Fjallkonan


Fjallkonan - 01.07.1897, Side 3

Fjallkonan - 01.07.1897, Side 3
1. jftlí 1897. FJALLKONAN. 103 að tveimr gufuskipum væri haldið °úti milli Reykja- víkr og Akreyrar, og gangi annað austr um land enn hitt vestr um land. Verði samið við útlent félag, álítr fundrinn nauðsynlegt, að félagið hafi varnar- þing á íslandi í þeim málum sem útgerðina snerti. — 4. lækkun eftirlauna. — 5. stofnun holdsveikisspítala. — 6. læknamálið. Fundrinn var á móti launahækkun lækna og taxtahækkun, enn með því að skifta landinu 1 alt að 40 læknishéruð. — 7. — 8. að þingið veiti ríflegan styrk til Hólaskóla, Ytri Eyjarskóla og mat- reiðsluskólans í Reykjavík. — 9. styrkr til búnaðar- félaga, eins og áðr, og auk þess lán til búnaðarfyrir- tækja gegn verði og með vægum kjörum. Eyfirðingar héldu þingmálafund 12. júní. Þar var álykíað, að halda stjórnarskrármálinu áfram í frumvarpsformi. í samgöngumálinu urðu fleiri á því að haida áfram eimskipa-útgerð landssjóðs. Mælt með því að þingið styrkti sjávarútveg. Beðið um innlenda brunabótaábyrgð. Óskað umbóta á sóttvarnarlögun- um, beðið um löggildingu verzlunarstaðar á Hjalt- eyri o. fl. Reykvíkingar héldu þingmálafifnd sinu 26. júní. Þar var rætt: 1. stjörnarskrármálið og samþykt: Komi vissa fyrir því, að samkomulag fáist við stjórn- ina um verulegar umbætr á stjórnarfyrirkomulagi laudsins, skorar fundrinn á þingið, að hafna eigi slíku samkomulagi, þó eigi fáist í einu allar kröfur vorar, enn án þess þó að gefið verði eftir neitt af réttarkröfum vorum. — 2. Samgöngumálið. Samþykt að taka boði gufuskipafélagsins, enn reyna að ná sem aðgengilegustum kjörum með tilliti til fjárfram- laga og tíma þess sem samningar eru gerðir fyrir. — 3. fréttaþráðrinn. Samþykt með rómi (accla- mation), að þiugið veitti nægilegt fé til hans. — 4. lœknaskipunarmálið. Þingi bent til, að fara gætilega í fjölgun lækua og launahækkun þeirra. — 5. holds- veikisspítalinn. Skorað á þingið, að leggja fram nægi- legt fé til áhalda hans. Feld tillaga um að spítal- inn verði ekki settr nær Reykjavík enn í Lauganesi. — 6. tollmál. Mælt í einu hljóðl móti tolli á mar- garíni. — 7. þilskipaúivegr. Mælt með, að þingið veiti lán til þilskipakaupa með góðum kjörum. Þegar þessum málum var Iokið, varð að slíta fundi, af því að flestir fundarmenn vóru komnir á burt, enda var þá komið miðnætti. Samkeppni stórveldanna. Það kemr sífelt í ljós, að stórveldin í Evrópu koma sér ekki saman, því öll vilja þau ná sem mestum völdum í Evrópu. Eink- um er mikil keppni milli Þýzkalands og Englands og mest af hálfu Þýzkalands. Englendingar taka. öllu rólega og gera sér gaman af látum Þjóðverja. í þýzkum blöðum eru sífelt mjög harðorðar greinir um Engleudinga. Menn segja, að alt af þurfi Englend- ingar að fá eitthvað fýrir snúð sinn, og er það að vísu satt, að enska stjórnin hefir um langan aldr farið mjög kænlega með sínu valdi og aukið lönd sín og yfirráð meir og meir. Það geta aðrar þjóðir ekki fyrirgefið. Enn nýlendustjórn Breta er næsta ólík þýzkri ný- lendustjórn t. d. — Bretar stjórna nýlendum sínum að kalla án hermanua, og sýna með því meiri hyggindi og mannúð enn aðrar þjóðir. Frökkum er heldr ekki um Englendinga, enda hafa völd Breta sífelt aukizt jafnframt því sem völd Frakka hafa mínkað. Enn Frakkar gera sér enga von um æðstu völd í Evrópu, og fara því stillilega. Kali þeirra til Englendinga fer minkandi og sömu- leiðis óvildin til Þýzkalands. Þeir láta sér nægja að vera mentaþjóð í fremstu röð. Þjóðverjar eru mestir keppinautar Breta og Ame- ríkumanna í verzlun og handiðnum. Þar á móti vant- ar Þjóðverja nýlendurnar til að geta jafnast við Breta. Ef þeir ættu miklar nýlendur, stæði þeir líkt að vígi og Rússar og Englendingar. Enn Englendingar hafa lagt undir sig heiminn og Þjóðverjar flytja heldr til enskra enn þýzkra nýlendna. Rússar eru svo öruggir og öflugir, að þeir bera engan öfundar eða óvildarhug til Englendinga. Eugland og Rússland eru fremst allra stórveldanna, og má kalla að þau standi jafnt að vígi. Frakkland er í annari röð. Þýzkaland vill komast í fyrstu röð, enn Euglendingar eru í vegi fyrir þeim. Alþingi. I. Alþingi sett í dag. Séra Sigurður Jensson sté í stólinn. Síðan var gengið í þingsalina. Kosinn forseti í efri deild Árni Thorsteinsson land- fógeti með 11 atkv. Kosinn forseti í neðri deild séra ÞórhallrBjarnar- son með 11 atkv. Kosinn forseti í sameinuðu þingi Hallgr. biskup Sveinsson með 18 atkv. ‘Smásaxast á limina lians Björns míns’. Þá eru nú ekki eftir nema þrjú kjördæmi á öllu land- inu sem halda við Benedikt Sveinsson og vilja enn halda fram stjórnarskrárfrumvarpi undanfarandi þinga óbreyttu. Þessi kjördæmi eru: Eyjafjarðarsýsla og báðar Þingeyjarsýslur. Synodus var haldin 29. júní og óvanalega fjöl- menn. Þar voru saman komnir 33 prestar. Þrjú höfuð- mál voru þar rædd: — 1. breyting handbókar prest- anna; var Iagt fram frumvarp til breytinga á henni, enn með því að þar þótti enn margt við að athuga, var afráðið, að senda frumvarpið fyrst öllum prestum landsins til álita. Tillögur þeirra skulu síðan teknar til meðferðar og nýtt frumvarp lagt fyrir næstu syno- dus. — 2. skilnaðr ríkis og kirkju. Um það mál urðu margar umræður, og virtust allmargir prestanna vera hlyntir fríkirkju. — 3. innheimta prestgjalda. Prestarnir vildu sumir, að sýslumönnum væri falin innheimtan á hendr, og verðr þetta mál flutt á al- þingi, enn engin líkindi eru til þess, að það fái nokk- urn byr.

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.