Fjallkonan


Fjallkonan - 11.05.1897, Qupperneq 2

Fjallkonan - 11.05.1897, Qupperneq 2
74 FJALLKONAN. XIV 19. bændum til tjóns, eða þá að hann vantreysti hagsýni kaupmanna til þeas, að gera vöruskiftin við aðrar þjóðir möguleg vegna kostnaðar við þau. Að visu er það gömul og ný reynsla, að fiestir kaupmenn eru næsta óhagsýnir í rekstri þessa starfs fyrir þjóð- ina; það hafa kaupfélögin sýnt með því, að reka þetta sama starf með hálfu minni kostnaði eða meira. Eun nær finst mér samt, að finna ráð til að tak- marka kostnaðinn, enn að takmarka verzlunina vegna kostnaðarins. Að varningr geti verið verðmeiri á þeim markaði, sem kaupmaðr keypti hann á, enn þar sem hann selr hann, sannar ekki heldr hið minsta í þessu til- liti. Það sannar ekki annað enn það, að sá kaup- maðr, sem þannig kaupir og selr, gerir blátt áfram vitleysu, sem framleiðendr og neytendr aldrei láta sig henda, ef þeir eru sjálfráðir. Sé markaðrinu ó- truflaðr af samkeppis og gróða brögðum kaupmanna og annara auðmanna, þá er sérhver vara í hæstu verði þar, sem hún hefir mest not&gildi, enn verðr ekki framleidd svo nægilegt sé, til að fullnægja eft- irspurninui. Nú vita allir, að nýtt kjöt er tvöfalt, þrefalt og fjórfalt dýrara í iðnaðarborgum erlendis enu hér á landi, og sama má segja um ulliua. Ritstj. Dskr. gagnar ekkert að vitna til þess, að kaupmenn kaupi hana stundum dýrari hér, enn þeir geta selt hana erlendis. Það kemr alls ekki af því, að hún hafi í rauninni hærra verðgildi hér enn erlendis, heldr af vitlausri og skaðlegri verzlunaraðferð kaup- manna, sem Dskr. sjálf hefir einmitt íekið fram á öðrum stað. Enn hún skellir skuídinni á landsmenn fyrir það, sem einungis er að kenna gönum kaup- menskunnar. Þess vegna vill hún sníða hag lands- manna eftir þörfum kaupmanna; hún vill laga verzl- un vora við önnur lönd þannig, að hin innlenda kaup- mannastétt, sem öll hennar verzlunarvizka snýst utan um, geti þrifizt á verzluninni, hvað sem það kostar. Annað enn þetta verðr ekki dregið út úr verzlnnar- kenningum Dagskrár. í niðrlagi svars síns til B. I. segir ritstj. Dskr., að aðalatriðið í þessu máli sé, hvort landsmenn verzli of mikið í hlutfalli við framleiðslu og iðnað, og þeirri spurningu hafi B. I. ekki gefið neitt svar. Það var ritstj. Dskr. sem fuliyrt hafði, að vér verzl- uðum of mikið, og á þessari fullyrðingu ósannaðri hafði hann svo bygt verzlunarkenning sína, hafði bygt á því, sem hann átti eftir að sanna, og hefir ekki enn sannað. B. I. bar því engin skylda til að sanna hið gagnstæða; enu hann hafði rétt tii að krefjast sannana fyrir fullyrðingum Dskr. Þær eru ókomnar enn; enn hér hafa verið færðar ailgóðar sannanir fyrir því, að fullyrðiugar Dskr. séu raka- lausar, og að ritstj. hafi ekki haft annað að bjóða í svari sínu til B. I. enn skinástæður. Á stuttri grein síðar í sama blaði Dskr., sem svar- ið til B. I. er í, er sami vandræða blæriun. Þar reynir ritstjórinn að þvo hendr sínar fyrir fólkinu, og lýsa yfir því, að sakíaus sé hann af því, að viija illa íslenzkum kaupfélagsskap. Slíkr handa þvottr er næstum viðbjóðslegr, og það eins fyrir því, þó á- rás Dagskrár á kaupfélagsskapinn kunni að vera sprottin af vanþekkingu á sönnum kaupfélagsskap, enn ekki öðru verra, og sé því einskonar óviljaverk. Til þess bendir jafnvel það, sem ritstjórinn færir fram sem vörn fyrir sig, nefnilega að hann