Fjallkonan - 01.07.1897, Page 4
104
FJALLKONAN
XIV 26.
Þrjú þilskip fórust úr Eyjafirði í vor í maí-
hretinu: ‘Draupnir’ með 9 mönnum, ‘öestr’ með 11
mönnum, og 'Storrnr’ með 12 mönnum. Er þar eftir
fjöldi af ekkjum og munaðarlausum börnum.
Maðr hrapaði í Málmey á Skagafirði snemma í
júní, en komst heim að bæ sjálfr, og var síðan farið
i land að leita honum lækninga. Yar þá farið til
Jóns Arnljótssonar, skottulæknis, sem hefir verið í
Eeykjavík, og þykir því ‘forframaðr’ í Skagafirði.
‘Hann sat yfir manninum 3 daga þangað tii hann dó,
en héraðslæknisins var ekki vitjað. Sýnir þetta, hve
alþýða er enn trúuð á skottulækna. Maðrinn hét
Sigmundr Ingólfsson, og var duglegr maðr á bezta
aldri’.
Skag-aflrði, 17. júní: 'Nú um tíma hefir tíð verið hér köld
og grasvöxtr lítr út. — Skepnuhöld hafa víða verið ill, og einkum
hafa vorlömb dáið’.
Akreyri, 15. júní: ‘í byrjun þessa mánaðar var 17° hiti og
gerði gróðr, enn 11. þ. m. gerði norðanhret sem hefir staðið til
þessa og snjóað í fjöll ofan til miðs, 3° — 6° hiti um miðja
daga. Kyrkingr í öllum gróðri. Alment heyleysi. Enginn á-
setningr er enn kendr á búnaðarskólunum!’
Gufuskipið ‘Ásgeir Ásgeirsson’ kom hingað 27. júní af Áust-
flörðum með kolafarm. Farþegi: sr. Jóhann Lúther frá Hólmum.
Gufuskip fiá þeim Zöllner & Yídalín kom hingað í gær.
‘Bremnæs’, strandferðabátrinn, kom 28. júní af Áustfjörðnm
Farþegar: Guttormr alþingismaðr, Þorgrímr læknir með frú,
séra Pétr á Kálfafellsstað, séra Þorsteinn Benediktsson, Eggert
verzlunarstjóri af Papós með skyldulið sitt (reisir bú á Laugar-
dælum í Flóa), Jón Runólfsson, sýsluskrifari, Björn Eiríksson
frá Karlsskála o. fl.
Druknun. Maðr druknaði af báti á Hánefsstaða-
eyrum í Seyðisfirði, Guðjón Jónsaon að nafni sunn-
lenzkr.
Fiskilaust og síldarlaust var á Austfjörðum er
‘Bremnæs’ fór þaðan.
Fénaðarhöld mjög ill víða um land í vor. Hefir
fé í mörgum héruðum víðsvegar um land drepizt af
ýmsum kvillum, sem munu vera eitthvað i ætt við
hor eða ilt fóðr. Sauðburðr hefir þó ekki gengið mjög
illa. ___________
Yeðrið er nú orðið hlýtt og gott síðustu daga,
enn gróðr mjög rýr vegna undanfarandi kulda.
Dáinn Jón ólafseon útvegsbóndi í ’Hlíðarhúsum’
í Reykjavík, einn af efnuðustu bændum hér í bænum
og dugnaðarmaðr mikill.
Leiörétting. í 24. tbl. Fjallk. hefir fallið burt ein lína úr
greininni, þar sem talað er um stækkun borganna: 1831 hafði
Ámeríka 4 stórborgir með 510 þús. íbúum, 1891 56 störborgir
með 11 miij. 700 þús. íbúum.
Hvort heldr 1 eða 2 samliggjandi herhergi
í hinu nýja og vandaða húsi mínu í Suðurgötu, geta
þingmenu fengið til leigu nú þegar.
Þingmenn, sem eigi enn hafið leigt herbergi, komið
sem fyrst og lítið á mín herbergi, er eg hefi til boða.
Rvík “•/«. ’97. Andr. Andrésson.
v verzlun Magnúsar Einarssonar á Seyðis-
íirði fást ágæt vasaúr og margskonar smekideg-
I ar, f&sénar og vandaðar vörur
með mjög sanngjörnu verði.
1871 — Jubileum — 1896-
Hinn eini ekta
(Heilbrigðis matbitter).
í öll þau mörgu ár, sem almenningr hefir notað bitter þenna, hefir
hann rutt sér í fremstu röð sem matarlyf og lofstír hans breiðst út
um allan heim.
Honum hafa hlotnazt hæstu verðlaun.
Þegar Brama-Iífs-elixír hefir verið brúkaðr, eykst öllum líkamanum
þrbttr og þol, sálin endrlifnar og fjörgast, maðr verðr glaðlyndr, hug-
rakkr og starffús, skilningarvitin verða næmari og menn hafa meiri
ánœgju af gæðum lífsins.
Enginn bitter hefir sýnt betr að hann beri nafn með rentu enn
Brama-lífs-elixír, enn sú hylli sem hann hefir náð hjá almenningi,
hefir gefið tilefni til einskisnýtra eftirlíkinga, og viljum vér vara
menn við þeim.
Kaupið Brama-lífs-elixír vorn einungis hjá útsölumönnum vorum,
þeim sem fengið hafa umboð frá oss, sem eru þessir:
Ákreyri: Hr. Carl Höepfner.
---- Gránufélagið.
Borgarnes: Hr. Johan Lange.
Dýrafjörðr: Hr. N. Chr. Gram.
Húsavík: Örum & Wulffa verslun.
Keflavík: H. P. Duus verslun.
---- Knudtzon’s verslun.
Reykjavík: Hr. W. Fischer.
Raufarhöfn: Gránufélagíð.
Sauðárkrókr: ------
Seyðisfiörðr: ------
Siglufjörðr: ------
Stykkishólmr: Hr. N. Chr. Gram.
Vestmannaeyjar: Hr. J. P. T. Bryde.
Vík pr. Vestmannaeyjar: Hr. Halldór Jöns-
8on.
Ærlækjarsel: Hr. Sigurðr Ghmnlögsson.
Einkenni: Blátt Ij'on og gullinn hani á einkennismiðanum.
Mansfeld-Bullner & Lassen.
hinir einu sem búa til hinn
verðlaunaða Brama-lífs-elixír.
Kaupmannahöfn, Nörregade 6.
Kristján Þorgrímsson
tekr að sér
að panta frá útlöndum, frá þeirri
stærstu og beztu verksmiðju, alls-
konar ofna og eldavélar eftir ný-
justu tizku, ásamt tilheyrandi járn-
rörum og tilsniðnum, eldföstum
steini.
Ennfremr:
eldunarpotta, kaffihrenslupotta,
steikarapönnur, kolaskúffur og
kolakassa, ásamt ótal fleiri járn-
ílátum, sem fólk þarf með.
Uppdrætti getr hver sem vili
fengið að sjá með hjásettu verðl.
Yerðið er hið sama hér og
hjá verksmiðjunni að viðbættri fragt.
Borgið
Fjallkonuna
í réttan gjalddaga
Útgefandi: Vald. Ásmnndarson.
FélagsprentsmiOjan.