Fjallkonan - 01.01.1896, Page 4
4
FJALLKONAN.
XIII l
nóv. hengdi sig maðr úti í fjárhúsi á Vatnshól í Húna-
vatnssýslu Natan Rósantsson (Natanssonar þess er
myrtr var).
Sðlvi Helgason, sem lengi flakkaði um alt land,
dó í vetr, hálfáttræðr.
Mannalát. Hinn 18. f. m. andaðist séra Guðm.
Eelgason á Bergstöðum í Svartárdal, eftir langa legu
í lungnatæringu, á 33. aldrsári, fæddr á Svínavatni
18. júlí 1883, sonr Helga bónda þar Benediktssonar
og Jóhönnu Steingrímsdóttur frá Brúsastöðum í Vatns-
dal Pálssonar prests á Undirfeíli Bjarnasonar. Hann
var útskrifaðr úr skóla 1886, og af prestaskólanum
1889, vígðr s. á. prestr að Bergsstöðum. Séra Guð-
mundr var vel gáfaðr, liprmenni og fjörmaðr, enn var
jafnan heilsutæpr. Hann var kvæntr og á börn á
lífi.
Hinn 23. þ. m. andaðist hér í bænum frú Rat-
rín Þorvaldsdóttir, ekkja Jóns Árnasonar bókavarðar
á 67 aldrsári. Hún var fædd í Hrappsey á Breiða-
firði 3. apríl 1829, og bjuggu þar foreldrar hennar
Þorvaldr Sigurðsson Sivertsen umboðsmaðr, bróðir
Ólaf's próf. Sivertsen í Flatey og Ragnhildr dóttir
Skúla Magnússonar kammerráðs á Skarði og Kristín-
ar Bogadóttur í Hrappsey. Frú Katrín var fyr gift
Lárusi próf. Sigmundssyni Johnsen í Skarðsþingum
(f 1859), enn síðar giftist hún (1863) Jóni Árnasyni
bókaverði og þjóðsagnasafnara, er andaðist 1888. Einka-
son þeirra hjóna, Þorvaldr, dó í latínuskólanum 1883,
mesti afnispiltr. Frú Katrín sál. var góð kona, gáf-
uð og kjarkmikil og í fremstu merkiskvenna röð.
Dáinn er og einn af hinum merkari bændum í
Þingeyjarsýslu, Björn Gunnlaugsson í Skógum í Axar-
firði. Hann varð bráðkvaddr. Hann var nær fimm-
tugr að aldri, sonr Gunnlaugs bónda, er lengi bjó á
Gunnarsstöðum í Þistilfirði, Sigvaldasonar frá Hafra-
fellstungu; er sú ætt austan af Jökuldal. Þeir
langfeðgar vóru allir orðlagðir dugnaðar- og kjark-
menn. Björn Grunniaugsson var mjög vel að sér og
mikill hæfileikamaðr, með hinum efnaðri bændum þar
nyrðra og drengr hinn bezti. Hann var kvæntr Arn-
þrúði Jónsdóttur merkisbónda í Laxárdal í Þistilfirði
og eru mörg börn þeirra.
Algáðir hafa þeir naumast verið, stúdentarnir, sem bera
hr. Einari B. vitni í síð. Fjallk. — þegar þeir hlýddu lestrin-
um hjá honum 8. f. m.—Fjallk. heflr skilrika menn fyrir sig að
hera. £>að verðr þvi að standa, sem í ötdrættinum stendr.
FJALLKONAN-
1896.
Þetta ár kemr Fjailk. út einu sinni í viku, eins
og að undanförnu, og verðið verðr hið sama og áðr.
Greinar um landsstjórnarmál og héraðsstjórnarmál
verða ekki teknar í blaðíð framvegis, nema þær sé
mjög stuttar.
Ean þakkir kann blaðið fyrir gagnorðar greinar
um búnað og önnur atvinnumál. Fyrir beztu ritgerðir
um þau efni verða greidd ritlaun, eftir því sem höf.
og útgefanda kemr saman nm.
Af sögum og skemtun ýmsri mun blaðið flytja
meira enn áðr og myndir af merkismönnum við og
við. Sömuleiðis sem mest af nýjungum frá útlöndum,
eins og venja hefir verið.
Góðar vonir eru um að blaðið geti nú flutt tíðari
og meiri fréttir bæði innlendar og útlendar, með því
að samgöngurnar verða betri.
Þar með er einnig vonandi, að greiðari skil verði
á blaðinu til kaupenda, enn þeir mega heldr ekki
bregðast að greiða andvirði þess, eins og áskilið er.
Því eru þeir kaupendr út um land, sem fá að eins
sent eitt eintaJc af blaðinu með pósti, beðnir að senda
útgefanda sem fyrst andvirði árgangsins 1896.
Verzlun G. Zoega & Co.
Hér með tilkynnist heiðruðum almenningi, að frá
næsta nýari skiftist verzlun sú, er við sameiginlega
höfum rekið undanfarin ár, þannig, að hvor okkar
verzlar fyrir sig og undir sínu eigin nafni, GK Zoéga
í hinum gömlu verzlunarhúsum sínum, enn Th. Thor-
steinsson í sínu húsi (Liverpool).
Um leið og við þökkum viðskiftavinum okkar
fyrir þá hylli og velvild, sem við sameiginlega höfum
notið, vonum við hér eftir sem hingað til að njóta
sama veivilja.
Reykjavík, 27. desember 1895.
(x. Zoöga. Tli. Thorsteinsson.
Til þilskipaútgerðar
fæst ait, svo sem:
Kaðlar
Færi
Segldúkr
Patent farfi,
auk alls annars, sem til útgerðar heyrir, mjög ó-
dýrt. Ódýrara eftir því sem meira er keypt.
Sýnishorn af vörum til sýnis, og eru menn beðn-
ir að gefa sig fram nógu snemma, svo ég í tíma geti
séð hvað mikið ég þarf að panta nú með (Laura’ í
marz.
Th. Thorsteinsson.
C. Zimsen
hefir einkaútsölu fyrir ísland
á
Quibells Sheeps Dip & Cattle Wash.
Igætt haðlyf
á kindur og aðrar skepnur.
Reglur fyrir brúkuninni verða prentaðar á íslenzku.
Kensla yfirsetukvenna byrjar 1. marz.
J. Jónassen.
Pant anir.
Eins og mörgum mua þegar vera orðið kunnugt,
þá tekst ég á hendr að panta allskonar útliendar vör-
ur, og fylgi ekki prinsípi hinna mörgu annara, sem
fyrir vörupöntunum standa, að færa innkaupsverðið
fram; enn læt í þess stað innkaupsreikningana fylgja
hverri vörupöntun. Reynið fyrst á litlu, og sjáið til,
hvort vörur þær sem þið pantið í gegnum mig, ekki
verða töluvert ódýrari, eun þótt þið keyptuð þær í
gegnum pöntunarféiög eða aðra, sem fást við pantanir.
Beykjavík, 10. desemher 1895.
____________ ZO. XX. Bjarxiason.
Forngripi allskonar, úr hvaða efni sem eru:
smíðisgripi, gamla peninga, vefnað o. fl. kaupir útgef-
andi Fjallhonunnar og selr ehhi út úr landinu.
Útgefaudi: Tald. Ásmundarson.
Félagsprentsmiðj an.