hafi tekið það greiuiíega fram, að kaupfélögin ættu að verzla við kaupmenn iunanlands, enn ekki með milligöngu er- indreka á erlendum markaði. Eiumitt þetta sýnir, að ritstjórinn þekkir ekki kaupfékgsskapinu. Því þau félög, sem eingöngu skifta við kaupmenn innan- lands eru alls ekki kaupfélög, heldr rétt og slétt skrúfa á kaupmenn, til að halda þeim í skefjum. Þau hafa ekkert tillit til þess, sem er aðalatriðið í virkilegum kaupfélagsskap (co-operation), að fækka milliliðunum milii framleiðenda og neytenda til þess, að gera við- skifti þeirra sem einföldust, greiðust og ódýru3t; slík félög hafa ekki heldr neina dýpri skipulagslega þýð- ingu, sem er anuað aðalatriði virkilegs kaupféíags- skapar. Annars eru verzlunarkenningar Dskr. i samræmi við alla framkomu blaðsins, alt annað sem Dagskr. hefir flutt og kent. Aðalstarf blaðsins, síðan það varð til, hefir verið að rífa niðr og sverta í augum almenniugs alt það, er hann hefir vænt sér viðreisn- ar af, enn ekki oitt einasta málefui hefir verið bygt j upp eða stutt í blaðinu. Og til að árétta þessa stefnu | blaðsins heldr ritstjórinn fyriríestra til þess, að reyna að sannfæra menn um, að yfirgripsmeiri féiagaskapr eða félagslegar umbætr geti ekki þrifizt hér á landi; „skrúfur“ verkmanna sé hið eina, sem hér væri hugsanlegt í þá átt, ef menn væru ekki of heimskir til að nota það vopn. Hér kemr það svo fyrir sjónir, að Dagskrá sé sá svartálfr í blaða og þjóðlífi voru, sem ætti að rekast út 1 hin yztu myrkr. Eugir eru þjóðinni óþarfari enn siíkir vantrúarboðar, sem alt af eru á verði til þess, að reyna að slökkva og kæfa hvern vonar og trúar neista, sem kviknar hjá þjóðinni um bætta framtíð og vaknandi krafta. 29. marz 1897. Benedikt Jónsson. Þjóðmeistarinn ísfirzki. Ég hefi alt af verið þjóðlegr og elakað alt, sem tekr nafn af þjððinni. Þó þykir mér ekkert jafn-vænt og „&jóðvii.“ og hann Skúli. J4, hann Skúli er maðr eftir mínu hjarta. Hann kann að segja þeiin til syndanna. Af forvitrn sinni s4 hann, að íslendingar mnndu um aldr og æfi um ekkert annað hugsa enn um askinn sinn (shr. Þjððv. nr. 37 ’96), nema hann kendi þeim að aga landshöfðingjan. Ég hefi alt af verið 4 því, að skynsamleg rök og hðgvær útlistun m41a eigi ekki við 4 þesa- nm tíma, sizt þegar emhættismenn rita. Ég sé lika, að „Djóðv.“ heldr alt aðra leið, sem er girniiegri til tróðieiks og uppbyggi- legri fyrir þjóðina. — Landshöfðinginn og stjðrnin tðku honum ekki eins og 4tti að vera. Skúli er settr af, í stað þess að 4tt hefði að gefa út auglýsingu um, að eins og Skúli ættu allir sýslumenn að skamma yfirboða sína, allir hreppstjórar sýslu- mennina, öll hjú húsbændrna, allir prestar prófastana og allir prófastar biskupinn, þ4 mundi þjóðinni fljðtt lærast að hugsa um meira enn „aslcinn sinn“. Hikið fanst mér til Skúla, þegar liann sté upp 4 lögberg, og gaf öllum iandslýð til kynna, hversu það væri ósvífið, að lofa sér ekki að sitja í embætti; hann sem verði svo miklu af sínum dýrmætu kröftum til að siða yfirmenn landsins. Hér fanst það sannarlega ekki of mikið, þó hann gerði sig ekki 4nægðan með minna enn 9000 kr. í s4rabætr. Enn s4 n4nasarskapr að fara að klípa af þessu! Qanga m4tti þó að því vísu, að Skúii átti þetta, fyrst hann, sem vírðist vera svo staklega óeigingjarn, gaf sjálfr atkvæði fyrir því, að hann

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.