Fjallkonan


Fjallkonan - 01.01.1896, Blaðsíða 2

Fjallkonan - 01.01.1896, Blaðsíða 2
2 FJALLKONAN. xm 1 Enn erum vér íslendingar þess umkomnir, að draga framfaraveifuna nema í hálfa stöng í menta- málum fremr enn í atvinnumálum t. a. m? Ég held ekki. Það má segja um alla framfaraviðleitni hér á landi, að hún sé að eins ,kák’. Það má segja að em- bsettismannaskólarnir hér á landi sé ,kák’, þegar þeir eru bornir saman við samkyns skóla erlendis. Það má segja, að fróðleikr hvers einasta manns sé ,kák’, hversu fróðr sem hann er, þegar fræði hans eru bor- in saman við þekkingu allra annara manna saman- lagða. — Benedikt Gröndal er vafalaust hinn fjöl- fróðasti íslendingr, sem nppi er — og verið hefir — enn smávaxinn myndi þó fróðleikr hans sýnast, ef hann væri borinn saman við fræði alls mannkynsíns. Slíkt dæmi sem þetta verðr að vísu ekki reiknað með tölum á spjaldi, enn það má reikna það með lík- ingum i huganum. Það má stinga árinni ennþá dýpra. Er ekki sjálft lífið ,kák’ með öllum sínum blóðþorsta, vígtönn- um og hræklóm? Annars ætlaði ég ekki að leggja af stað í vís- indalega eða heimspekislega langferð, enda hefi ég hvorki nesti eða skó í þá för. Ég vildi þó benda náunganum á, að mentun manna og fróðleikr fer ekki einungis eftir því, hve Iengi þeir hafa dvalið á skól- um. Skyldi t. d. ritstjóri Fjallk. vilja skifta fróðleik við suma sexvetlinga latínuskólans — svo ég velji þó ekki af lakari endanum? Mér kemr ekki í hug, að halda því fram, að al- þýðuskólarnir hér á landi sé eins fulíkomnir og æski- legt væri. Þó eru þeir allir spor í áttina. Mér finst að vér íslendingar megum þakka hamingjunni fyrir, ef oss tekst að stíga, þó ekki sé nema fáein spor í áttina. G. F. Borgaralegt hjónaband. Þegar Jón biðr Guðrúnar sér til eiginkonu, þá tekr hann hana ekki framyfir Sigríði fyrir þá sök, að hún sé guðhræddari, eða líklegri til þess að gera hann sáluhólpinn. Jón er ekki svo ákaflega mikið að hugsa um það, þann timann, sem hann er safna yfirskegginu. Guðrún er sem sé laglegri, loðnari um lófana og af betra fólki! Með öðrum orðum: hún þóknast augum hans betr, eða hinum veraldlega manni, hinum gamla Adam, og svo búmannsefninu í honum, sem ætlar sér að lifa á jörðinni og yrhja jörðina, hvað sem hinu líðr, svo lengi sem framast er unnt. Hvað sannar svo þetta? Þetta sannar það, að hjúskaprinn er einn af Iand- setum höfðingja þessa heims, og að hann hvilir eins áreiðanlega á jörðinni, eins og Babelsturninn og reyk- háfrinn, og hver önnur bygging, sem af höndum er ger. Þær eiga allar sama markið: þrírifað í þrí- stýft hægra, og þrettán rifur ofan í hvatt vinstra, og allar verða þær að taka stakkaskiftum, ef þær eiga að vara, annars sópar stormvindr byltinganna þeim niðr fyrir ætternisstapa, fyr eða síðar. — Það er jafn örðugt að neita þessu með rökum, eins og að flétta reipi úr sandinum. (Hvað herrann saman hefir tengt | húsgangarn- ir slíta’, sagði Siggi gamli Breiðfjörð. Það heitir svo í orðabók eiuni, að Guð tengi sarnan hjónin. Þó er það kunnugt, að margr strákhvolprinn hefir nagað sundr tengslið og ekki orðið meira fyrir, en að gleypa í sig vætuspón. Er það í raun og sannleika kyn- legt, þótt tvær grimur renni á heilbrigða skynsemi, þegar þetta tvent er borið saman? Það er lika kynleg mótsögn, að fela hinum skrift- lærða að binda saman hjón að lögum, enn tollheimtu- manninum hitt: að bregða skálminni á haftið. Þó má vera, að þetta atriði hafi ekki mikla þýðingu í angum manna hér á landi, þar sem þjónar ríkisins og kirkjunnar ganga hverir í annara brókum á víxl, og stundum í harla sundrleitum erindagerðum. Skyldi það vera bekla Gunnars helmiugs, sem félagsheildin okkar gengr í? Lög um, að þjóðkirkjumönnum sé leyfilegt að ganga í borgaralegt hjónaband, hafa nokkrum sinnum verið borið upp á þingi, enn jafnan mætt mikilli mót- spyruu. Það er að segja: mörg atkvæði hafa jafnan verið á móti málinu, og er það nóg til þess, að fella hvert mál sem er — þótt engar ástæður af viti sé á takteinum. — Það var víst á þinginu ’93, sem herra biskupinn spratt upp og kvaðst „þora að neita því“, að Luther myndi liafa verið rnáli þessu hlyntur .. . Þessi neitun mun hafa átt að sauna það, að hugmynd- in væri óaiandi og óferjandi hinni kristilegu kirkju. Skyldi annars nokkurt smáskamtaglas eða hænu- höfuð-kúpa í landinu vera hæfilega lítið fyrir sííkar röksemdir og aðrar eins ? — Það var Halli hinn vitri, sem sá það og sagði, að ’prestarnir mættu sjálfir verða fegnastir“, að sleppa við að vígja þá menn í hjóna- band, sem ekki vilja þiggja af þeim slíka þjónustu. — Heiðr þeim, sem heiðr heyrir, þótt hann hafi prests- hempu efsta fata i stað dómaraskikkju, sem farið hefði betr. — Annars munu fáir menn hér á landi svo fráhverfir orðnir kirkjunni og prestunum, að þeir hafi nokkuð á móti því, að þeir gefi sig í hjónaband — einungis ef hjónabandsformúlan er rifin úr görmun- um og færð í snotrari búning; hjúskaparieiðin, sem gegnum liggr skrifstofu sýslumannsins, er sem sé heldr enn ekki krókótt og þröng. Þar sem hjúskaprinn hvílir á jörðunni, enn alls ekki á neinni trúarlegri hugsjón, ættu siðvöflur kirkjunnar að gerast útlægar úr ríki hans. Það þarf ekki skarpa greind eða nákvæma eftirtekt- til þess að sannfærast um, að siðvöflur — seremoniur — kirkj- unnar hafa alls enga þýðingu fyrir farsæld hjúskap- arins. Ég efast ekki um, að hinir vitrari prestar sé mér samdóma í þessu. tSIaki’ kirkjan ekki á þess- ari (kló’, þá munu þeir sanna til, sem lifa þegar ég er dauðr, að hún missir margan góðan háseta fyrir þráann og heimskuna. Og þegar þið svo eruð komnir úr skiprúminu, drengir góðir! þá flettið upp sögunni af Adam og Evu, og lesið um giftingu þessara heiðrshjóna, sem voru hvort öðru trú eins og hrafnahjón. Kynnið yðr aðferð Skota, hvernig þeir hafa sig í hjónasængina:

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.