sorg sinni fyrir Salóme,
sem var fóstrsystir hennar, eða þá hún lék við dóttur
sína, sem lá í vöggunní. Salóme var fríð og fyrir
skart, og með því Vamírau gaf henni gjafir, þá örvaði
hún ástríðu furstafrúarinnar í stað þess að þagga
haua niðr. Hún kom bréfum milli elskendanna, Daríu
og Vamirans. Einu sinni fann Dimitri georgiskar dans-
vísur í herbergi konu sinnar. Þær höfðu gleymzt í
legubekk. Þá brá fyrir í huga hans voðalegum mis-
grun.
,Þau skrifast á, þau elskast’, tautaði hann styn-
jandi með sjálfum sér.
Hann þekti ekki hönd Vamírans hins armenska,
enn hann varð fljótt vís hins sanna. Hann skundaði
til póstmeistarans, sem var Rússi, fékk honum fimtíu
rúblur, og sagði: (Lítið þér á þetta blað; þegar þér
fáið bréf með sömu hendi, þá færið mér bæði blaðið
og bréfið. Þá skuíuð þér fá 50 rúblur í viðbót.’
Með þessu móti fékk hann fulla víssu um sam-
drátt Daríu og Vamírans. Annars kom Armeníumaðr-
inn ekki í hús hans. Georgíumenn hata Armeninga
yfir höfuð af öilu hjarta, enda eru Armeningar al-
ment hataðir í Austrlöudum fyrir fláræði, ágirnd og
lubbaskap. Georgíumenn segja: (Það þarf sjö Gyð-
inga til að pretta einn Armening’.
Nú er Dimitri hafði fengið það sem hann þurfti,
þá gekk hann hamslaus af reiði og afbrýði inn í her-
bergi kouu sinnar, þar sem hún lá á þykkum ábreið-
um í liinum heitu geislum júnisólarinnar.
(Þekkirðu þessa hönd?’ spurði hann titrandi og
greip í handlegg hennar.
(Nei’, svaraði Daría.
(Þekkirðu þá þessa?’ hélt hann áfram og braut