Fjallkonan - 13.11.1895, Blaðsíða 3
13. nóvember 1895.
FJALLKONAN.
187
Hún benti fingri til himins og svaraði með dimm-
um róm:
.Allha! Allha! Domentí Bek!’
Þegar furstinn heyrði sitt sanna nafn, hrökk
hann saman af hræðslu, enn þó stilti hann sig og
spurði hana, hvort hún og hyski þetta ætlaði.
tTil Kutais í Imereth’, svaraði hún.
,Rétt!’ sagði Dimitri í reiði, (ég er Domentí
fursti. Enn komi nafn mitt nokkurntíma yfir þínar
varir, þá læt ég sauma þær saman með glóandi nál,
og alt ykkar illþýði skal verða hengt’.
Zigeunar biðu ekki næsta morguns, þeir tóku
þegar saman tjöld sín og fóru burt. Þau þrjú í kof-
anum vóru nú laus við þessi vítis-börn. Dató horfði
niðr á tær sínar, kona hans hlakkaði hálfvegis til að
verða rík, enn var líka hálfhrædd við hinn tigna
gest, sem var í bæ hennar. Dimitri var svipþungr
og þegjandalegr og hugsaði um spádóm flökkukind-
arinnar.
Það er af Grigory að segja, að hann var nú alt
í einu orðinn frábitinn vínföngum, enn það er fágæt
dygð hjá Georgíumönnum. Hann kom aldrei framar
í veitingahúsin, og var oft á gaugi hjá Zíonskirkj-
unni og var svo fálátr, að varla fékst úr honum orð.
Stundum mátti sjá hann með stóreflis fílabeins talna-
band, og lét hann fingrna leika hugsunarlaust á töl-
unum. Sumir köstuðu að honum spottglósum, enn
hann skeytti því alls ekki. Sú var meiningiu að
hann hafði helgað sig málefni furstans með lífi og
sál og var allstaðar á vaðbergi, að heyra og sjá.
Hann fór iðulega með matvæli og fréttir til að færa
herra sínum í kofa Datós. (Frh.).
Fjárkaup Thordals. Hr. Thordal er nú að
fara héðan með um 3000 fjár. Hefir gefið vel fyrir
féð; kr. 12—18 fyrir kindina. — Auk þess hefir hann
keypt eitthvað af íslenzkum vörum. Hann skilr hér
eftir 1400 fjár, sem hann gerir ráð um að sækja í
desember.
Með því að hr. Sigf. Eymundsson (Mr. Franz)
hefir og keypt nokkur þúsund fjár bæði hér og nyrð-
ra er vonandi að talsvert sé bætt úr peningaskortin-
um í þeim héruðum landsins, þar sem féð hefir selt
verið í haust.
Ræður í stúdentafélaglnu. Það hefir ekki
verið venja að geta um það í blöðunum, sem fram
hefir farið á stúdentafélagsfundum, enn nú fyrir
skömmu hefir Isaf. og Þjóðblfr brugðið út af því með
því að birta nokkuð af fyrirlestri hr. Guðm. Björns-
sonar læknis. — Af útlendum sjúkdómum, sem eru
að gerast hér innlendir, þótti honum einna mestr ótti
standa af lungnatæringu, eins og áðr er getið, og
Jsaf. og Þjóð. hafa tekið fram í iengra máli, enn
báðum þeim blöðum hefir gleymzt að geta þess, að
læknirinn nefndi tvo aðra sjúkdóma, sem hætt væri
við að yrðu hér innlendir: (franzós’ og (gonorrhée’,
og kvað hann þörf á, að hafa strangar gætur á, að
þessir sjúkdómar næðu ekki útbreiðslu.
Hr. Eiuar Benediktsson hefir haldið pólitískan
fyrirlestr í stúdentafélaginu nú fyrir skömmu, og er
ekki vonlaust um að FjallJc. geti síðar flutt einhverja
mola af því góðgæti, sem hann bar þar á borð.
Um Yestr-íslendinga er sagt að hr. Einar
Hjörleifsson hafi haldið fyrirlestr, sem jafnvel mun
vera prentaðr. Um efnið er ókunnugt, annað enn
það sem (Þjóðólfr’ segir, og er þar sagt, að lesarinn
hafi lofað mjög gengi íslendinga í Am. — Ekki er
vert að synja fyrir, að það kunni að vera rétt hermt;
enn víst er, að Vestríslendingar eru ekki skilríkari
enn samlandar þeirra hér heima, í viðskiftum, þótt
ekki vanti gullið og gengið, því mjög fáir af þeim
borga skuldir sínar hér heima, og er þetta talað í nafni
mikils þorra manna.
Aflalaust má kalla hér við Faxaflóa; að eins
reytingr af ýsu og þyrsklingi í Garðssjó. — Austan-
fjalls (á Eyrarbakka og Stokkseyri) hefir verið góðr
afli nú um tíma. — Síldarafli hefir verið hér tölu-
verðr inn á Reykjavíkrhöfn undanfarna daga, enn
því miðr hafa menn hér lítið af veiðarfærum til að
nota sér þá veiði.
Bráðapestin er farin að gera vart við sig bæði
nyrðra og austr í Árnessýslu.
Dáinn er seint í október Helgi Eiríksson bóndí
í Villingaholti í Árnessýslu. (Hann var merkr maðr
og lengi hreppstjóri í Villinga’noltshreppi, enn var nú
fyrir nokkrum árum orðinn heilsuveikr og hafði mist
sjónina og iátið af búskap. Kona hans var Guðlaug
Jónsdóttir frá Kópsvatni (ein af hinum merku Kóps-
vatnssystkinum) Einkadóttir þeirra, Kristrún, býr nú
í Villingaholti, gift Jóni trésmið Gestssyni frá Vör-
sabæ.
---•-*«=*=«"-
Nýtt rit sent Fjallk. Dœmisögur Esóps, þýðing eftir
Steingr. Thorsteinsson,
Rit þetta hefir verið álitið allmerkilegt, og sér-
staklega mun það vera hentugt sem barnabók. —
Þeirra er mikil þörf hér á landi, því að vér höfum
engar góðar barnabækur, fyrir utan stafrófskverin,
sem eru þó ekki eins og vera ætti. — Aílar tilraun-
ir, sem gerðar hafa verið hér á landi til að gefa út
bækr handa börnum, hafa farið út um þúfur; bækr-
nar hafa verið lítt brúklegar. Þetta kemr af því,
að svo fáir þekkja hugsunarhátt barnanna.
Nýir kaupendr
FJALLKONUNNAR
fyrir næsta ár, 1896,
sem eiga heima í Rangárvallasýslu, Árnessýslu, Gull-
bringu- og Kjósarsýslu og Borgarfjarðarsýslu geta
fengið allan árg. Fjallkonunnar þetta árið (1895)
dkeypis og kostnaðarlaust sendan, og að auki:
Sögusafn Fjallk. I. og II. (8—10 arka rit).
Þeir sem útvega nýja kaupendr fá svo góða kosti,
að engin dæmi eru til slíks.
Sveitamenn eru beðnir að koma við í Þingholts-
stræti 18 og tala við blaðstjórann.
Fyrirlestr um
Sveitalífiö og: Reykjavíkrlífið
er til sölu hjá útgefanda Fjalikonunnar og kostar
40 aura.